Einar felldi Óskar Bergsson,borgarfulltrúa

Einar Skúlason, varaþingmaður Framsóknarflokksins, sigraði Óskar Bergsson, sitjandi borgarfulltrúa, í kosningu um oddvitasæti flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Einar hlaut 62% atkvæða á kjörfundi framsóknarmanna sem hófst klukkan tíu í morgun á Hótel Loftleiðum.

Einar hlaut 298 atkvæði eða 62% gildra atkvæða og Óskar hlaut 182 atkvæði eða 38%. Auðir og ógildir seðlar voru 8. Í samtali við fréttastofu sagðist Einar vera gríðarlegar þakklátur fyrir þennan mikla stuðning. Hann ætlar að leggja sig allan fram í komandi kosningabaráttu og stefnir á góðan sigur.

Alls greiddu 488 atkvæði á kjörfundinum og segir Einar stemninguna á fundinum vera eins og á flokksþingi framsóknarmanna í janúar síðastliðnum þegar grasrót flokksins krafðist endurnýjunar.

Framsóknarflokkurinn fékk einn mann kjörinn í borgarstjórnarkosningunum 2006. Óskar tók sæti sem borgarfulltrúi þegar Björn Ingi Hrafnsson baðst lausnar í janúar 2008.

Á kjörfundinum verður kosið í sex efstu sæti listans með meirihlutakosningu og í sæti 7 til 12 með prófkjörsleið. Niðurstöður valsins eru bindandi. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Framsóknarfélögunum í Reykjavík.

Ef tveir bjóða sig fram er kosið á milli þeirra þannig að sá sem fær fleiri atkvæði hlýtur sætið. Ef þrír eða fleiri bjóða sig fram er kosið milli allra frambjóðenda og ef enginn þeirra hlýtur meira en 50% gildra atkvæða er kosið aftur milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu í fyrri umferð. Hlýtur sá sem fær fleiri atkvæði viðkomandi sæti. Þessi aðferð er viðhöfð í sæti 1 til 6. Ef frambjóðandi nær ekki því sæti sem hann sóttist eftir getur hann boðið sig fram í önnur sæti á kjörfundinum.

Kosning í 2. sæti listans hefst innan skamms. Í kjöri eru Guðrún Valdimarsdóttir, Salvör Gissurardóttir og Valgerður Sveinsdóttir.(visir,is)

Úrslitin koma á óvart.Óskar Bergsson  hafði staðið sig nokkuð vel,var duglegur en vantaði kjörþokkann.Einar Skúlason er hins vegar óþekktur sem stjórnmálamaður.En laun heimsins eru vanþakklæti.

 

Björgvin Guðmundsson

 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband