Laugardagur, 28. nóvember 2009
Skuldir 1998 ehf. í Arion banka 17 milljarðar en ekki 60 milljarðar
Rætt var um Haga og 1998 ehf. í þættinum Í vikulokin í morgun.Stjórnandinn spurði bankamennj í þættinum hvort ekki væri unnt að hafa allt uppi á borðinu og fyrir opnum tjöldum þegar væri verið að endurskipuleggja fyrirtæki í bönkunum.Bankamenn svöruðu því neitandiu og sögðu að gæta yrði viðskiptahagsmnuna fyrirtækja og ekki mætti opinbera þá fyrir keppinautunum.
Guðmundur Franklin og menn hans halda áfram að skrifa um það að 1998 ehf. skuldi 60 milljarða í Arion banka.Síðan spinna þeir sögu um það hvað það kosti að standa undir þessum miklu skuldum og segja,að það mundi þýða 23% hækkun vöruverðs í verslunum Haga. Sannleikurinn er sá,að skuldir 1998 ehf. í Arion banka eru 17 milljarðar en ekki 60 milljarðar.Það kemur heim og saman við mat á verðmæti lánasafnsins,sem flutt var úr gamla Kaupþingi í nýja Kaupþing.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:41 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.