Guðlaugur Þór og Geir Haarde þrýstu á Villa

Atburðarásin var hröð undir lok síðustu viku, áður en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tilkynnti ákvörðun sína um að hætta sem oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn.

Vilhjálmur hafði samráð við fjölskyldu og samstarfsmenn, en í lykilhlutverki voru Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi og formaður Varðar. Þau hafa stutt Vilhjálm, en ráðlögðu honum að draga ákvörðunina ekki lengur. Þá var hann undir „óbeinum“ þrýstingi frá formanni flokksins og stuðningsmönnum, sem „höfðu hagsmuni flokksins í huga, en vildu líka hjálpa honum út úr þessu“.

En Vilhjálmur tók af skarið. Heyra má að spilað hafi inn í að hann giftist Guðrúnu Kristjánsdóttur í gær og hafi lengi haft augastað á þessum degi.

Það kemur ekki á óvart,að flokksforusta Sjálfstæðisflokksins  hafi þrýst  á Vilhjálm  með að taka

 

ákvörðun um hver ætti að verða borgarstjóri,þegar Ólafur F. hættir í mars n.k. Í raun þýðir þetta að þrýst var á Vilhjálm að víkja til  hliðar þar eð búið var að gera hann að blóraböggli fyrir öllum óförum

Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.Vilhjálmi var einum kennt um slakt gengi flokksins í skoðanakönnunum enda þótt allir borgarfulltrúar flokksins bæru þar ábyrgð.

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Formaður og samstarfsmenn þrýstu á um ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn Íslands hafnar áliti Mannréttindanefndar Sþ.!

Stjórnvöld hafna kröfu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um að greiða tveimur íslenskum sjómönnum bætur. Vísað er í gagnstæðan úrskurð Hæstaréttar og því eigi kröfur um skaðabætur ekki stoð í landsrétti. Þá er því hafnað að íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu verði umbylt í einu vetfangi, en breytingar á því boðaðar. Svar til nefndarinnar fór í póst um helgina.

Nefndin hafði úrskurðað að íslenskum stjórnvöldum bæri að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið og greiða tveimur sjómönnum bætur fyrir að njóta ekki jafnræðis við kvótaúthlutun. Nefndin er alþjóðleg stofnun og Ísland hefur skuldbundið sig til að hlíta úrskurðum hennar.

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að hann sé þess fullviss að nefndin fallist á útskýringar íslenskra stjórnvalda. „Það er ekki hægt að búast við því að á sex mánuðum komum við fram með fullmótaðar hugmyndir um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfi sem hefur verið við lýði í um aldarfjórðung," segir Einar.

Hann segir að í svarinu hafi verið vísað í stjórnarsáttmála þar sem segir að gerð verði sérstök athugun á reynslunni af aflamarkskerfinu og áhrifum þess á þróun byggða. Sú athugun fari í gang á næstu vikum og verði lokið á kjörtímabilinu.

„Ég vil hafa áhrif á það hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið mun líta út til framtíðar og tel mikilvægt að á því verði ekki kollsteypa, heldur verði því leyft að þróast. Ég mun því beita mér fyrir því að þeirri vinnu verði lokið á kjörtímabilinu."

Einar segir ítarlega lögfræðilega greinargerð hafa fylgt svarinu og sé það til marks um hve alvarlega íslensk stjórnvöld hafi tekið málið.
„Ég átti náið samráð við forystumenn stjórnarflokkanna og við þrjú vorum sammála um það álit sem ég sendi mannréttindanefndinni," segir Einar.- 

Þetta svar sjávarútvegsráðherra er til háborinnar skammar. Þetta er ekkert annað en kattarþvottur. Vísun í stjórnarsáttmála þess efnis,að athugað verði hvaða áhrif kvótakerfið hafi haft á dreifðar byggðir landsins leiðir í ljós,að sjávarútvegsráðherra er engin alvara með raunverulega endurskoðun og uppstokkun kvótakerfisins.Hann boðar breytingar á kerfinu en þær eru einhvers staðar inni í framtíðinni. Mér þykir ólíklegt,að mannréttindanefndin láti þessi svör duga. Ég fæ ekki séð að neitt komi fram í svarinu um að ísenska ríkið ætli að láta af mannréttindabrotum við framkvæmd kvótakerfisins.

Greinilega hefur Samfylkingin orðið undir í ríkisstjórninni í þessu máli. Svarið er í engu samræmi við álit sjávarútvegsnefndar Samfylkingarinnar.

 

Björgvin Guðmundsson



Stærsti þjóðgarður Evrópu stofnsettur á Íslandi

Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðar fór fram við formlega athöfn í Skaftafelli í dag.  Að sögn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, er um stóran áfanga í náttúruvernd á Íslandi að ræða.   Þórunn segir stofnun þjóðgarðsins hafa mikil og margvísleg áhrif og renna styrkum stoðum undir atvinnu í ferðaþjónustu í þjóðgarðinum og á öllum nærsvæðum hans.

 

 

„Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs styrkir byggð allt í kringum þjóðgarðinn og kemur Íslandi enn betur á kortið sem áhugaverðum stað fyrir erlenda ferðamenn, sem koma hingað fyrst og fremst til þess að skoða náttúruna," segir Þórunn í samtali við mbl.is

Þórunn segir stærð og fjölbreytileika þjóðgarðsins bjóða upp á ólíka kosti í útivist og ferðamennsku.

„Ég er þess fullviss að Vatnajökulsþjóðgarður, sem stærsti þjóðgarður í Evrópu og einstakur á heimsvísu, muni hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.  Þjóðgarðurinn er að sjálfsögðu tæki til þess að vernda náttúruna og stuðla að sjálfbærri nýtingu, til langs tíma litið mun þessi þjóðgarður skila gríðarmiklum tekjum í ríkiskassann í formi gjaldeyristekna," segir Þórunn, og bætir við að straumur ferðamanna aukist jafnt og þétt til landsins, og mikilvægt sé fyrir umhverfið og byggðirnar í landinu að straumi ferðamanna sé stýrt um allt landið.

Það er mikið fagnaðarefni,að Vatnajökulsþjóðgarður skuli nú hafa verið stofnsettur.Verndun náttúru Íslands er mikilvæg og nauðsynlegt er að raska ekki náttúru landsins meira en brýna nauðsyn ber til.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


mbl.is „Stór áfangi í náttúruvernd"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig mun Hanna Birna reynast?

Sjálfstæðisflokkurinn hefur skipt um leiðtoga  í  borgarstjórn og ekki í fyrsta sinn.Það hafa lengi  verið  erfiðleikar hjá flokknum með val á   leiðtoga. Minna má á Árna Sigfússon,Markús Örn Antonsson,Björn Bjarnason og Ingu Jónu Þórðardóttur. Segja má,að þetta hafi allt verið tilraunaleiðtogar,sem ekki voru lengi við völd. Framtíðin leiðir í ljós hvort Hanna Birna verður tilraunaleiðtogi eða ekki.

Hanna Birna hefur ýmislegt í það að vera leiðtogi. Hún er ákveðin og fylgin sér og virðist vita hvað hún vill.Það er kostur. Hins vegar hefur hún ekki mikinn "karisma".Framkoma hennar laðar ekki að sér mikið fylgi. En það getur staðið  til bóta.  En sjálfstæðismenn virðast telja,að öll mál leysist hjá þeim með því að sparka Villa og setja Hönnu Birnu í leiðtogasæti í staðinn. En svo einfalt er það ekki.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins allir,þar á meðal Hanna Birna, bera ábyrgð á því klúðri,sem flokkurinn hefur komið sér í.Rei málið var stórt klúður en engu minna klúður er myndun  meirihluta í borgarstjórn með Ólafi F.Magnússyni.Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn beinlínis keypti Ólaf F, með borgarstjórastólnum.Það er einstakt í stjórnmálasögunni og Sjálfstæðisflokkurinn er ekki búinn ð bíta úr nálinni með það. Ég hygg,að fylgistap íhaldsins stafi fyrst og fremst af þessu "valdaráni" og meira  en af Rei málinu. Hanna Birna ber jafnmikla ábyrgð á "valdaráninu" og Vilhjálmur.

 

Björgvin Guðmundsson


Háskólasjúkrahúsi ekki frestað

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir ekki inni í myndinni að fresta byggingu nýja háskólasjúkrahússins, líkt og haft var eftir Gunnari Svavarssyni, formanni fjárlaganefndar í Morgunblaðinu í morgun.

„Þetta eru bara hugleiðingar Gunnars,“ segir Guðlaugur Þór og bætir við að það sé ekki vaninn að ræða hugmyndir manna um fjárlög fyrr en þau liggja endanlega fyrir. „Að mínu mati kemur ekki til greina að leggja málin upp með þeim hætti sem hann gerir. Það liggur alveg fyrir að það þarf að mæta hinum breyttu aðstæðum í efnahagslífinu, en í mínum huga er ekkert sem kallar á það að breyta í grundvallaratriðum áætlunum varðandi háskólaspítalann.“

Fjármálaráðuneytið spáir 19,6 milljarða kr. halla á ríkissjóði 2009 og 15 2010. Haft var eftir formanni fjárlaganefndar í  Morgunlaðinu í morgun að verið væri að skoða hvar tækifæri væru í ríkisrekstrinum til hagræðingar.

Vert er að geta þess að Kristján Þór Júlíusson, flokksbróðir heilbrigðisráðherra og varaformaður fjárlaganefndar, sagði í samtali við Fréttastofu Útvarpsins í dag að skera yrði niður útgjöld og eðlilegt væri að líta í því sambandi til verkefna eins og háskólasjúkrahússins og Sundabrautar. Þau væru ekki heilagri en önnur verkefni.

´Ég mundi ekki gráta það þó háskólasjúkrahúsi yrði frestað. Raunar hefi ég miklar efasemdir um að skynsamlegt sé að byggja stórt nýtt háskólasjukrahús eins og hugmyndir eru uppi um.Ég tel skynsamlegra að byggja hjúkrunarheimili fyrir aldraða og langlegusjuklinga til þess að létta af núverandi háskólasjúkrahúsi en alltaf liggja svo og svo margir slíkir sjúklingar þar sem gætu verið á hjúkrunarheimili.Ef talið er nauðsynlegt að byggja nýjan spítala   tel ég,að það ætti að byggja hann í Fossvogi,þar sem ekki eru eins mikil þrengsli og við Hringbraut.Og það ætti þá ekki að byggja eins stórt og ráðgert er nú.

Björgvin Guðmundsson

 

Fara til baka 

´


mbl.is Frestun ekki inni í myndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary hefur dregið sig í hlé

Barack Obama, forsetaefni Demókrataflokksins vestra, segist djúpt snortinn yfir stuðningsyfirlýsingu Hillary Clinton. Hann hrósaði henni í hástert í gærkvöld, sagði að hún hefði brotið nýtt land til ræktunar í stjórnmálum Bandaríkjanna. Obama sagði það brautruðningi Clinton að þakka að dætur hans ættu kost á að feta sig til æðstu embætta, kysu þær að helga sig stjórnmálum og almannaþjónustu. Clinton hefði talið kjark í milljónir alþýðumanna í Bandaríkjunum með fordæmi sínu, krafti og hugrekki. Þá væri hann þakklátur henni fyrir að gefa kost á sér í baráttuna fyrir tímabærum breytingum í Bandaríkjunum

Hillary Clinton tilkynnti í gær,að hún hefði dregið sig í hlé i baráttunni fyrir útnefningu forsetaframbjóðanda hjá demokrötum.Jafnframt óskaði hún Obama til hamingju með sigurinn í þessu kapphlaupi.Hillary hlaut   18 millj. atkvæða í forkosningunum en Obama 17 millj. atkvæða.Miklar vangaveltur eru vestra um það hvað fór úrskeiðis hjá Hillary. Sumir telja,að Bill Clinton hafi spillt fyrir.M.a. er nefnt,að Hillary hafi lagt of mikla áherslu á nauðsyn reynslu en of litla áherslu a breytingar.Úr þessu fæst aldrei skorið.

 

Björgvin Guðmundsson


Við hvað á að miða lífeyri aldraðra?

Nú situr að störfum endurskoðunarnefnd laga um almannatryggingar.Þeirri nefnd var einnig falið að semja svokallað lágmarksframfærsluviðmið fyrir lífeyrir aldraðra og öryrkja.Nefndin á að skila áliti um það atriði um næstu mánaðamót,1.júlí.

Samtök aldraðra,Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavík, hafa ályktað um viðmið fyrir lífeyri eldri borgara og þeirra áliti hefur verið komið á framfæri við endurskoðunarnefndina.Samtök aldraðra telja,að miða eigi lífeyrinn við neysluútgjöld eins og þau koma fram í neyslukönnun Hagstofu Íslands. Hagstofan kannar reglulega meðaltals neysluútgjöld landsmanna. Síðasta könnun var birt í desember sl. Samkvæmt henni eru meðaltals neysluútgjöl einhleypinga 226 þús. á manuði fyrir utan skarra. Með sköttum er þetta rúmlega 300 þús. kr. á mánuði.Framfærslukostnaður og neyslutgjöld eldri borgara er ekki  ððruvísi en hjá  öðrum í þjóðfélaginu.Ef eitthvað er þá er framfærslukostnaður eldri borgara hærri en annarra. T.d. þurfa eldri borgarar að eyða mun meiri fjármunum en aðrir í læknishjálp og lyfjakostnað.

Væntanlega mun endurskoðunarnefnd laga um almannatryggingar ekki reyna að búa til eitthvað fátækraviðmið til  þess að unnt verði að þrýsta lífeyrinum niður.Til er hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna eitthvað viðmið yfir útgjöld,sem ætluð eru til þess að skrimta frá degi til dags.Við þurfum ekki slíkt  viðmið. Við þurfum viðmið sem byggist á raunverulegum útgjöldum og eðlilegri framfærslu þannig að unnt verði að ákveða sanngjarnan og eðlilegan lífeyri,sem geri eldri borgurum kleift að lifa með reisn.

 

Björgvin Guðmundsson


Segja framhaldsskólakennarar upp?

Það er mjög þungt hljóð í okkar fólki. Mönnum finnst allt of mikill hægagangur í samningaviðræðum,“segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, en trúnaðarmenn félagsins funduðu nýverið til að fara yfir stöðuna í kjarasamningum þess við ríkið. 

Að mati Aðalheiðar ríður á að samið verði sem allra fyrst, því það megi ekki gerast að ósamið verði þegar skólarnir hefjist í haust því það gæti haft alvarleg áhrif. Bendir hún á að verði staðan óbreytt í haust þá óttist hún að kennarar fari að horfa í kringum sig eftir betur launuðum störfum.

iVið upplifum ákveðið andvaraleysi frá ríkisvaldinu gagnvart launakjörunum í framhaldsskólunum og viljaleysi til þess að bregðast við stöðunni. Það lýsir sér í því að við höfum dregist aftur úr miðað við samanburðarhópa í BHM. Kennarar hafa ekki notið góðs af þenslunni sem ríkt hefur að undanförnu, þannig að eins og staðan er í dag eru framhaldsskólarnir því miður engan veginn samkeppnishæfir launalega séð um gott fólk á vinnumarkaði,“ segir Aðalheiður og bendir á að nokkuð beri á því að ungum, nýútskrifuðum kennurum bregði þegar þeir heyri hver launakjör byrjenda eru og freisti þess að leita í önnur betur launuð störf.

Þetta er alvarlegt mál.Það er búið að semja við grunnskólakennara en eftir að semja við framhaldsskólakennara.Ef  framhaldsskólakennarar segja upp og hætta störfum í haust er mikil hætta á ferðum. Menntun skiptir mestu fyrir börnin okkar.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Fara kennarar í haust?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hanna Birna tekur við af Vilhjálmi

Hanna Birna Kristjánsdóttir verður borgarstjóri í Reykjavík á næsta ári, þegar Sjálfstæðisflokkurinn skipar í embættið að nýju. Þetta hefur verið ákveðið í borgarstjórnarflokki sjálfstæðsmanna. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður að öllum líkindum forseti borgarstjórnar. Það var hans tillaga að Hanna Birna tæki við borgarstjóraembættinu.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna var borgarstjóri framan af kjörtímabilinu, á meðan sjálfstæðismenn og framsóknarmenn störfuðu saman í meirihluta í borgarstjórn. Ólafur F. Magnússon tók við embættinu þegar sjálfstæðsmenn og F-listi mynduðu meirihluta í upphafi árs en fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sest aftur í borgarstjórastólinn á næsta ári.

Hanna Birna er nú forseti borgarstjórnar og Vilhjálmur Þ. formaður borgarráðs,  þau skipti senn á þeim embættum og Hanna Birna sest svo í stól borgarstjóra á næsta ári, sem fyrr segir, þegar Ólafur F. Magnússon lætur af því embætti.

Þetta eru talsverðar fréttir enda þótt þær komi ekki alveg á óvart,þar eð Hanna Birna var í  öðru sæti á D-listanum í síðustu kosningum og það hefur legið í loftinu ,að Vilhjálmur mundi ekki taka sæti borgarstjóra. Lágt gengi Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum að undanförnu hefur  þrýst á Vilhjálm að rýma fyrir Hönnu Birnu. Trúlega muni þessi breyting eitthvað hressa upp á D-listann en ekki  er að búast við mikilli uppaveiflu.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Hanna Birna verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna hjálpar þolendum náttúruhamfara

  • .

    Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, setti í gær að tillögu stjórnar Íbúðalánasjóðs reglur til að aðstoða þolendur náttúruhamfara með frestun eða skuldbreytingu á lánum sjóðsins.

    Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneyti segir að reglurnar hafi verið settar í kjölfar Suðurlandsskjálftans til að styðja við bakið á þeim sem urðu fyrir tjóni af völdum hans og koma í veg fyrir greiðsluerfiðleika þeirra.  Skilyrði fyrir heimildinni er að tjón á íbúð viðkomandi af völdum náttúruhamfara hafi verið tilkynnt til vátryggjanda eða Viðlagatryggingar Íslands.

    Þá kemur fram að umsóknir skuli senda Íbúðalánasjóði sem tekur ákvörðun um fyrirgreiðslu á grundvelli reglugerðarinnar og afgreiðir umsóknir. Með umsókn skal fylgja staðfesting frá vátryggingafélagi eða viðlagatryggingu um að tjón umsækjanda á íbúð hans hafi verið tilkynnt.

    Íbúðalánasjóður veitir þeim sem ráðast í viðgerðir eða endurbyggingu íbúðarhúsnæðis heimild til að fá tryggingarfé til ráðstöfunar gegn bankaábyrgð fyrir fjárhæð áhvílandi lána sjóðsins meðan á viðgerð eða endurbyggingu stendur.  Jafnframt getur Íbúðalánasjóður heimilað eigendum íbúða sem hafa skemmst að flytja lán sjóðsins yfir á aðra íbúð í sinni eigu samkvæmt reglum sjóðsins um lánveitingar.

  • Jóhanna á þakkir skilið fyrir að bregðast svo fljótt við í máli þessu sem raun ber vitni. Þetta getur skipt sköpum fyrir marga þolendur náttúruhamfara.

  •  

  • Björgvin Guðmundsson

    Fara til baka 


mbl.is Aðstoð við þolendur náttúruhamfara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband