Föstudagur, 23. maí 2008
Þingvallastjórnin 1 árs
Eitt ár er í dag liðið frá undirritun stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar en ríkisstjórn þessara flokka tók við 24. maí 2007. Hefur börnum á leikskólanum Tjarnarborg m.a. verið boðið í ráðherrabústaðinn í dag af þessu tilefni.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokks, gekk á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á Bessastöðum að morgni 23. maí og tilkynnti honum að ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar hafi verið mynduð. Kvöldið áður höfðu flokksráð Sjálfstæðisflokks og flokksstjórn Samfylkingar samþykkt stjórnarmyndunina og ráðherraefni flokksins.
Þau Geir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, kynntu síðan nýja ríkisstjórn og stefnuyfirlýsingu hennar á blaðamannafundi á Þingvöllum laust fyrir hádegi þennan dag. Daginn eftir tók ríkisstjórnin við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum.
Mér finnst frekar rýr árangur ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum á 1.árinu.Sérstaklega finnst mér lítið hafa gerst í málefnum lífeyrisþega. Hið eina sem hefur gerst í málefnum aldraðra og öryrkja er breyting á tekjutengingum.Dregið hefur verið úr þeim. En lífeyrir aldraðra hefur ekkert hækkað á heilu ári.Lífeyrir aldraðra sem hlutfall af lágmarkslaunum hefur minnkað eða úr 100% árið 2007 í 93,74% nú 2008. Ég geri ráð fyrir,að hér hafi strandað á Sjálfstæðisflokknum,þar eð Jóhanna Sigurðardóttir tryggingamálaráðherra vill bæta kjör lífeyrisþega. En ef hér verður ekki breyting á og Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir ekki myndarlegar kjarabætur til handa lífeyrisþegum hefur Samfylkingin ekkert í þessari ríkisstjórn að gera.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ríkisstjórnin ársgömul |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 23. maí 2008
Bankinn hleypur frá verkefninu
Eins og sagt var frá í gær hefur eignarhaldsfélagið Fasteign hf. átt í erfiðleikum með að fá fjármagn fyrir nýframkvæmdum, en félagið er meðal annars í eigu tíu sveitarfélaga og Glitnis banka. Hefur því verið lögð fram sú tillaga á fundi bæjarstjórnar Sandgerðis að bærinn taki lán og framláni það Fasteign, til að félagið geti hafið stækkun grunnskóla bæjarins en leigt bænum húsnæðið.
Svipuð hugmynd hefur verið rædd á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar, en í fundargerð frá 14. febrúar sl. er bæjarstjóra falið að vinna að stofnun nýs félags í eigu nokkurra sveitarfélaga, sem hefur þann tilgang að opna möguleika eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. á lánsfé hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Fasteign var stofnað af Reykjanesbæ og Glitni árið 2003 og keypti þá allar opinberar byggingar í bænum, en bærinn leigir þær af félaginu. Rökin fyrir stofnun félagsins voru þau að Fasteign ætti auðveldara með að fá lán og gæti fengið þau á betri kjörum en Reykjanesbær, segir Guðbrandur. Nú eru þau rök fokin út í veður og vind.
Eins og staðan er núna er best að snúa við og að veitarfelögin eignist aftur skóla og aðrar eignir sem seldar voru. Þessi braskleið er komin í þrot.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Bankinn laus við alla ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 23. maí 2008
Eftirlaunaósóminn er blettur á þinginu
Engin frumvarpsdrög hafa verið sýnd þingmönnum, eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lýsti því yfir að lögunum yrði breytt. Þingmál Valgerðar Bjarnadóttur, Samfylkingu, sefur enn í allsherjarnefnd, en það gengur lengra en þær tillögur sem Ingibjörg Sólrún og Geir H. Haarde hafa ýjað að síðustu vikur.
Ekki eru miklar líkur á að þetta mál verði afgreitt fyrir þinghlé úr því að frumvarp er enn ekki komið fram. Ljóst er,að ekki er lögð nægilega mikil áhersla á málið. Eftirlaunalögin,sem tryggja ráðherrum,þingmönnum og dómurum óeðlilega mikil eftirlaun miðað við það sem aðrir landsmenn njóta er ljótur blettur á þinginu. Ekki verður séð ,að þingið nái að þvo þann blett af sér fyrir sumarleyfi.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ríkisstjórnin enn undir eftirlaunafeldinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 23. maí 2008
Jóhanna ánægð með velferðarmálin
Samfylkingin var með útvarpsþátt í gær,öðru sinni á Sögu.Meðal gesta í þættinum var Jóhanna Sigurðardóttir,ráðherra.Hún var spurð um velferðarmálin. Hún sagði,að margar velferðaráherslur hefðu komist inn í stjórnarsáttmálann.Strax á 1.viku stjórnarinnar hefði verið samþykkt aðgerðaráætlun fyrir börn og ungmenni og í kjölfarið ákveðnar umbætur í málefnum langveikra barna. Varðandi lífeyrismálin sagði hún þetta: Makatenging hefur verið felld niður og frítekjumark vegna atvinnutekna hækkað.Það var 25 þús. kr. á mánuði en hækkar í 100 þús. á mánuði ( 1.júlí n.k.)Þeir ,sem ekkert fá úr lífeyrissjóði munu fá 25 þús. á mánuði brúttó úr lífeyrissjóði ( 1.ágúst) Hætt verður að skerða tryggingabætur,þegar séreignalífeyrissparnaður er tekinn út. Tekur gildi um næstu áramót.
Nokkrir hlustendur hringu í Jóhönnu. Þar á meðal hringdi öryrki vegna öryrkjadómsins fræga. Hann spurði hvort ekki væri unnt að fá leiðréttingu til baka vegna þess sem, ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefði haft af öryrkjum. Jóhanna taldi,að erfitt eða ókleift væri að fá leiðréttingar til baka.
Björgvin Guðmundsson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. maí 2008
Ísland í úrslit í söngvakeppninni
Framlag Íslands í seinni undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem fram fór í gærkvöld, er komið áfram áfram í úrslitakeppnina sem fram fer á laugardag. Þau Regína Ósk og Friðrik Ómar stóðu sig með stakri prýði á sviðinu í Belgrad og sungu sig inn í lokakeppnina.
Alls komust 10 þjóðir áfram en auk Íslands komst Svíþjóð, Danmörk, Króatía, Úkraína, Albanía, Georgía, Lettland, Tyrkland og Portúgal í úrslitin.
Alls munu 25 þjóðir taka þátt á laugardag. Athygli vekur að allar Norðurlandaþjóðirnar komust áfram í ár, en Norðmenn og Finnar komust áfram úr fyrri undankeppninni sem fram fór í Belgrad á þriðjudag.
Það er ánægjulegt,að íslenska lagið skyldi komast áfram. Ísland hefur setið á botninum svo lengi,að Íslendingar voru orðnir verulega svekktir á því. Raddir um að hætta þátttöku í keppninni voru farnar að gerast háværar.Annars er það íhugunarefni hvernig þessi keppni er að þróast. Keppnin er að litlu leyti söngvakeppni. Hún hefur breytst í " show" og meira lagt upp úr dansi og sýningum á sviði en söng.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ísland áfram í Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Ferðakostnaður Geirs og Ingibjargar Sólrúnar 40 milljónir
Ferðakostnaður ráðherranna allra var 95 millj. kr. á 1.ári ríkisstjórnarinnar.Þetta kom fram á alþingi í dag í svari við fyrirspurn.Mestur var ferðakostnaðurinn hjá forsætisráðherra og utanríkisráðherra eða 40 millj. ,22 millj. hjá utanríkisráðherra og 18 millj. hjá forsætisráðherra.Hjá öðrum ráðherrum var ferðakostnaður minni
Björgvin Guðmundsson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir
Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, segir að ótvíræð merki séu um að það sé farið að draga úr vexti eftirspurnar. Hins vegar sjást enn ekki skýr merki um samdrátt á vinnumarkaði. Þetta kom fram í máli Davíðs er hann skýrði forsendur fyrir ákvörðun bankastjórnar að halda stýrivöxtum óbreyttum í 15,50%.
Væntanlega verður ákvörðun Seðlabankans um óbreytta vexti upphafi þess að vextir lækki. Þeir eru orðnir alltof háir hér og þungbærir heimilum og fyrirtækjum. Ekki gaf Seðlabankinn þó neitt undir fótinn með að að vextir yrðu lækkaðir við næstu vaxtabreytingu bankans.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ótvíræð merki um að eftirspurn er að dragast saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Almenni lífeyrissjóðurinn 100 milljarðar
Eignir Almenna lífeyrissjóðurinn fóru í maí yfir 100 milljarða króna. Heildareignir sjóðsins voru 92,7 milljarðar í ársbyrjun og hefur sjóðurinn því vaxið um 8% á árinu.
Frá því að Lífeyrissjóður lækna og Almenni lífeyrissjóðurinn sameinuðust í ársbyrjun 2006 hafa eignir sjóðsins vaxið um 21% á ári að jafnaði. Almenni lífeyrissjóðurinn er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins.
Það er gífurleg eign fólgin í öllum lífeyrissjóðunum og það þarf að passa vel upp á þá.Ég tel ekki koma til greina ,að lífeyrissjóðirnur fari að lána bönkunum hluta af hlutabréfaeign sinni. Bankarmir geta sjálfir komið sér út úr því klúðri sem þeir hafa komið sér í.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Eignir Almenna lífeyrissjóðsins yfir 100 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Mestu skiptir hvað er í launaumslaginu
Hvað er það sem skiptir mestu máli í sambandi við lífeyri aldraðra og öryrkja? Jú,það er upphæð lífeyrisins.Það sem er í launaumslaginu skiptir mestu máli fyrir lífeyrisþegann en ekki hitt hvað það kostar ríkissjóð mikið að greiða öldruðum og öryrkjum lífeyri. Það er sjálfsagt fyrir stjónmálamennina að halda því til haga hvers kostnaðurinn er fyrir ríkissjóð. En þeir hefðu átt að athuga það atriði betur áður en þeir gáfu kosningaloforðin. Aldraðir hafa ekkert gagn af því að heyra að lífeyrisgreiðslur almannatrygginga kosti svo og svo marga milljarða ef upphæðin í launaumslaginu minnkar að verðgildi.Það þýðir ekkert að veifa milljörðum ( kostnaður ríkissjóðs) framan í lífeyrisþega ef raungildi lífeyris þeirra lækkar. Lífeyrir aldraðra frá TR er 93,74% af lágmarkslaunum á þessu ári en var 100% sl. ár. Á sama tíma og þróuninin er þessi skiptir engu hvað milljarðarnir eru margir.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 22. maí 2008