Forsetinn:Hollendingar og Bretar misbeittu AGS

Íslendingar mega aldrei gleyma því hvernig Hollendingar og Bretar misbeittu Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að ná sínu fram í Icesave deilunni. Þetta segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.

Bretar og Hollendingar komu í veg fyrir að stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tæki fyrir endurskoðun á efnhagsáætlun Íslands vegna Icesave málsins. Endurskoðun sjóðsins tafðist í átta mánuði en fyrir liggur að endurskoðunin verði tekin á dagskrá á miðvikudag. Engin erlend lán hafa borist til íslands síðan í nóvember vegna þessa.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að það sé slæmt ef tvo ríki geta misnotað sæti sitt í stjórnum alþjóðlegra stofnana með þessu hætti. „Ég held þess vegna að það sé mikilvægt þó vonandi sé að nást niðurstaða í þessu icesave máli að það sé mikilvægt að við gleymum ekki því hvernig þetta mál var í raun og veru. Að við segjum öðrum þjóðum líka frá því hvernig Bretar og Hollendingar misbeittu stöðu sinni innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Ólafur Ragnar segir þó að markmiðið eigi ekki að vera það að Íslendingar nái sér niðri á Bretum og Hollendingum. „Heldur fyrst og fremst að vara við því að alþjóðlegar stofnanir þar sem öll ríki heims eiga að sitja við sama borð séu misnotaðar með þessum hætti. Ég veit að af samtölum mínum að mörgum starfsmönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var ekki vel við það" segir Ólafur Ragnar Grímsson .(visir,is)

Ég er sammála forseta Íslands.Hollendingar og Bretar misnotuðu sæti sín í stjórn AGS og kúguðu smáþjóð. Það er þessum þjóðum til minnkunar og það þarf að láta þjóðir heims vita af því hvernig AGS braut eigin starfsreglur og gerðist  innheimtustofnun fyrir Hollendinga og Breta.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband