Sunnudagur, 7. september 2008
Flóttamenn velkomnir til Akraness
Flóttamennirnir frá Palestínu eru væntanlæegir til Akraness n.k.þriðjudag.Er öllum undirbúningi að komu þeirra lokið og þar á meðal er búið að útvega húsnæði fyrir þá alla. Nokkrar deilur urðu á Akranesi,þegar mál þetta kom fyrst upp. Magnús Hafsteinsson,varaforamaður frjálslyndra gerði alvarlegar athugasemdir við komu flóttamannanna.Voru athugasemdir hans túlkaðar svo,að hann væri andvígur því að' taka á móti flóttamönnunum til Akraness. En bæjarstjóri og bæjarstjórn Akraness samþykkti að taka á móti flóttamönnunum og svo virðist sem bæjarbúar séu ánægðir með komu þeirra. Ég tel,að það sé gott er Ísland getur tekið á móti erlendum flóttamönnum,sem hvergi eiga athvarf.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. september 2008
Fjölmenni við útför Sigurbjörns Einarssonar
Útför Sigurbjörns Einarssonar, biskups, hófst klukkan 14 í Hallgrímskirkju í Reykjavík að viðstöddum forseta Íslands, forsætisráðherra og öðrum ráðherrum, prestum þjóðkirkjunnar, fulltrúum íslenskra safnaða og erlendum gestum.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, jarðsöng.. Athöfninni var bæði útvarpað á Rás 1 og sjónvarpað í Sjónvarpinu.
Um 1100 manns höfðu fyrr í dag ritað nafn sitt í minningarbók, sem lá frammi vegna andláts Sigurbjörns, sem andaðist 28. ágúst síðastliðinn, 97 ára að aldri. Jarðsett var í Fossvogskirkjugarði.(mbl.is)
Útförin var falleg en látlaus. Sigurbjörn hafði óskað eftir því að athöfnin yrði látlaus og að ekki yrði fjallað eingöngu um hann heldur Jesú Krist og upprisuna. Eftir því var farið. Ræða sr. Jóns Dalbú var mjög góð. Hann sagði,að þegar Sr. Sigurbjörn hefði talað þá hefði verið hlustað og það er rétt. Sr Sigurbjörn var áhrifaríkur kennimaður en hann var mikið meira.Hann hafði ríka réttlætiskennd.Hann var jafnaðarmaður,var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn,barðist gegn hersetu á Íslandi og lét mörg þjóðfélagsmál til sín taka.Sr. Sigurbjörn var mjög merkur maður.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Sigurbjörn Einarsson jarðsunginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. september 2008
Þá var kreppa
Hér er saga úr kreppunni fyrir stríð ( 1930-1940):
Heimilisfaðirinn er hafnarverkamaður í Reykjavík.Hann er atvinnulaus,það er gífurlega miiklð atvinnuleysi. Það eru engar atvinnuleysisbætur.Menn verða að bjarga sér.Þegar allt um þrýtur lætur sveitarfélagið einhverja smáaura í fátækrastyrk.En stoltið er mikið og heldur aftur af mönnum að taka við slíku. Heimilisfaðirinn atvinnulausi segir við konu sína: Ég ætla að skreppa niður á höfn og trolla kol. Það falla stundum kol í höfnina og hann reynir að ná þeim upp með handtolli. Ef hann er heppinn fær hann kol og getur selt þau fyrir mat. Þetta er kreppa. En það en engin kreppa í dag.Og það er undarlegt að heyra menntaða menn tala um að það sé kreppa í dag.
I hagfræðinni er fjallað um hagsveiflur:Þenslu,verðbólgu,samdrátt og kreppu. Þensla er undanfari verðbólgu og samdráttur er undanfari kreppu. Það er samdráttur núna og vissulega getur hann leitt til kreppu.En allt bendir þó til þess að við munum komast út úr þessu samdráttarskeiði án þess að hér verði stórfellt atvinnuleysi og kreppa skelli á.Margir hafa riðið nokkuð hratt í góðærinu,keypt stóra jeppa,sem þeir höfðu ekki efni á,eytt um efni fram þrátt fyrir miklar tekjur. Þó þeir verði nú að sleppa jeppanum og láta sér nægja einn bil er engin kreppa.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 6. september 2008
Guði reynir að hífa Framsókn upp
Þetta segir Guðni Ágústsson (mbl.is)
Ekki er víst að þetta gangi eins vel hjá Guðna og hann vonar Það er að vísu róttækur tónn í málflutningi Guðna af og til og eins og gamli samvinnu -og umbótatónninn sé kominn aftur. En síðan er Guðni alltaf fljótur að hlaupa til íhaldsins eins og sást þegar hann fékk Óskar Bergsson til þess að gerast hækja íhaldsins í borgarstjórn. Það urðu mikil vonbrigði.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Lagður af stað í mikið ferðalag fyrir flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. september 2008
Bankarnir skulda 8400 milljarða erlendis
Nýjar tölur Seðlabankans um skuldir Íslendinga erlendis eru ógnvekjandi. Íslendingar skulda rúmlega 10000 milljarða erlendis en eignir á móti eru um 8000 milljarðar. Hefur hrein staða við útlönd versnað um 27 milljarða og nemur 2100 milljörðum í skuld.Af skuldum Íslendinga skulda bankarnir mest eða 8400 milljarða en á móti koma eignir upp á rúmlega 6000 milljarða.Það eru þessar gífurlegu skuldir bankanna sem skapa hættuástand þeirra,þar eð erfitt er í dag að fá fjármagn til endurfjármögunar,a.m.k. á góðum kjörum.Bankarnir hafa farið mjög óvarlega í lántökum erlendis.Þeir geta ekki reiknað með því að skattgreiðendur komi þeim til hjálpar. Stjórnendur bankanna ættu að byrja á því að lækka sín laun og kaupréttarssamninga. Þar er um hömlulaust bruðl að ræða. Glitnir hefur þar gengið á undan með góðu fordæmi en hinir bankarnir hafa ekki einu sinni sýnt lit.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 6. september 2008
Leggjum Bjölluvirkjun til hliðar
Enn hefur Landsvirkjun tekist að fá náttúruverndarsinna marga hverja upp á móti sér. Nú hafa spurst út áform um að setja Bjallavirkjun inn á lista fyrir rammaáætlun um virkjunarkosti, sem stjórnvöld eru að vinna að. Virkjunin er rétt norðan við friðlandið að Fjallabaki, í Tungnaá ofan Sigöldustöðvar.
Með því að stífla Tungnaá myndast miðlunarlón í farvegi árinnar, allt að 30 ferkílómetrar, og telst það svæði vera á náttúruminjaskrá. Gæti slík virkjun framleitt árlega um 46 MW.
Unnið hefur verið að frumhönnun síðustu mánuði og var Náttúrufræðistofnun fengin til að fara yfir vistfræði og þá náttúrufarsskoðun sem hafði áður farið fram á svæðinu. Bjallavirkjun er nefnilega ekki ný hugmynd. Hún hefur verið til í hirslum Landsvirkjunar frá árinu 1980 þegar hún varð hluti af svonefndri mynsturáætlun Orkustofnunar.
Fyrstu hugmyndir gerðu þá ráð fyrir mun stærra miðlunarlóni og því yrði miðlað um opna skurði í inntakslón og þaðan til stöðvarhúss. Átti sá virkjunarkostur að geta útvegað allt að 70 MW. Sú Bjallavirkjun þótti hins vegar ekki hagkvæmur kostur og ekki samkeppnishæf við aðrar virkjanir sem þá voru til skoðunar. Áformin voru lögð til hliðar.
Fyrir fáum árum fóru verkfræðingar Landsvirkjunar að gefa þessum möguleika gaum á ný, m.a. með því að notast meira við jarðgöng. Hið nýja miðlunarlón, Tungnaárlón, nýtist að auki fleiri virkjunum, bæði í Tungnaá og Þjórsá, og Landsvirkjunarmenn telja lónið spila vel með Þórisvatni.
Að sögn Eysteins Hafberg, verkfræðings hjá Landsvirkjun, þótti sjálfsagt að reyna að koma þessum kosti að í þeirri rammaáætlun um virkjunarkosti sem verið er að vinna að. Hann segir að Bjallavirkjun megi líkja við virkjanir í neðri hluta Þjórsár, þ.e. Urriðafoss-, Hvamms- og Holtsvirkjun. Þó að hún sé ekki stór geti hún reynst ágætis búbót og góð söluvara fyrir mögulega raforkukaupendur ef sátt næst um hana.
Rammaáætluninni er ætlað að raða upp þeim virkjunarkostum sem í boði eru. Hljóti Bjallavirkjun náð fyrir augum þeirra sem um áætlunina fjalla er ekki þar með sagt að hún verði reist. Við tekur verkhönnun, umhverfismatsferli og vinna við framkvæmdaleyfi og útboðsgerð sem allt gæti tekið nokkur ár.
Andstæðingar virkjana geta ekki sakað Landsvirkjun um að ætla að leyna þessum virkjunarkosti. Í tengslum við undirbúning að rammaáætlun hafa áformin verið gerð opinber en spurt er hvort þau séu sett fram af fullri alvöru. Miðað við staðsetningu Bjallavirkjunar og nálægð við friðland og vinsæla ferðamannastaði á borð við Landmannalaugar benda viðmælendur Morgunblaðsins á að afar ólíklegt megi teljast að áformin gangi í gegn. Þau séu meira sett fram til að beita þrýstingi á að ná fram öðrum kostum.
Meðal þeirra sem á þetta benda er Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar. Hann gerir fyrst og fremst athugasemd við staðsetninguna og nálægðina við friðlandið að Fjallabaki og Vatnajökulsþjóðgarðinn. Um þennan kost náist aldrei sátt, í anddyri Landmannalauga.(mbl.is)
Þetta svæði er alltof viðkvæmt frá náttúruverndar sjónarmiði.Ég tel því að leggja eigi Bjölluvirkjun til hliðar.Samfylkingin vill ekki að' virkjað sé á oröskuðum svæðum.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Gamall virkjunarkostur hringir bjöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. september 2008
Kosningaloforð við eldri borgara svikin
´Fyrir síðustu alþingiskosningar lofuðu stjórnarflokkarnir þeim eldri borgurum,sem hættir væru störfum, miklum kjarabótum.Ekki hefur verið staðið við þessi kosningaloforð.Það eru 16 mánuðir liðnir frá kosningum en samt er ekki farið að efna þessi loforð.Ég tel,að það hefði átt að efna þessi loforð strax eftir kosningar. Það hefði átt að samþykkja þær kjarabætur ,sem lofað var,strax á sumarþinginu 2007.
Ríkisstjórnin hefur aðeins sinnt þeim eldri borgurum,sem eru á vinnumarkaðnum en "gleymt" hinum.Það eina,sem hefur verið gert fyrir þá,sem hættir eru að vinna er að samþykkja uppbót á eftirlaun fyrir lítinn hóp eldri borgara,sem ekki hafa verið í lífeyrissjóði. Þeir fá nú 8 þús. í uppbót á mánuði eftir skatta og skerðingar.Um það bil 2/3 eldri borgara eru hættir störfum og hafa ekki fengið þær kjarabætur,sem lofað var. Krafan er sú,að staðið verði við loforðin og það strax.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 5. september 2008
Þjóðin stendur með ljósmæðrum
Fjölmenni var á Austurvelli í hádeginu þar sem konur efndu til víðtækrar samstöðu með ljósmæðrum. Þess var krafist að þegar í stað yrði gengið til samninga við ljósmæður. Meðal þeirra sem ávörpuðu fundinn voru ófrísk kona, níu ára stúlka og langamma(mbl.is)
Það á að' ganga að kröfum ljósmæðra,þar eð' þær eru réttmætar. Nám ljósmæðra er lengra en hjúkrunarfræðinga en samt eru laun þeirra svipuð.Þjóðin styður ljósmæður i deilu þeirra.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Bág staða öryrkja
Öryrkjabandalag Ísland hefur gert ályktun,þar sem kvartað ef yfir bágum kjörum öryrkja.´Hér fer á eftir ályktun Öryrkjabandalagsins
Öryrkjabandalag Íslands lýsir þungum áhyggjum vegna
bágra kjara öryrkja,sem hitt hefur fjölda öryrkja og sjúklinga vegna sívaxandi verðbólgu og hækkandi
verðlags á nauðsynjavörum. Vaxandi hópi öryrkja reynist illmögulegt að láta enda ná
saman vegna þessa.
Aðalstjórn ÖBÍ trúir því og treystir að í fjárlögum fyrir næsta ár verði að finna
umtalsvert auknar fjárhæðir til handa þeim sem verst standa í íslensku samfélagi. Í
þessu sambandi vill aðalstjórn minna á að á meðan lágmarkslaun hækkuðu um
18.000,- krónur í nýgerðum kjarasamningum, hækkaði lífeyrir almannatrygginga
einungis um 7%. Það gerir 9.000,- króna hækkun ef einstaklingur hefur fulla greiðslu
úr öllum fjórum bótaflokkum almannatrygginga, en lítill hluti öryrkja hefur slíkt.
Þær umbætur sem gerðar hafa verið á almannatryggingakerfinu á árinu eins og
afnám tekjutengingar við maka, 100.000,- króna frítekjumark á mánuði á launatekjur,
og 25.000,- króna frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur hefur komið ákveðnum hópi til
góða, en það hefur ekki nýst öllum öryrkjum.
Í stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks stendur að hlúa beri sérstaklega
að þeim einstaklingum sem minnstar hafa tekjurnar í íslensku samfélagi. Jóhanna
Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra boðaði framfærsluviðmið sem átti að
koma 1. júlí síðastliðinn. Það hefur enn ekki litið dagsins ljós.
Hér með er skorað á stjórnvöld að bregðast við vanda þeirra sem verst eru settir að
fyrirbyggja að til komi enn meiri fjárhagserfiðleikar fjölda einstaklinga og fjölskyldna
þeirra.´
Ég styð þessa ályktun öryrkja heils hugar.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Bætur þurfa að vera hærri
Breiðavíkursamtökin hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem m.a. kemur fram að lögmaður forsætisráðuneytisins hafi sagt að frumvarpsdrögin um bætur hafi verið kynnt ríkisstjórninni og samþykkt þar. Yfirlýsing ráðuneytisins sé nú í andstöðu við svar lögmannsins. Samtökin harma framgöngu ráðuneytisins.
Yfirlýsingin, sem er undirrituð af stjórn samtakanna, er svohljóðandi:
1. Á fundi með stjórnarmönnum Breiðavíkursamtakanna (BRV) og lögmanni þeirra Ragnari Aðalsteinssyni þann 11. ágúst sl. sagði Páll Þórhallsson lögfræðingur forsætisráðuneytisins aðspurður að frumvarpsdrögin um bætur hefðu verið kynnt í ríkisstjórninni og samþykkt þar. Yfirlýsing ráðuneytisins nú er í andstöðu við þetta ótvíræða svar Páls Þórhallssonar.
2. Á sama fundi 11. ágúst sl. var beðið um trúnað í tvær vikur og það var að fullu virt og rúmlega það.
3. Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur BRV var boðaður á fund í ráðuneytinu föstudaginn 29. ágúst. Greinilegt var af þeim fundi að dæma að málinu hafði verið haldið í sama farvegi og á fundinum 11. ágúst; engu hafði verið hnikað til þótt samtökin hefðu gert alvarlegar athugasemdir við drögin strax á fundinum 11. ágúst og með ítarlegu bréfi þann 15. ágúst.
4. Við svo búið sáu BRV ekkert því til fyrirstöðu að efna til félagsfundar 3. september og taka þátt í opinberri umræðu um málið og þróun þess.
5. BRV geta ekki annað en harmað framgöngu forsætisráðuneytisins í þessu máli og hvetja forsætisráðherra til að koma böndum á framgöngu sinna manna. BRV hafa engan áhuga á því að munnhöggvast við ráðuneytið um atriði sem ekki lúta að kjarna málsins. Hann felst ekki síst í brotum stjórnvalda gagnvart börnunum og foreldrum þeirra, í því líkamslega og andlega harðræði sem þessi börn bjuggu við, í þeirri vinnuþrælkun sem þessum börnum var boðið upp á, í þeirri vanrækslu sem átti sér stað á lögbundinni skólaskyldu, í sviptingunni á friðhelgi einkalífsins og í hinni sáru einangrun og aðskilnaði frá vinum og venslamönnum sem börnin þurftu að þola. Af öllu þessu er ljóst að hin ömurlega nauðungarvist hefur rýrt verulega tækifæri og getu viðkomandi einstaklinga til að lifa eðlilegu, mannsæmandi lífi og fóta sig í samfélaginu.(mbl.is)
Forsætisráðherra sagði,að frumvarpið,sem Breiðavíkursamtökin höfðu til meðferðar hafi verið' drög og ekki fullfrágengin. Ég tel,að bótaupphæðir þær,sem nefndar eru í drögunum séu of lágar. Það þarf að hækka bæturnar.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Harma framgöngu forsætisráðuneytisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |