Fimmtudagur, 4. september 2008
Úrskurður umhverfisráðherra dreginn í vafa
Nei, ég hef ekkert sagt um það að við ætluðum að kæra," segir Franz Árnason, stjórnarformaður Samorku. Samorka, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, skoruðu í dag á stjórnvöld að endurskoða ákvörðun sína um að álver á Bakka og tengdar framkvæmdir fari í sameiginlegt umhverfismat. Ef ekki næðist ásættanleg niðurstaða í þeim efnum teldi stjórnin nauðsynlegt að dómstólar skæru úr um lögmæti úrskurðar Þórunnar Sveinbjarnadóttur umhverfisráðherra.
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, sagði í samtali við Vísi í dag að það væri makalaust að stjórn Samorku, sem skipuð væri forsvarsmönnum stærstu orkufyrirtækja landsins sem jafnframt eru í opinberri eigu, skyldi leyfa sér að hóta stjórnvöldum að leita til dómstóla ef ákvörðunin yrði ekki endurskoðuð. Þá sagði Álfheiður að stjórn Samorku hefðu ekki fært nein rök fyrir því að úrskurður umhverfisráðherra væri ólöglegur.
Franz segist aldrei hafa fullyrt neitt um að úrskurðurinn væri ólögmætur. En ég hef sagt að hann væri óheppilegur og hefði áhrif á fyrirtæki sem ætluðu að framleiða orku. Ég hef ekki sagt að úrskuður umhverfismálaráðherra væri ólöglegur. Ég hef hins vegar sagt að hann kynni að vera ólöglegur," segir Franz.
Franz segir fullyrðingar Álfheiðar um málshöfðun vera byggðar á misskilningi Samorka leitar ekki til neins. Það gera málsaðilar," segir Franz og vísar þar til Þeyrstareykja og Landsvirkjunar. Franz tekur hins vegar skýrt fram að iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, hefði fullyrt að úrskurður umhverfisráðherra myndi ekki hafa áhrif á tímaáætlanir varðandi álver á Bakka. Ef að öll orð sem hafa fallið um að ekkert tefðist eru rétt þá munu Þeystareykir ekkert gera," segir Franz. Verði hins vegar töf á framkvæmdum muni Þeystareykir skoða vandlega þann möguleika að leita réttar síns.
(visir.is)
Það er mjög undarlegt,að Samorka skuli draga úrskurð umhverfisráðherra í vafa.Áður en úrskurður um sameiginlegt umhverfismat var kveðinn upp var það kannað mjög ítarega að hann væri lögum samkvæmt.Úrskurðinn er því byggður á traustum lagalegum grunni.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.9.2008 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. september 2008
Matthias baðst afsökunar
Matthías Jóhannessen,fyrrverandi ritstjóri Mbl., bað Guðjón Friðriksson afsökunar á rangri dagbókarfærslu,sem birtist í dagbók hans og varðaði Guðjón Friðriksson.Það var drengilega gert af Matthíasi .Ég tel,að leiðrétting þurfi einnig að koma fram vegna dagbókarfærslu hjá Matthíasi um sjúkrakostnað Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar en hún fór til lækninga í Bandaríkjunum. Gefið var í skyn í dagbókarfærslu,að éitthvað óeðlilegt væri við háan reikning fyrir sjúkrakostnaði Guðrúnar Katrínar í Bandaríkjunum.Ráðherrar voru tilgreindir,sem lýstu undrun á reikningnum.Fram hefur komið,að Tryggingastofnun ríkisins samþykkti að greiða sjúkrakostnað vegna meðferðar forsetafrúarinnar í Bandaríkjunum og var hann samkvæmt reglum. Það var því ekkert óeðlilegt við' umræddan reikning og ósmekklegt að gefa annað til kynna. Þetta þarf að leiðrétta.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 4. september 2008
Verðmerkingar í ólagi i matvöruverslunum
Neytendastofa gerði í ágúst könnun á ástandi verðmerkinga í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Farið var í 77 verslanir og af þeim voru engar athugasemdir gerðar við verðmerkingar í 6 verslunum. Segir Neytendastofa að mmargar kvartanir hafi borist vegna slæmra verðmerkinga í matvöruverslunum og því hafi ekki komið á óvart að könnunin skyldi leiða í ljós að ástandi verðmerkinga í matvöruverslunum sé almennt ábótavant.
Í verslununum voru valdar af handahófi 25 vörur í hverri verslun. Heildarúrtak könnunarinnar var því 1925 vörur. Kannað var hvort vörurnar væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu samræmdist verði í kassa.
Verslanirnar sex þar sem engar athugasemdir voru gerðar, eru 11-11 Grensásvegi, 11-11 Grafarholti, 11-11 Þverbrekku, Krónan Háholti, Nóatún Hringbraut og Samkaup Búðakór. Athugasemdir í öðrum verslunum voru misjafnlega margar, allt frá einni athugasemd í 19 af þeim 25 vörum sem skoðaðar voru.
Verst var ástand verðmerkinga í verslunum 10-11 Borgartúni, 10-11 Lyngási, 10-11 Staðarbergi og 10-11 Firði þar sem hlutfall athugasemda vegna verðmerkinga var yfir 50%.
Heildarniðurstöður könnunarinnar eru þær að af vörunum 1.925 voru verðmerkingar í ólagi í 16% tilvika. Til samanburðar voru verðmerkingar í 12,2% tilvika í ólagi í könnun, sem gerð var 2006 og 5,2% árið 2005.
Í kjölfar könnunarinnar hyggst Neytendastofa senda öllum verslunarkeðjum bréf þar sem greint er frá ástandi í hverri og einni verslun. Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga. ( mbl.is)
Ég fagna því að Neytendastofa skuli taka fyrir verðmerkingar í verslunum. En ég vil benda á annað atriði: Upplýsingum um framleiðsludag og síðasta söludag er mjög ábótavant.T.d. eru engar slíkar merkingar á nýjum ávöxtum. Það er engin leið að sjá hvort eppli og appelsínur séu framleiddar á þessu ári eða sl. ári og ekkert unnt að sjá um síðasta söludag. Þessu þarf að kippa í liðinn.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Verðmerkingum ábótavant í matvörubúðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 4. september 2008
Læknir hryggur vegna vatnspípugreinar MBL.
Svanur Sigurbjörnsson læknir skrifar grein í Mbl. og kvartar yfir greinum blaðsins í gær um vatnspípur.Segist læknirinn vera bæði hryggur og svekktur yfir þessum greinum.Ég tek undir gagnrýni læknisins.Ég varð mjög undrandi þegar ég sá uppsláttinn á baksíðu Morgunblaðsins í gær,mynd af 2 ungum stúlkum sitjandi hjá vatnspípu.Það átti greinilega að skapa þau áhrif að það væri fínt að reykja vatnspípu og hentaði ungu fólki.Síðan var til viðbótar heilsíða innan í blaðinu um vatnspípur.Eitt er að segja frétt af einhverju og annað að glenna málið upp með stórri mynd á útsíðu.Ég tek heilshugar undir með lækninum.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 4. september 2008
Söruh Palin vel fagnað hjá Republikönum
Söruh Palin, varaforsetaefni Repúblikanaflokksins, var afar vel fagnað þegar hún flutti aðalræðuna á þriðja degi flokksþings repúblikana í St. Paul í nótt. Lýsti hún sér sem utanbæjarmanni sem ætlaði til í Washington til að breyta hlutunum.
Ég er ekki hluti af pólitíska valdakerfinu og hef lært fljótt á síðustu dögum, að þeir sem eru ekki innundir þar telja sumir fjölmiðlar þá ekki hæfa fyrir þá einu ástæðu," sagði Palin, sem þurft hefur að fást við ýmsar upplýsingar um fortíð sína.
En hér er lítil frétt fyrir þessa blaðamenn og umræðustjórnendur. Ég er ekki á leið til Washington til að spyrja þá álits - Ég er á leið til Washington til að þjóna bandarísku þjóðinni."
Demókratar hafa velt því fyrir sér hvort Palin búi yfir nægri reynslu til að þjóna sem varaforseti hjartslætti" frá forsetaembættinu. Palin sagðist hins vegar búa yfir mikilli stjórnunarreynslu.
Svona lít ég á það val, sem bandarískir kjósendur standa frammi fyrir. Í stjórnmálum eru frambjóðendur sem nota breytingar til að koma sjálfum sér á framfæri. Svo eru aðrir frambjóðendur, eins og John McCain, sem nota eigin feril til að koma á breytingum," sagði Palin og var greinilega að vísa til Barack Obama, frambjóðanda demókrata.
McCann fagnaði Palin eftir ræðuna og frammámenn í flokknum hrósuðu henni. Rudolph Giuliani, sem sóttist um tíma eftir útnefningu flokksins, sagði að Palin væri fulltrúi nýrrar kynslóðar og hefði meiri stjórnunarreynslu en allir frambjóðendur demókrataflokksins. (mbl.is)
Fjölmiðlar í USA hafa reynt að gera Palin tortrygglega m.a. . dregið dóttur hennar inn kosningabaráttuna. Það er á lágu plani. Palin er ung en ef til vill spjarar hún sig.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Palin afar vel fagnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 4. september 2008
Launahækkun 8,5%-verðlagshækkun 14,5%
Frá fyrra ári hækkuðu laun um 8,5% eða 9,2% á almennum vinnumarkaði og um 6,7% hjá opinberum starfsmönnum.
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,6% hærri á öðrum ársfjórðungi 2008 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 3,1% að meðaltali og laun opinberra starfsmanna um 1,6%.
Greint er frá þessu á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 5,0% en laun sérfræðinga hækkuðu minnst, um 1,6%. Laun verkafólks hækkuðu jafnframt mest frá öðrum ársfjórðungi 2007 eða um 11,2% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, 7,5%.
Hækkun launa eftir atvinnugrein mældist mest í samgöngum og flutningum eða 4,7% frá fyrri ársfjórðungi en minnst mældist hækkun launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða 1,4%.
Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð mest eða um 10,7% en minnst mældist hækkunin í iðnaði eða 8,5%. (visir.is)
Á sama tímabili ágúst 2007- ágúst 2008 hækkaði vísitala neysluverðs um 14,5%,árshækkun sl. 12 mánuði.Af þessum tölum sést að kjaraslerðingin er gífurleg og hún heldur alltaf áfram.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 3. september 2008
Tekist á um stóriðju á alþingi
Öll orkan á Íslandi er frátekin fyrir tvö til tvö og hálft álver næstu árin ef stefna ríkisstjórnarinnar gengur eftir, fullyrti formaður Vinstri grænna á Alþingi í dag og sakaði Samfylkinguna um svikin loforð. Á sama tíma hafni þjóðin fleiri álverum. Ríkisstjórnin styður álver á Bakka.
Steingrímur J Sigfússon, formaður vinstri grænna, hóf umræðuna með því að benda á misvísandi yfirlýsingar ráðamanna um stóriðju fyrir og eftir kosningar. Hann vildi fá að vita hvort það væri stefna ríkisstjórnarinnar, og þar með Samfylkingarinnar, að byggja upp frekari stóriðju þrátt fyrir kosningaloforð og aðrar yfirlýsingar ráðamanna.
Hvað á að virkja til að útvega orku fyrir allar þessar stóriðjur, spurði Steingrímur, verður það neðri Þjórsá, Skjálfandafljót og jökulárnar í Skagafirði? Veruleikinn sé að búið sé að taka frá alla orku fyrir álver og ekkert annað.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, lýsti stuðningi ríkisstjórnarinnar við álver á Bakka, kvaðst andvígur olíuhreinsistöð á Vestfjörðum en vildi ekki gefa upp afstöðu sína til virkjana í neðri hluta Þjórsár. Hann ítrekaði að ekki verður farið inn á óröskuð svæði. Ríkisstjórnin haldi áfram að byggja upp íslenskt atvinnulíf með því að nýta auðlindir af varúð og skynsemi en líka af mikilli umhyggju fyrir náttúrunni sjálfri. (ruv.is)
Mörgum finnst,að lítið hafi breytst í stóriðjumálum frá því fyrir kosningar.Stjórnvöld eru áfram með stóriðju.Samfylkingin hefur að vísu knúið það fram,að ekki verður farið inn á óröskuð svæði.Enn er allt óráðið með það hvort virkjað verður í neðri Þjórsá.Ég tel,að helmingslíkur séu á því að það verði gert.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 3. september 2008
Er komin kreppa?
Miklar umræður urðu um efnahagsmál á alþingi í gær. Geir Haarde forsætisráðherra skýrði frá því að ríkið væri að taka 30 milljarða gjaldeyrislán til þess að styrkja gjaldeyrisforðann.Einnig skýrði hann frá frekari ráðstöfunum í sama skyni.Enginn vafi er á því,að ríkisstjórnin hefur styrkt stöðu sína með því að taka umrætt lán. Ríkisstjórnin hefur sætt harðri gagnrýni fyrir aðgerðarleysi í efnahagsmálum en hún hefuir nú að mesta rekið af sér slyðruorðið.
Stjórnin á þó eftir að gera ráðstafanir til þess að sporna gegn yfirvofandi atvinnuleysi. Auka þarf framkvamkvæmdir ríkisins í þessu skyni.Þess verður nú vart,að samdráttur er mikill í íslensku efnahagslífi. En það er ekki komin kreppa. Það er samdráttur.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 3. september 2008
Aðild að ESB forsenda upptöku evru
Miguel Ángel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, telur evruupptöku Íslendinga án aðildar að Evrópusambandinu ekki koma til greina. Ráðherrann, sem er nú í opinberri heimsókn til Íslands, telur Íslendinga ekki þurfa að óttast að missa yfirráðin yfir fiskimiðunum við inngöngu í ESB. Hann lýsir jafnframt yfir stuðningi við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Moratinos átti í dag fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og Geir Haarde forsætisráðherra, en þetta er í fyrsta sinn sem utanríkisráðherra Spánar kemur í opinberra heimsókn til landsins.
Aðspurður um hvers vegna hann teldi Íslendinga ekki geta tekið upp evruna án aðildarviðræðna vísaði Moratinos til þeirra orða Jean-Claude Trichet, bankastjóra evrópska seðlabankans, að slíkt skref væri ekki raunhæft.
Moratinos er jafnframt þeirrar hyggju að evruupptaka Spánverja hefði reynst farsæl og að gjaldmiðillinn verndaði hagkerfin fyrir miklum utanaðkomandi sveiflum, sem jafnan væri ókostur smærri gjaldmiðla.
Moratinos á sæti í stjórn José Luis Zapatero forsætisráðherra, sem komst til valda eftir kosningar sem fram fóru aðeins nokkrum dögum eftir hryðjuverkaárásirnar í Madrid í mars 2004.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði margt hafa borið á góma í viðræðum þeirra. Hinn spænski kollegi hennar var reiðubúinn til að byggja brýr til Suður-Ameríku til að styrkja Íslendinga í framboðinu til öryggisráðsins, en Spánverjar eiga í miklum viðskiptum við álfuna.
Þá sagði Ingibjörg Sólrún spænska utanríkisráðherrann telja að ekki væri rétt að beita Rússa frekari þvingunum vegna Georgíudeilunnar, svo sem að leggja á þá viðskiptaþvinganir eins og nokkur ESB-ríkin hefðu léð máls á undanfarið. (mbl.is)
Ummæli spænska utanríkisráðherrans um Ísland,evruna og ESB skipta miklu máli,þar eð Spánn er mikilvægt ríki í ESB.Eftir þessi ummæli er tilgangslaust að gæla við þá hugmynd að taka upp evru án aðildar að ESB.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 3. september 2008
Það vantar lágvöruverðsverslun i Grafarholti
Grafarholtið er eitt af nýrri hverfum borgarinnar.Hverfið hefur byggst hratt upp og m.a. er mikið af barnafólki í hverfinu. Í stórum dráttum er þjónusta góð í hverfinu en einn galli er á: Það vantar tilfinnanlega lágvöruverðsverslun í hverfinu.Kaupás er með tvær verslanir þarna,Nóatún og 11/11.Þetta eru ágætar verslanir sérstaklega Nóatún en þar er vöruúrval mikið og gott en verðið er í hærri kantinum.Nú þegar harðnar á dalnum finnst fólki tilfinnanlega vanta lágvöruverðsverslun í Grafarholti. Það er Bónus verslun á Spöng í Grafarvogi en það er nokkuð langt að fara þangað fyrir Grafarholtsbúa.Bónus,Krónan eða Netto þyrfti því að setja upp verslun í Grafarholti. Raunar vekur það furðu að ekki skuli hafa verið sett upp slík verslun í hverfinu. Í Norðlingaholti,sem byggðist seinna en Grafarholt er þegar komin Bónus búð. Sagan segir,að eitthvert samkomulag hafi verið gert á bak við tjöldin um að ekki yrðu settar upp aðrar verslanir en Nóatún ( Kaupás) í Grafarholti.Því verður ekki trúað að slíkt samkomulag hafi verið gert. Það væri brot a öllum reglum um frjálsa samkeppni. Ég skora á Bónus eða Krónuna að setja upp verslun í Grafarholti.
Björgvin Guðmundsson