Þriðjudagur, 3. nóvember 2009
Vaxtatekjur einstaklinga 45 milljarðar 2007
Vaxtatekjur einstaklinga af bankainnistæðum árið 2007 hækkuðu um 19 milljarða kr. við endurmat Hagstofunnar á þessum tekjum. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.
Hagstofan hefur nú endurskoðað mat á ráðstöfunartekjum heimila 2000-2007 sem birt var 7. september síðastliðinn. Þessi endurskoðun byggir á nýjum gögnum um vaxtatekjur af bankainnistæðum einstaklinga á þessu tímabili.
Fyrir tekjuárið 2008 var fjármálastofnunum gert skylt í fyrsta sinn að veita skattyfirvöldum upplýsingar um innistæður og vaxtatekjur. Þetta olli því að niðurstöður fyrri ára var ekki unnt að bera saman við niðurstöðuna tekjuárið 2008. Nú hefur verið bætt úr þessu með því að afla sambærilegra gagna fyrir árin 2000-2007. Tölur ársins 2008 breytast ekki en hlutfallstölur yfir þróun ráðstöfunartekna breytast hins vegar eðli málsins samkvæmt.
Vaxtatekjur af bankainnistæðum einstaklinga eru samkvæmt endurmatinu taldar hafa numið rúmum 45 milljörðum króna árið 2007. Í áður birtum tölum var gert ráð fyrir 26 milljarða króna tekjum. Nýtt mat á vaxtatekjum af bankainnistæðum er unnið út frá upplýsingum um innheimtan fjármagnstekjuskatt af vaxtatekjum yfir umrætt tímabil.
Ráðstöfunartekjur heimilageirans eru taldar, samkvæmt endurskoðuðu mati vaxtatekna, hafa aukist um 14,9% á árinu 2008 frá fyrra ári í krónum talið. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 12,1% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann dróst saman um 0,3%. Heildartekjur heimilageirans eru taldar hafa aukist um 12,6% á verðlagi hvors árs og heildareigna- og tilfærsluútgjöld um 9,0
Þetta eru talsverðar vaxtatekjur enda áður en hrunið kom.Nauðsynlegt er a' setja frítekjumark fyrir litlar upphæðir sparifjár í banka,t.d. 5 millj. vegna skatts. Einnig þarf að stórhækka frítekjurmark vegna tryggingabóta þannig,að ekki sé verið að skerða tryggingabætur aldraðra vegna tiltölulega lítils sparnaðar í banka.Frítekjumarkið vegna tryggingabóta ætti að vera a.m.k 100 þús. á mánuði.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.