Verðmæti hlutabréfa hefur lækkað um 1600 milljarða á ári.Skatttekjur minnka

Ég yrði hissa ef það myndi ekki muna einhverjum tugum milljarða í heildarskatttekjur þegar upp er staðið,“ segir Ragnar Árnason, prófessor við hagfræðiskor Háskóla Íslands, um mögulegan tekjumissi ríkissjóðs vegna lækkunar á gengi hlutabréfa.

Talið er að  að verðmæti hlutabréfa í félögum í úrvalsvísitölu kauphallarinnar hafi lækkað um 1.600 milljarða króna á tæpu ári.

 

Ragnar byggir skoðun sína annars vegar á því að þegar hlutabréfin verða seld þá verður söluhagnaðurinn þessum mun minni. „Þannig að ríkið getur á von á því að tekjur af fjármagnsskatti verði lægri en ella hefði orðið á þessu eða næsta ári,“ segir Ragnar. „Síðan þýðir þessi mikla eignaminnkun að einhverjir verða að draga saman seglin og það þýðir auðvitað minni tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti og slíkum sköttum. Og síðan í framhaldi af því af tekjum þeirra sem hefðu hagnast af þeim viðskiptum sem þá hefðu átt sér stað.“

 

 

Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, segir að samkvæmt endurmetinni tekjuspá ríkissjóðs sé ljóst að einhver lækkun verði á tekjum frá því sem gert ráð fyrir í fjárlögum. „Við gáfum strax til kynna í janúar að ljóst væri að samsetning teknanna myndi breytast og að við byggjumst við eitthvað meiri tekjum af veltuskatti í ár en minni af fjármagnstekjuskatti og tekjuskatti lögaðila árið 2008. En við teljum að áhrifin ættu að jafnast mikið út þannig að í heild yrðu tekjurnar áþekkar því sem spáð var í haust,“ segir hann og bætir við: „Ef þetta ástand verður viðvarandi þá hefur það meiri áhrif árið 2009.“ Hann segir að ný tekjuspá verði kynnt í haust sem byggja mun á nýrri upplýsingum. „Þetta er í stöðugu endurmati,“ vill Þorsteinn þó benda á.

Þessar umræður leiða hugann að því,að því hefur verið fleygt í blöðum,að Baugur kunni af flytja lögheimili sitt til útlanda,þar eð Jón Ásgeir verður að öllum líkindum að víkja úr stjórn félagsins ,ef félagið verður áfram skráð á Íslandi.Við slíkan flutning Baugs mundi Ísland verða af miklum skatttekjum.Vonandi kemur ekki til þess. Við viljum hafa Baug á Íslandi.Félagið hefur verið byggt upp hér. Segja má,að undirstaða þess séu Bönusbúðirnar. Maður getur ekki hugsað þá hugsun til enda hvað yrði ef Bónus hyrfi af markaðnum. Ekkert fyrirtæki hefur lækkað eins mikið vöruverð og Bonus.

 

Björgvin Guðmunds.


mbl.is Ríkið verður af tugum milljarða vegna lækkunar hlutabréfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúðaverð hækkaði í mai!

Nokkuð kemur á óvart að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í maí skuli hækka frá fyrra mánuði eftir að hafa lækkað síðustu mánuði. Vísitalan í maí var 348,5 stig og nam hækkunin frá apríl 0,5% Síðastliðna þrjá mánuði lækkaði vísitalan um 1,6%.

Lítil fasteignaviðskipti hafa átt sér stað að undanförnu en samt hækkar vísitalan. Erfitt er að draga ályktanir af þessari stöðu en líklega hefur það sitt að segja að þau fasteignaviðskipti sem þó eiga sér stað eru ekki einkennandi fyrir markaðinn í heild, að mati Ásgeirs Jónssonar, forstöðumanns greiningardeildar Kaupþings.

„Þessi hækkun stafar líklega af tvennum orsökum. Annars vegar er mögulegt að þær eignir sem hafa verið seldar á síðustu mánuðum séu fremur smáar eignir í fjölbýli og hafi því tiltölulega hærra fermetraverð en þær stærri, og hins vegar að viðskiptin eigi sér einkum stað með eignir miðsvæðis og síðan tiltölulega góðar eignir, með sérstökum einkennum, útsýni og þess háttar. Þeir sem eru að kaupa þær eignir eru gjarnan fjársterkir kaupendur,“ segir hann.

„Það er hins vegar ljóst að þessi hækkun endurspeglar ekki raunverulegt ástand á markaðnum enda er fasteignaverðsvísitalan ekki gæðaleiðrétt og þegar veltan minnkar jafnmikið og raun ber vitni geta einstakir eignaflokkar og gott markaðshæfi haft of mikil áhrif á vísitöluna.“-
Mbl.is

Miðað við álit  greiningardeildar Kaupþings má búast við að íbúðaverð lækki strax í júní ,þar eð vísitala   íbúðaverðs fyrir mai endurspeglar ekki rsunverulegt ástand á markaðnum. Þarna hafa óeðlilegir hlutir verið að verki.Öll eðlileg rök efnahagsmála í dag benda til lækkunar íbúðaverðs. Það eina sem getur komið í veg fyrir það er að ríkið eða  íbúðalánasjóður geri ráðstafanir til þess að halda uppi íbúðaverði.

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Fjársterkir menn að kaupa húsnæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brynhildur besta leikkona og besta leikskáld ársins

Brynhildur Guðjónsdóttir var bæði valin leikkona ársins í aðalhlutverki og leikskáld ársins fyrir leikverkið Brák þegar Gríman, íslensku leiklistarverðlaunin voru veitt í kvöld. Hamskiptin eftir Franz Kafka var útnefnd sýning ársins en flest verðlaun fékk leikverkið Ívanov, þrenn talsins.

Söngkonan Þuríður Pálsdóttir fékk heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu sönglistar á Íslandi og afhenti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Þuríði verðlaunin.

Þá fékk farsinn Fló á skinni sérstök áhorfendaverðlaun í sviðssetningu Leikfélags Akureyrar.

Þetta var mikill sigur hjá Brynhildi,að fá bæði Grimuna fyrir að vera valin leikkona ársins og fyrir að vera  valin leikskáld ársins.Hátíðin fór vel fram og var skemmtileg.Tveir ungir leikarar voru kynnar,Jói og Gói.Þeir stóðu sig  vel. Spurning er hvort ekki væri nóg að hafa Grímuna annað hvort ár. Þetta eru það fá  leikverk sem sett  eru upp á hverju ári  hér og fáir,sem geta komið til greina,þegar verðlaun eru annars vegar.

Björgvin Guðmundsson

 

Þeir félagar Jói og Gói voru kynnar og fóru mikinn.

 

 


mbl.is Brynhildur leikkona og leikskáld ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bygging álvers við Bakka hefst 2012

Hafið er matsferli vegna álvers á Bakka við Húsavík þar sem skoðuð er bygging álvers á vegum Alcoa  með allt að 250.000 tonna ársframleiðslu.  

Áformað er að hefja framleiðslu á áli á árabilinu 2012 til 2014, háð því hvenær orka er tilbúin til afhendingar. Áætlað er að álverið nái fullum afköstum árið 2015. Lengd byggingartíma miðast við að samþætta framkvæmdahraða og hugsanlega áfangaskiptingu verksins við framboð á orku.

Alcoa er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af HRV Engineering. Kynningin stendur yfir til 5. júlí.

Ekki eru neinar líkur á að hætt verði við áform um byggingu álvers við Bakka.Það er bót í máli,að ekki verður byrjað að byggja fyrr  en  2012.Það er gott af ýmsum ásæðum,vegna efnahagsmála,orkuöflunar og útblásturs.

 

Björgvin Guðmundson 


mbl.is Matsferli vegna álvers á Bakka hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Írar felldu Lissabonsáttmálann

Dermot Ahern, dómsmálaráðherra Írlands, segir að tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslu í gær sýni, að Írar hafi hafnað Lissabonsáttmála Evrópusambandsins.  Þessi niðurstaða er mikið áfall fyrir Evrópusambandið en öll aðildarríkin 27 verða að samþykkja sáttmálann eigi hann að taka gildi.

Sennilega er Lissabonráttmálin úr sögunni eftir þessa atkvæðagreiðslu í Írlandi,þar eð öll aðildarríki  ESB verða að staðfesta hann.Annað hvort verður að gera miklar breytingar á sáttmálanum eða að koma með alveg nýjan sáttmála.

 

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Írsk kosning áfall fyrir ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupmáttur lífeyris aldraðra hefur minnkað

Verðbólgan er nú 12,3% og fer hækkandi.En  lífeyrir aldraðra hefur aðeins hækkað um 7,4% á árinu.Það vantar því tæp 5 prósentustig upp á  að lífeyrir aldraðra hafi hækkað jafnmikið og verðlag.Þetta þýðir ekkert annað en það,að kaupmáttur lífeyris aldraðra hefur rýrnað stórlega.Þegar þörf er á að auka kaupmátt lífeyris er verið að rýra hann.Ef stjórnvöld hefði viljað varðveita kaupmátt lífeyris hefðu þau hækkað  lífeyrinn jafnmikið og lægstu laun í febrúar sl. en svo varð ekki. Lágmarkslaun hækkuðu um 16% en lífeyrir um 7,4%.Síðan keppast stjórnvöld við að segja,að þau hafi ekki þurft að hækka lífeyri  meira.

Þau hafi gert vel við eldri borgara!  Á sl.ári  nam lífeyrir eldri borgara 100% af lágmarkslaunum verkafólks. En nú nemur lífeyrir aldraðra 93,47% af lágmarkslaunum.Okkur hefur ekki miðað áfram. Okkur hefur miðað aftur á bak!.

Björgvin Guðmundsson


ASÍ:Úrræðaleysi ríkisstjórnar í efnahagsmálum algert

Miðstjórn ASÍ ályktaði á fundi sínum  í gær,að  hið opinbera ætti að  auka framkvæmdir sínar,sérstaklega mannaflsfrekar framkvæmdir til þess að sporna gegn samdrætti og atvinnuleysi.Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri ASÍ segir,að úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum sé algert. Fulltrúi iðnaðarins óttast mikið atvinnuleysi með  haustinu og Samtök atvinnulífsins  vilja,að Íbúðalánasjóði verði beitt til þess að  örva fasteignamarkaðinn. Fulltrúar vinnumarkaðarins,ASI og SA eru mjög áhyggjufullir vegna þróunar mála í efnahagslífinu.

 

Björgvin Gu ðmundsson


Velferðarríkið Ísland skammtar eldri borgurum naumt

Einhleypur ellilífeyrisþegi,sem hefur eingöngu bætur almannatrygginga til þess að lifa af, fær í lífeyri frá TR  121.000 kr. á mánuði  eftir skatta. Algengt er,að húsnæðiskostnaður sé 100 þús. á mánuði. Húsaleiga fyrir tveggja herbergja íbúð er jafnvel talsvert hærri í dag ( 120 þús. á mánuð en frá því dragast húsaleigubætur). Þegar húsnæðiskostnaður hefur verið greiddur er  21 þús. kr. eftir fyrir öllum öðrum kostnaði,mat,fatnaði,síma,flutningskostnaði ( rekstri bíls eða kostnaði við almenningssamgöngur) lyfjum,lækniskostnaði o.fl. Hvernig á ellilífeyrisþeginn að lifa af þessu lítilræði sem velferðarríkið skammtar honum.Hann getur það ekki. Hann safnar skuldum,verður að leita á náðir  ættmenna eða fá aðstoð felagsþjónustu  sveitarfélagsins. Þetta ástand er ekki boðlegt hjá einu ríkasta landi heims.Og loks þegar ríkisstjórnin ætlaði að gera eitthvað fyrir aldraða og öryrkja gleymdist þessi hópur,sem hér hefur verið gerður að umtalsefni.Hann fékk enga uppbóta á sinn lífeyri. Nei það þurfti að byrja á því að bæta kjör þeirra ellílífeyrisþega,sem eru á vinnumarkaðnum.Það var forgangsverkefni áður en lífeyrir þeirra,sem eingöngu hafa bætur almannatrygginga væri hækkaður.

Væntanlega verður   lífeyrir þeirra,sem eingöngu hafa bætur almannatrygginga,hækkaður 1.júlí n.k. En þá dugar ekki að  láta þá fá einhverja hungurlús, 15 -25 þús. Það þarf að hækka lífeyrinn myndarlega svo unnt sé að lifa mannsæmandi lífi af honum. Það liggja fyrir upplýsingar hjá Hagstofunni í dag  um hvað það kostar að lifa ( neyslukönnun Hagstofunnar). Eftir þeim upplýsingum á að fara.

Björgvin Guðmundsson

 


Krefja kastljós um 3,5 millj. kr. í miskabætur

Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Björns Orra Péturssonar og Luciu Celestu Molinu Sierru gegn umsjónar- og ábyrgðarmönnum dægurmálaþáttarins Kastljóss fór fram í gær.

Björn og Lucia, sem eru sonur og tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, stefndu Páli Magnússyni útvarpsstjóra, Þórhalli Gunnarssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Helga Seljan vegna umfjöllunar Kastljóss um tilkomu þess að Lucia fékk íslenskan ríkisborgararétt. Björn og Lucia telja umfjöllun þáttarins hafa verið ærumeiðandi og brot á friðhelgi einkalífs þeirra og krefjast þau samtals 3,5 milljóna króna í miskabætur.

Umræddur kastljósþáttur vakti mikla athygli á sínum tíma. Kastljós dró það fram,að afgreiðsla á umsókn Luciu úm ríkisborgararétt hafi  tekið óvenju stuttan tíma og var gefið til kynna,að það hafi ráðið úrslitum,að um tengdadóttur Jónínu Bjartmarz þáverandi umhverfisráðherra var að ræða.Frólegt verður að sjá  hver niðustaða dómamálsins verður.

 

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Krefjast miskabóta upp á 3,5 milljónir króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlutabréf í Eimskip falla um 28%

Sindri Sindrason stjórnarformaður Eimskipa segir fv. stjórnendur, þá Magnús Þorsteinsson fv. stjórnarformann og Baldur Guðnason fv forstjóra fyrirtækisins hafa brugðist. Bréf Eimskips hafa á 2 dögum lækkað um 28%.

Lækkun hlutabréfa skýrist að mestu vegna þess að fyrirtækið hafi þurft að afskrifa 9 ma. kr. Ástæðan er kaup á fyrirtækinu Innovate Holdings. Fyrst keypti Eimskip helming fyrirtækisins fyrir 2 árum og eignaðist síðan allt fyrirtækið í fyrra. Sindri segir fv. stjórnendur greinilega hafa gert mistök þegar fyrirtækið var keypt.

Stjórnendur hefðu átt að vera búnir að sjá í hvað stefndi og bæði hafi skort ítarlega forskoðun á fyrirtækinu og eftirlit með því. Bréf í Eimskipi hafa fallið um ríflega fjórðung í dag og í gær. Sindri segir það ekki koma á óvart, viðbúið sé að markaðurinn bregðist við slíkum fréttum. Stjórnendur Eimskips bregðist hins vegar við vandanum með því að auka eigið fé félagsins sem komið er niður í 16%. Sindri segir Eimskipafélagið eiga miklar eignir, rekstur þess sé góður en það sé mikið skuldsett. Þessi áföll þýði þó að breytt verður um stefnu og fyrirtækið muni sinna æ meira flutningastarfsemi.

Það er hörmulegt hvernig Eimskip hefur farið. Alvarleg mistök virðast hafa átt sér stað þegar félagið keypti breska fyrirtækið Innovate Holdings.Breska fyrirtækið reyndist ekki eins góð  fjárfesting og talið var. Íslendingar hafa á undanförnum árum fjárfest í mörgum erlendum fyrirtækjum og oftast hefur þessi fjarfesting "lukkast". En stundum hefur hún mistekist og mikið  tap orðið. Þetta  er eins og að spila í happdrætti,ef ekki er nægur undirbúningur að  fjárfestingunni.Og stundum dugar góður  undirbúningur ekki til .

 

Björgvin Guðmundsson


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband