Sunnudagur, 21. júní 2009
400 mótmæltu Ice save á Austurvelli
Samtökin Raddir fólksins undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu stóðu fyrir mótmælunum. Sinnuleysi stjórnvalda í málefnum heimila og fyrirtækja var mótmælt auk þess sem þess var krafist að Icesave samningurinn verði stöðvaður og að dómskerfið taki á hvítflibbaglæpamönnum.
Formaður aðgerðarhóps öryrkja boðar til áframhaldandi mótmæla.
Nokkrir mótmælenda kveiktu í flugeldatertu, með tilheyrandi sprengingum, en mótmælin voru að öðru leyti friðsamlega.Annar mótmælafundur hefur verið boðaður á laugardaginn eftir viku þó að svo geti farið að blásið verði til fundar í miðri næstu viku.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 20. júní 2009
Sendiherrum verður fækkað
Ákveðið hefur verið að selja embættisbústaði í New York, London, Washington, Ottawa og Tókíó og andvirði þeirra lagt í ríkissjóð. Þá mun fækka nokkuð í hópi sendiherra og nýir verða ekki skipaðir í staðinn um sinn.
Þetta kemur fram á heimasíðu utanríkisráðuneytisins þar sem boðaðar eru nýjar sparnaðartillögur á þessu ári og því næsta.
Þar kemur fram að sendiskrifstofum verði enn fækkað á þessu ári og því næsta jafnframt því sem starfliði verði fækkað. Þá verði búið að loka, eða taka ákvarðanir um lokun á sjö sendiskrifstofum á árinu. (mbl.is)
Það er eðlilegt,að utanríkisráðuneytið taki þátt í sparnaðaraðgerðum ríkisstjórnarinnar.Ljóst er þó,að það verður einkum á næsta ári,sem sparnaðaraðgerðir í utanríkisráðuneytiunu fara að koma til framkvæmda.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 20. júní 2009
Almannatryggingar skornar niður um 3,1 milljarð í ár
Skera á almannatryggingar niður um 3,1 milljarð á yfirstandandi ári,þar af elli-og örorkulífeyri um 1,8 milljarð. Vegaframkvæmdir á að skera niður um 3,5 milljarða en niðurskurður annarra ráðuneyta í ár er lítill sem enginn. Síðan á að skera niður hjá öllum ráðuneytum næsta ár.
Hvers vegna er fyrst ráðist á almannatryggingarnar?Hvers vegna er ráðist að kjörum aldraðra og öryrkja?Var ekki búið að lofa því að stjórnin ætlaði að standa vörð um velferðarkerfið? Skipta loforð stjórnmálamanna engu máli? Ég er öskureiður yfir þessari framkomu ríkisstjórnar félagshyggjuaflanna við aldraða og öryrkja og við almannatryggingarnar yfirleitt.Ég krefst þess,að þetta verði leiðrétt.Ég krefst þess,að kjaraskerðing aldraðra og öryrkja verði dregin til baka.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 20. júní 2009
Íhald og Framsókn á móti fyrningarleið
Flestir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að ríkisstjórninni verði falið að lýsa því yfir, að horfið verði frá fyrirhugaðri fyrningu aflaheimilda sem getið er um í verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar.
Illugi Gunnarsson er fyrsti flutningsamaður tillögunnar. Í greinargerð segir að sjávarútvegsráðherra hafi í byrjun júní sent bréf til þingflokka og óskað eftir tilnefningu þeirra í starfshóp sem ætlað sé að endurskoða fiskveiðilöggjöfina. Jafnframt hafi ýmsum hagsmunasamtökum í sjávarútvegi verið boðið að tilnefna fulltrúa í starfshópinn.
Í bréfi ráðherra komi fram að hópnum sé ætlað það hlutverk að láta vinna nauðsynlegar greiningar og setji að því loknu fram valkosti um leiðir til úrbóta þannig að greininni séu sköpuð góð rekstrarskilyrði til langs tíma, en jafnframt að sátt náist um stjórn fiskveiða. Starfshópi þessum sé ætlað að skila álitsgerð fyrir 1. nóvember nk. og á grundvelli tillagna hópsins muni ráðherra ákveða tilhögun við endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar.
Í ljósi þessa er nauðsynlegt að hafa í huga að ein af forsendum þess að slíkt endurmat geti farið fram er að ekki sé fyrir fram búið að ákveða hver niðurstaðan skuli vera. Því er nauðsynlegt að ríkisstjórnin lýsi yfir því að horfið verði frá svokallaðri fyrningarleið í sjávarútvegi. Standi ákvörðun um fyrningu aflaheimilda óhögguð má ljóst vera að hverfandi líkur eru á því að hægt sé að ná sátt um stjórnkerfi fiskveiða," segir m.a. í greinargerðinni.(mbl.is)
Þetta er skrýtin þál. Tillagan er um að ríkisstjórni falli frá fyrningarleiðinni. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina. Fyrningarleiðin verður farin. Hins vegar mun ríkisstjórnin hafa samráð við útgerðarmenn um framkvæmd. hennar.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 19. júní 2009
Biskup harmar sársauka konunnar!
Sigrún átti fund með Kirkjuráði í dag, ásamt fjölskyldu sinni, til að greina frá sárri reynslu sinni sem hún varð fyrir af hálfu sr. Ólafs Skúlasonar er hún leitaði til hans sem sóknarprests.
Kirkjuráð hefur beðist afsökunar og biskup, og þetta er góður liður í því að ég nái sáttum, ekki síst við Þjóðkirkjuna, segir Sigrún Pálína.
Sigrún Pálína vonast nú til að hafa rutt veginn fyrir aðrar konur sem eru enn í sárum. Spurningin er hvað kirkjan geri í málum hinna kvennanna sem urðu fyrir sömu reynslu.
Þetta hefur legið þungt á mér síðan, enda kom fram alls konar óhróður um mig sem ég sá meðal annars ef ég gúglaði nafnið mitt. Sigrún kveðst einnig hafa verið hædd og lygar bornar á hana í bók séra Ólafs sem síðar kom út.
Ekki var gefin út ákæra þegar Sigrún steig fram árið 1996. Skilaboðin sem hún fékk hafi verið þau að ekki borgaði sig að stíga fram eða segja frá hlutunum.
Sigrún flúði land vegna málsins fyrir þrettán árum, og hefur búið í Danmörku síðan. Henni finnst mikilvægt að hafa nú fengið uppreisn æru, að fólk hér á landi viti að hún hafi sagt satt.
Ég finn nú fyrir breyttu viðhorfi hjá kirkjunni og mér er trúað. Fyrir þessum þrettán árum þótti óhugsandi að sitjandi biskup væri kynferðisafbrotamaður en nú hafa ýmis gögn komið fram í málinu.
Femínistafélagið heiðraði Sigrúnu í dag, á kvennadaginn, ásamt tveimur öðrum konum fyrir hugrekki og staðfestu.
Ég stóð þarna við hliðina á ráðherrunum, segir hún og hlær. Þetta var mikill heiður.(vísir.is)
Biskup harmaði sársauka konunnar en sagði,að ekki hefði verið gefin út ákæra í umræddu máli og sá,sem konan ásakaði,er látinn. Kirkuráð veitti konunni áheyrn í dag.Ekki baðst kirkjuráð afsökunar í dag og ekki heldur biskup en tekið var undir almenn ummæli biskups á kirkjuþingi þess efnis,að kirkjan bæði alla afsökunar sem teldu sig hafa verið órétti beitta af starfsmönnum kirkunnar.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 19. júní 2009
Verðbólga hækkar lítillega
Greining Kaupþings spáir 1,1% hækkun vísitölu neysluverðs í júní og hækkar þá tólf mánaða verðbólga upp í 11,9%, úr 11,7% mánuðinn á undan. Tólf mánaða verðbólga mun hinsvegar lækka á ný í júlí og halda áfram að lækka það sem eftir lifir árs, jafnvel þótt krónan haldi áfram að veikjast. Verðlag án húsnæðis hækkar um 1,2%. Þetta kemur fram í markaðspunktum Kaupþings.
Ástæðan fyrir verðbólguspánni á rætur sínar að rekja til veikingu krónunnar, hækkun opinberra gjalda og hærra heimsmarkaðsverði á eldsneyti. Þótt krónan veikist aðeins um fáein prósent milli mánaða verður ekki framhjá því horft að gengisvísitalan hefur hækkað um 50% síðastliðna tólf mánuði og um 20% á síðustu þremur mánuðum. Núverandi verðlagning í landinu hefur að einhverju leyti byggt á væntingum um að gengisstyrking krónunnar á fyrstu mánuðum ársins yrði varanleg, sú styrking var hinsvegar aðeins tímabundin og er verðlagning í auknum mæli að taka mið af þeirri staðreynd.
Af einstökum undirliðum vísitölunnar má nefna eftirfarandi:
Áfengi og tóbak munu hækka vísitölu neysluverðs um 0,25-0,30% vegna hækkunar opinberra gjalda á þessa liði.
Eldsneyti hækkar vísitöluna um 0,25% í júní, einkum vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði. Í júlí má búast við um 0,3% hækkun vísitölunnar í viðbót vegna gjaldahækkunar hins opinbera á eldsneyti.
Gert er ráð fyrir að húsnæðisliðurinn hafi 0,1% áhrif til lækkunar vísitölunnar að þessu sinni. Eins og reynsla síðustu mánaða sýnir er þessi liður gríðarlega sveiflukenndur og hafa þessar sveiflur ráðið lang mestu um heildarniðurstöðu verðlagsmælingar Hagstofunnar að undanförnu.
Gert er ráð fyrir um 1% hækkun matvöruverðs í júní og að liðurinn hækki því vísitöluna um u.þ.b. 0,15%. Þetta er álíka hækkun og í maí en þá hækkaði matvöruverð á ný eftir að hafa lækkað tvo mánuði þar á undan.
Hluti af aðgerðum ríkistjórnar til að auka tekjur ríkissjóðs er að færa ákveðna matvöruflokka upp um virðisaukaskattsþrep. Talið er að aðgerðirnar, sem áætlað er að skili 2,5 milljörðum króna á ári í ríkiskassann, muni valda 0,25% hækkun vísitölu neysluverðs. Þessar breytingar taka gildi 1. september nk. og munu því koma fram í septembermælingu vísitölu neysluverðs. (visir.is)
Það eru alæmar fréttir,að verðbólgan skuli hækka á ný þó lítið sé. En verðbólgan á síðan að lækka aftur júlí.Þessi staðreynd torveldar lækkun stýrivaxta.
Björgvin Guðmundsson
Síður á vísir.is
Flýtival
Nýtt á Vísi

Föstudagur, 19. júní 2009
Hallinn stefndi í 193 milljarða
Hallinn á ríkissjóði stefndi í 193 milljarða króna á þessu ári ef ekkert hefði verið að gert. Þetta kom fram hjá formanni fjárlaganefndar Alþingis í umræðu um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem stendur yfir á þinginu. Hann boðaði strangan aga í ríkisfjármálum.
Fjárlög fyrir yfirstandandi ár voru afgreidd með 153 milljarða króna halla en vegna meira tekjufalls en gert var ráð fyrir og aukinna útgjalda Atvinnutryggingasjóðs stefndi í að útgjöldin yrðu 20 milljörðum hærri. Frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sem nú er verið að fjalla um á Alþingi, á að taka á því og bæta afkomu ríkissjóðs á þessu ári um rúma 20 milljarða.
Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, upplýsti einnig á Alþingi í dag, að við fjárlagagerðina í vetur hefði gleymst ríkisábyrgð á 20 milljarða láni, sem þurfi að gjaldfæra í tengslum við Seðlabankann. Ekki sé hins vegar gert ráð fyrir að auka tekjur ríkisins til að mæta þessa og því stefnir í að halli á fjárlögum verði 173 milljarðar króna á þessu ári.
Guðbjartur boðaði að mjög strangt aðhald verði tekið upp með rekstri ríkisstofnana og þær verði ekki látnar komast upp með að færa umframheimildir yfir á næsta ári. Þá verði ekki liðið að stofnanir eyði meira en fjárlög heimila. Þá sé gert ráð fyrir, að ráðuneyti ráði ekki í ný störf og ráði ekki í stað þeirra sem hætta. Einnig verði skoðað hvort tilteknar stofnanir starfi áfram eða hvort þær verði sameinaðar öðrum. (mbl.is)
Það er ágætt,að nýr formaður fjárlaganefndar boðar strangt aðhald. Það er ólíðandi,að einstakar ríkisstofnanir fari langt fram úr fjárlögum.En varðandi niðurskurð ríkisútgjalda vildi ég segja þetta:Það átti að byrja á því að skera niður í öllum öðrum ráðuneytum en félags-og tryggingamálaráðuneyti.Það vantar niðurskurðartillögur frá heilbrigðisráðuneyti,utanríkisráðuneyti,umhverfisráðuneyti,iðnaðar-og viðskiptaráðuneyti,menntamálaráðuneyti.Þegar þær tillögur hefðu verið komnar fram mátti athuga hvort eitthvað væri unnt að skera niður í félagsmálaráðunyti en ekki átti samt að hreyfa við bótum aldraðra og öryrkja.
Björgvin Guðmundsson
Til baka
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. júní 2009
Ríkisstjórnin gerir atlögu að kjörum aldraðra og öryrkja
Ríkisstjórnin lagði í gærkveldi fram frumvarp um skerðingu á lífeyri aldraðra og öryrkja.Samkvæmt því á að skerða tekjutryggingu,auka á ný skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna og taka upp skerðingu grunnlífeyris vegna tekna úr lífeyrissjóði.Ríkisstjórnin hafði lofað því að standa vörð um velferðarkerfið en samkvæmt þessu frumvarpi stendur hún ekki við það.Að vísu lækkar ekki lífeyrir þeirra lífeyrisþega,sem hafa eing0ngu tekjur frá almannatryggingum en það er mjög lítill hópur.
Ríkisstjórnin telur sjálfsagt,að allir verði að taka á sig byrðar vegna kreppunnar.En hún gleymir því,að eldri borgarar og 0ryrkjar eru búnir að taka á sig byrðar. Kjör 3/4 lífeyrisþega voru skert sl. áramót.Auk þess töpuðu eldri borgarar mjög miklu á hruni bankanna.
Það skýtur skökku við,að á sama tíma og rætt er um a´hækka laun launþega á almennum vinnumarkaði er verið að lækka laun aldraðra og öryrkja.Þarf alltaf að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur?
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 18. júní 2009
Slakar ESB á kröfunum við Íra?
Leiðtogar Evrópusambandsríkja hittast á fundi í Brussel í dag og ræða framtíð Lissabonsáttmálans sem felldur var í þjóðaratkvæðagreiðslu á Írlandi.
Stjórnvöld þar vilja breyta sáttmálanum áður en hann verður lagður aftur í dóm írsku þjóðarinnar. Á fundinum þurfa leiðtogarnir að ákveða hvort komið verði til móts við kröfur Íra um að landið haldi hernaðarlegu hlutleysi, ráði eigin skattamálum og geti áfram bannað fóstureyðingar. Þá verður framkvæmdastjórum sambandsins ekki fækkað úr 27 í 18 líkt og áformað var. Stjórnmálaskýrendur segja að leiðtogunum liggi á að þoka málinu áfram. Sáttmálinn yrði í hættu kæmust íhaldsmenn til valda í Bretlandi.
Einnig er búist við að nýtt regluverk um fjármálastafsemi verði ofarlega á baugi á fundi leiðtoganna. Rætt er um að setja á laggirnar sérstaka nefnd sem meti hugsanlegar ógnir við fjármálastöðugleika innan Evrópusambandsins. Bretland og önnur ríki, sem ekki hafa tekið upp evruna, hafa áhyggjur af því að slík nefnd myndi einungis taka mið af því sem gerist á evrusvæðinu. Þá eru menn ekki á eitt sáttir um hversu miklu fjárhaldsmenn með einstökum fjármálafyrirtækjum ættu að að ráða um hversu miklu björgunarfé sé varið til þeirra. Hvort slíkt fyrirkomulag myndi troða stjórnvöldum einstakra ríkja um tær.(ruv.is)
Fróðlegt verður að sjá hvernig "deilu" ESB og Íra reiðir af. Trúlegt er ,að Írland fái að halda hlutleysi í varnarmálum en meiri spurning er hvort Írland fái að halda sjálfstæði í skattmálum.Og fóstureyðingarmálið getur orðið erfitt mál.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 18. júní 2009
Örvæntingaraðgerð manns á Áltanesi
Það hefur að vonum vakið mikla athygli,að maður nokkur skyldi í örvæntingu sinni brjóta niður einbýlishús,sem hann hafði átt en var komið í eign banka,Frjálsa fjárfestingarbankans.Maðurinn skuldaði bankanum mikla upphæð (50-60 millj.) og hafði bankinn tekið húsið í nóv. sl. þar eð maðurinn gat ekki greitt.Hann átti að rýma húsið og afhenda lykla að því á morgun,föstudag. En áður en til þess kæmi tók maðurinn til þess ráðs að brjóta húsið niður með stórvirkri vinnuvél.Hann lét kvikmynda atburðinn!
Ljóst er,að maður þessi hefur verið kominn í fjárhagsvandræði áður en bankakrepan skall á sl. haust úr því hann missti húsið strax í nóvember. Ekki verður séð hvað honum hefur gengið til með því að brjóta niður húsið.Vandi hans verður tvöfalt meiri við þá aðgerð.Hann hefur greinilega ætlað að hefna sín á bankanum.En skemmdarverk leysa engan vanda.Lögregla var kvödd til og maðurinn handtekinn.
Ekki man ég hvort úrræði um að fresta uppboðum hjá þeim,sem voru í vandræðum,voru komin í gildi í nóvember en mér sýnist einsýnt að hann hafi ekki leitað eftir slíkri lausn eða fresti en slíkir frestir áttu að gilda til næsta hausts.Örvænting hefur gripið manninn og í stað þess að leita lausna á vanda sínum hefur maðurinn gripið til örþrifaráðs.Hér er um hörmulegan atburð að ræða.
Björgvin Guðmundsson