Föstudagur, 23. janúar 2009
Ingibjörg Sólrún útilokar ekki stjórn með VG
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist vilja kosningar í vor þar sem nauðsynlegt sé fyrir stjórnmálamenn að gera hreint fyrir sínum dyrum fyrir fólkið í landinu.
Ég tel að stjórnmálamenn verði að gera hreint fyrir sínum dyrum og svara því skýrt hvert þeir vilja stefna til framtíðar. Það er í sjálfu sér einfalt að verða við þessari kröfu almennings en vandinn er að taka á þeim erfiðu verkefnum sem bíða við hvert fótmál. Til þess þarf stjórnvöld sem axla ábyrgð fram að kosningum og það mun Samfylkingin gera. Hún mun ekki hrökkva undan og láta duga að standa álengdar í sjálfumgleði meðan fólk og fyrirtæki berjast í bökkum.
Ingibjörg segir það koma til greina að mynda ríkisstjórn með Vinstri grænum sem Framsóknarflokkurinn verji falli. Hins vegar þurfi allir að gera sér grein fyrir þeim vandamálum sem við er að eiga.
Það kemur allt til greina ef þeir átta sig á því að stjórnvalda bíða erfiðar ákvarðanir við að koma skútunni á réttan kjöl aftur. Mér hefur sýnst skorta mikið upp á það. (mbl.is)
Ljóst er að mikil óvissa ríkir um framhald ríkisstjórnarinnar.Aukin mótmæli almennings og samþykkt Samfylkingarfélags Reykjavíkur um kosningar í vor og stjórnarslit hafa sett strik í reikninginn. Grasrótin hefur tekið völdin.Ef Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir að kjósa skuli í vor verður það sameiginleg niðurstaða stjórnarflokkanna,að svo skuli vera en ef stjórnarflokkarnir verða ekki sammála um hvenær eigi að kjósa gæti stjórnin sprungið fljótlega.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 22. janúar 2009
ISG: Það á að kjósa í vor
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, ætlar að beita sér fyrir því að boðað verði til alþingiskosninga í vor. Þetta kom fram í viðtali við hana í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld.
Mikill þrýstingur er innan Samfylkingarinnar á að ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokk verði slitið og boðað til kosninga. Fjölmennur fundur Reykjavíkurfélags Samfylkingarinnar samþykkti í gær ályktun þess efnis að slíta ætti samstarfinu og ný stjórn mynduð fram að kosningum sem ættu að fara fram eigi síðar en í maí.
Ingibjörg sagði nauðsynlegt að starfhæf ríkisstjórn væri í landinu fram að kosningum. Ríkisstjórnin héldi enn, og muni standa saman meðan það væri hægt. Flokkarnir gætu hæglega staðið saman að tillögu um kosningar.(ruv.is)
Ég er ánægður með að Ingibjörg skuli hafa tekið af skarið með að kjósa eigi í vor. Það er krafa þjóðarinnar og Samfylkingin á að vera í takt við þjóðina.
Björgvin Guðmundsson
Síður á vísir.is
Síður undir "News"
Síður undir "News"
Flýtival
Nýtt á Vísir.is
Leit á Vísi
LeitarorðStyður þú framgöngu mótmælenda í miðborg Reykjavíkur í gær og nótt?
Kjörkassinn
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.1.2009 kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. janúar 2009
Svanfríður vill stjórnarslit
Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, hvetur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, til að íhuga stjórnarslit og skoða með opnum hug tilboð Framsóknarflokksins um að verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna vantrausti. Þetta kemur fram í smáskilaboði sem bæjarstjórinn sendi í misgripum á símanúmer sem er keimlíkt númeri formannsins.
Svanfríður segir afar óheppilegt að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, tali fyrir hönd Samfylkingarinnar og vísi í samtal sitt við Ingibjörgu. Geir sagði við fréttamenn í Valhöll í gær að hann hefði rætt við Ingibjörgu og formennirnir væru ekki á því að slíta stjórnarsamstarfi flokkanna.(mbl.is)
Það er síaukinn þrýstingur á Ingibjörgu Sólrúnu að boðað verði til kosninga strax í vor. Það þýðir í raun,að stjórnarsamstarfi er lokið nema flokkarnir endurnýi samstarfssamning sinn að loknum kosningum.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. janúar 2009
Alþingi ræðir efnahagskreppuna
Þingfundur hefst á Alþingi klukkan 10:30 og mun forsætisráðherra, Geir H. Haarde, gefa skýrslu um stöðu efnahagsmála og horfur á vinnumarkaði. Allt virðist vera með kyrrum kjörum fyrir utan Alþingishúsið en mótmælin stóðu yfir langt fram eftir nóttu á Austurvelli. Þingfundur var felldur niður í gær en miklar truflanir urðu á störfum Alþingis á þriðjudag vegna mótmæla fyrir utan bygginguna.(mbl.is)
Þingmenn kölluðu eftir því að efnahagsmálin og efnahagskreppan yrðu rædd á alþingi og við því var orðið.Þjóðin kallar eftir betri úrræðum í efnahags-og fjármálum en sést hafa fram að þessu. Einkum er nauðsynlegt að gera strax ráðstafanir í þágu heimila og fyrirtækja í landinu.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 22. janúar 2009
Kvótakerfið hefur gengið sér til húðar.Kerfið felur í sér brot á mannréttindum
Það á að innkalla allar veiðiheimildir strax á árinu 2009.Síðan á að úthluta þeim aftur eftir nýjum reglum,þannig að allir sitji við sama borð.Þar koma ýmsar aðferðir til greina. Það mætti bjóða aflaheimildirnar upp og leyfa öllum að bjóða í þær.Einnig mætti hugsa sér að úthluta eftir ákveðnum reglum gegn gjaldi og gæta þess,að veiðiheimildir dreifðust út um allt land,þannig að sjávarbyggðir úti á landi yrðu ekki afskiptar og allir hefðu möguleika á að fá veiðiheimildir.Það kerfi,sem byggðist á því að nokkrir útvaldir fengju veiðiheimildirnar, gengur ekki lengur. Þetta kerfi felur í sér svo mikið misrétti,svo mikil brot á mannréttindum,að Mannréttindanefnd Sameinuði þjóðanna hefur úrskurðað, að það feli í sér mannréttindabrot og því verði að breyta.En ríkisstjórnin hefur ekkert gert til þess að breyta kerfinu enn sem komið er. Hún hefur aðeins sent bréf til Mannréttindanefndar Sþ. og sagt,að hún muni skoða breytingar síðar.Ætlun rikisstjórnarinnar mun vera að skipa nefnd til þess að endurskoða kvótakerfið og koma með einhverjar tillögur um breytingar. En mér vitanlega hefur þessi nefnd enn ekki verið skipuð.Seinagangur ríkisstjórnarinnar í þessu máli er slíkur, að hann leiðir í ljós,að áhugi á málinu er enginn..Þegar Ísland er sakað um mannréttindabrot af Sameinuðu þjóðunum tekur Ísland ekki meira mark á því en svo að málinu er nánast stungið undir stól. Svarbréfið, sem Ísland sendi Mannréttindanefnd Sþ. var svo loðið að það sagði nánast ekki neitt. Og það fylgdi enginn hugur máli eins og sést best á framkvæmd málsins.Sjávarútvegsráðherra telur greinilega, að ekkert liggi á.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 22. janúar 2009
"Samfylkingin getur ekki vikist undan þeirri ábyrgð að læra af reynslunni"
Skúli Helgason,framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar skrifar leiðara á heimasíðu Samfylkingarinnar.Honum farast m.a. svo orð:
Samfylkingin er jafnaðarmannaflokkur með skýrt umboð til breytinga á íslensku samfélagi. Um það vitnar stefna flokksins í Evrópumálum, atvinnumálum, efnahagsmálum, velferðarmálum og málefnum sem lúta að jafnrétti og lýðræði. Samfylkingin er í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum sem ásamt Framsóknarflokknum ber meginábyrgð á ásýnd og uppbyggingu samfélagsins á síðustu öld. Ríkisstjórn þessara tveggja flokka var mynduð í miðju góðæri en það eru hennar örlög að standa vaktina þegar heimskreppa skellur á þjóðinni, kreppa sem án efa er dýpri fyrir tilverknað stjórnvalda, bankastjórnenda, og auðmanna í atvinnulífinu á undanförnum árum. Þjóðin hefur kallað eftir breytingum, á yfirstjórn Seðlabanka og Fjármálaeftirlits og á yfirstjórn stjórnmálakerfisins. Sumir vilja ríkisstjórnina burt, margir vilja kosningar. Það er mikilvægt að viðurkenna að þessi krafa á fullan rétt á sér. Þjóðin hefur horft upp á kerfishrun, sem hefur afgerandi áhrif á hag heimila og fyrirtækja í landinu, en enginn hefur gengist við ábyrgð sinni með því að víkja úr vegi og rýma til fyrir nýjum einstaklingum sem geti hafið endurreisnarstarfið með hreint borð. Stjórnmálamenningin í landinu er þrándur í götu, það tíðkast ekki að segja af sér hér á landi nema fyrir liggi lögbrot eða sannanir um afglöp í starfi. Og jafnvel þó ráðherrar brjóti lög hafa þeir komist upp með að sitja áfram eins og dæmin sanna. Þetta er óeðlilegt ástand sem kallar á uppstokkun og endurmat. Við eigum gott orð yfir þetta í íslensku, siðbót. Siðbótar er þörf. Það verða stjórnmálaflokkarnir að skynja ef þeir vilja ekki losna úr tengslum við þjóðina.
Samfylkingunni er vandi á höndum. Hún getur haldið því fram, með réttu að hún beri takmarkaða ábyrgð á bankahruninu, því hún sé nýkomin til valda og flestar ef ekki allar þær forsendur innanlands sem leiddu ásamt heimskreppunni til bankahrunsins, hafi verið lagðar af fyrri ríkisstjórn. Gott og vel. Um það verður ekki felldur endanlegur dómur nú. Það er meðal annars verkefni Rannsóknanefndar Alþingis að komast að hinu sanna í þessu efni. En Samfylkingin getur ekki vikist undan þeirri ábyrgð að læra af reynslunni, og hún þarf að taka forystu við hreinsunarstarfið framundan.
Ég tek undir orð Skúla.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 22. janúar 2009
Mótmælin komin úr böndum.Eru ekki lengur friðsamleg
Tveir lögreglumenn eru alvarlega slasaðir eftir að hafa fengið í sig gangstéttarhellur í átökum við mótmælendur á Austurvelli í nótt.
Táragassprengjum verið beitt til að dreifa mannfjöldanum. Er þetta í fyrsta sinn sem lögreglan beitir táragasi síðan í mótmælunum á Austurvelli fyrir 60 árum. Einn mótmælandi var fluttur á slysadeild vegna táragassins.(mbl.is)
Ljóst er,að mótmælin eru nú alveg komin úr böndunum og ekki lengur friðsamleg.Er nauðsynlegt,að' skipuleggjendur mótmælanna,Raddir fólksins, reyni að koma skipulagi á mótmælin svo þau leiði ekki til ofbeldisverka eins og þegar hefur gerst.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 21. janúar 2009
Samfylkingin í Reykjavík vill kosningar i vor
Samfylkingarfélagið í Reykjavík hélt fjölsóttan fund í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöldi.Samþykkt var einróma á fundinum að kjósa ætti til alþingis næsta vor. Fundarefnið var stjórnarsamstarfið og frummælendur voru Lúðvík Bergvinsson alþingismaður og Mörður Árnason varaþingmaður.
Mótmælendur,sem voru á Austurvelli fluttu sig að Þjóðleikhúskjallaranum og voru fyrir utan með hávaða.Ekki truflaði það þó fundinn.Ályktun Samfylkingarinnar í Reykjavik um að rétt sé að kjósa í vor hlýtur að teljast talsverð pólitísk tíðindi. Einnig sú yfirlýsing Ágústs Ólafs Ágústssonar,að kosningar eigi að fara fram í vor.
Hins vegar sagði Geir Haarde forsætisráðherra í kastljósi í kvöld,að ekki væri rétt að kjósa fyrr en næsta vetur.Hann sagði,að ef kosið yrði í vor mundi það tefja endurreisnarstarfið.Ekki væri gott að hafa stjórnarkreppu í biðju björgunarstarfinu.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 21. janúar 2009
Líftími ríkisstjórnarinnar styttist
Mikill órói er nú í stjórnarflokkunum og vaxandi óánægja í Samfylkingunni með stjórnarsamstarfið. Talið er,að ríkisstjórnin verði að tilkynna næstu daga,að efnt verði til kosninga á árinu.Verði það ekki gert er hæltt við að ríkisstjórnin springi á næstunni.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. janúar 2009
Mótmælin komin á nýtt stig.Hvert verður svar stjórnvalda?
Mótmælt var langt fram á nótt á Austurvelli. Óslóartréð var fellt og sett á bálköst ásamt bekkjum, vörubrettum og ýmsu lauslegu. Lögregla beitti gasi á mótmælendur þegar leið á nóttina.
Talið er að 1500-2000 manns hafi verið framan við Alþingishúsið framan af kvöldi. Búið var að kveikja í bálkesti framan við inngang þinghússins. Þar léku sumir á hljóðfæri, aðrir börðu málmbökkum eða spýtum í ljósastaura og bekki. Tugir lögreglumanna í óeirðabúningum vörðu þinghúsið en héldu sig til hlés. Enn aðrir héldu sig örlítið frá þinghúsinu og fylgdust með. Talsverð spenna var í loftinu. Mótmælendur kröfðust breytinga; margir kröfðust kosninga.
Um miðnætti var bensíni hellt á Óslóartréð og það fellt. Stór hópur stóð í kringum tréð en enginn slasaðist. Tréð fór svo á bálköst framan við þinghúsið. Þangað höfðu sumir mótmælendur líka borið vörubretti og alls kyns annan eldsmat. Eftir miðnætti fækkaði mótmælendum mjög. Þá var farið að bera garðbekki á bálið. Um klukkan tvö vildi lögregla greinilega binda enda á mótmælin en þá stigu tugir lögreglumanna fram og slökktu eldinn.
Mótmælendur létu ekki þar við sitja, færðu sig um set og kveiktu eld að nýju, framan við styttuna af Jóni Sigurðssyni. Lögregla gerði ítrekaðar tilraunir til að stöðva mótmælendur. Þeir stigu nokkrum sinnum fram fylktu liði, börðu skildi sína, slökktu eldinn og hörfuðu aftur að þinghúsinu. Lögreglan beitti gasi og kylfum nokkrum sinnum. En mótmælendur drógu jafnharðan fleiri bekki og ruslatunnur að styttunni og kveiktu í. Sumir kveiktu í flugeldum.
Þegar leið á þriðja tímann skipti lögregla sér í smærri hópa og reyndi að dreifa mótmælendum sem þá voru ríflega 100 á að giska. Þá skarst í odda með mótmælendum og lögreglu sem beitti gasi og handtók fjóra mótmælendur. Einn var kærður fyrir að hafa ráðist á lögreglumann og félagi hans fyrir að reyna að frelsa hann. Á mótmælendum mátti skilja að haldið verði áfram í dag. (mbl.is)
Ljóst er,að mótmælin eru komin á nýtt stig.Búast má við,að þetta haldi svona áfram,þar til stjórnvöld svara með einhverjum raunhæfum aðgerðum,kosningum eða stórum breytingum á stjórninni,FME og Seðlabanka.
Björgvin Guðmundsson