Föstudagur, 19. september 2008
Reiknivél TR reiknar rétt
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 18. september 2008
Tekjur úr lífeyrissjóði skerði ekki tryggingabætur
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að frá og með næstu áramótum skerði séreignalífeyrissparnaður ekki tryggingabætur.Það er gott skref. En hvað með tekjur úr lífeyrissjóði? Hvers vegna er ævisparnaður fólks í lífeyrissjóði látinn skerða tryggingabætur?Það var ekki meiningin þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir. Og hvers vegna hefur ríkisstjórnin meiri áhuga á því að setja ótakmarkað frítekjumark á séreignalífeyrissparnað en á tekjur úr lífeyrissjóði. Það yrði mikið meiri kjarabót fyrir eldri borgara að fá það afnumið að tekjur úr lífeyrissjóði skerði tryggingabætur.Það er erfitt að skilja forgangsröð ríkisstjórnarinnar í þessu efni. Hún er greinilega ekki í þágu eldri borgara. Hún er ef til vill í þágu fjármálaráðherra. Það er alltaf valin sú leið sem er ódýrust fyrir ríkið.
Það er hneyksli,að tekjur úr lífeyrissjóði skuli skerða lífeyri frá almannatryggingum..Eldri borgarar eiga það sem þeir fá greitt úr lífeyrissjóði. Þetta er þeirra sparnaður.Það er einnig hneyksli að skattleggja tekjur úr lífeyrissjóði eins og laun. Í mesta lagi ætti að skattleggja þær eins og fjármagnstekjur með 10% skatti.Þetta hvort tveggja verður að leiðrétta.
Björgvin Guðmundsson
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 18. september 2008
Frestað byggingu 900 húsa
Byggingafyrirtækið Eykt sem ætlaði að reisa níuhundruð hús, norðan Suðurlandsvegar og austan Varmár í Hveragerði hefur nú frestað áformum sínum um eitt og hálft ár vegna niðursveiflu í efnahagslífinu. Gert var ráð fyrir að hefja framkvæmdir I byrjun næsta árs. Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hveragerði segir þetta vissulega áfall fyrir bæjarfélagið en þó beri að líta til þess að skipulagsvinnu hafi seinkað. Hún segir ástandið á byggingamarkaði fyrst og fremst áfall fyrir þjóðfélagið allt.
Stjórnendur bæjarins hafa ráðist í markaðsátak til að kynna kosti þess að búa í bænum og láta þvi engan bilbug á sér finna. Innan skamms hefjast reglulegar ferðir strætisvagna milli Hveragerðis og Reykjavíkur. Sami miðinn mun einnig gilda í leiðarkerfi Strætó bs og reyndar verður hægt að ferðast alla leið á Akranes með því að nota skiptimiða.(mbl.is)
Þessi frestun byggingarframkvæmda er bein afleiðing samdráttarins í þjóðfélaginu.Það er ekki kreppa en það er niðursveifla og samdráttur.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
900 byggingum slegið á frest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 18. september 2008
Er Framsókn að taka frumkvæðið í Evrópumálum?
Framsókn leggur til,að næsta vor fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB.Þetta er róttæk tillaga og bendir til þess að Framsókn ætli sér að taka frumkvæði í Evrópumálum. Fróðlegt verður að sjá hvernig ríkisstjórin bregst við tillögunni. Samfylkingin mun ef til vill taka undir hana en Sjálfstæðisflokkurinn ekki. En Sjálfstæðisflokkurinn ætti að veita tillögunni brautargengi. Það væri skynsamlegt.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 18. september 2008
Krónan hefur fallið um 47% á árinu!
Krónan hefur fallið um 10,1% í september. Í gær lækkaði gengi krónunnar um 2,5%. Hefur gengi krónunnar aldrei verið eins lágt. Frá áramótum hefur geng krónunnar lækkað um 47%.
Ráðstafanir Seðlabankans til þess að lækka verðbólguna hafa reynst gagnslausar. Bankinn hefur stöðugt hækkað stýrivexti í þeim tilgangi að lækka verðbólguna en hinir háu vextir eru hættir að virka.Hins vegar fara vextirnir út í verðlagið og auka verðbólguna. Gengislækkun krónunnar hækkar verð allra innfluttra vara og er sem olía a eld verðbólgunnar. Það er orðið ljóst að grípa verður til nýrra ráðstafana til þess að lækka verðbólguna. Markaðslausnir duga ekki. Það verður að beita handafli og miðstýrðum lausnum. Í háborg kapitalismans er nú beitt miðstýrðum aðferðum til þess að forða enn meira hruni á fjármálamarkaðnum.Bandaríkjastjórn hefur þjóðnýtt eitt stærsta tryggingafélag heims,AIG, til þess að forða gjaldþroti þess. Bandaríkjastjórn dælir fjármagni út í kerfið til þess að koma því í gang aftur. En hér er ríkisstjórnin kaþólskari en páfinn og segir að markaðurinn leysi öll vandamálin.Efnahagsráðgjafi forsætisráðherra talar um hreingerningu í Bandaríkjunum,þegar stærstu fyrirtæki þar fara á hausinn. Markaðurinn leysir ekki vandamálin hér,a.m.k. kemur hann ekki verðbólgunni niður. Það verður að grípa til annarra aðgerða.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 18. september 2008
Eldri borgarar fengu í fyrradag 1484 kr. hækkun á mánuði!
Fimmtudagur, 18. september 2008
Krónan í frjálsu falli.Kjörin versna stöðugt
Erfiður dagur er að baki á gjaldeyrismarkaði en gengi krónunnar veiktist um 2,48% í dag. Gengisvísitalan var við upphaf viðskipta 171,70 stig en lokagildi hennar er 175,95 stig og hefur aldrei verið jafn hátt. Innan dagsins fór gengisvísitalan í 178,45 stig. Það sem af er ári nemur veiking krónunnar hátt í 50%.
Gengi Bandaríkjadals er 94,76 krónur, pundið er 169,40 krónur og evran 133,61 króna. Mikil velta var á millibankamarkaði eða um sjötíu milljarðar króna. (mbl.is)
Krónan hefur nú fallið um meira en 40% á árinu.Er þetta algert hrun á krónunni enda en nú algert vantraust á henni og æ fleiri vilja kasta henni fyrir annan gjaldmiðil.Allir sjá hvað yfir 40% fall krónunnar hefur haft í för með sér fyrir heimilin í landinu.Lánin hafa hækkað,verrðlag hefur hækkað kjörin hafa versnað.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Krónan veiktist um 2,48% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 18. september 2008
Valdabarátta í frjálslynda flokknum
Mikil valdabarátta er nú í frjálslynda flokknum. Gerð var ályktun í miðstjórn flokksins um að Jón Magnússson ætti að taka við formennsku í þingflokknum af Kristni Gunnarssyni.Gallinn er aðeins sá,að miðstjórnin hefur ekki með málið að gera heldur þingflokkurinn,sem kýs sér sjálfur formann.Ekkert fararsnið mun vera á Kristni úr embættinu. Verður fróðlegt að sjá hver framvindan verður en þingflokkurinn er ekki það stór,að það taki því að kljúfa hann niður. Össur hefur boðið Kristin velkominn í Samfylkinguna.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 17. september 2008
Livni næsti forsætisráðherra Ísraels?
Ef útgönguspár fjölmiðla í Ísrael ganga eftir þá hafa meðlimir ísraelska stjórnarflokksins kosið utanríkisráðherrann Tzipi Livni sem nýjan leiðtoga sinn og þar með næsta forsætisráðherra landsins.
Útgönguspár tveggja sjónvarpsstöðva gefa það til kynna en samkvæmt þeim hefur Livni sigrað samgönguráðherrann Shaul Mofaz með meirihluta sem hleypur á bilinu 37 til 48%.
Livni hefur þegar lýst yfir sigri og þakkað stuðningsmönnum sínum og sagði hún í þakkaræður sinni að hún myndi sjá til þess að bregðast ekki traustinu og koma öllu því í verk sem stuðningsmennirnir hafa barist fyrir.
Endanleg niðurstaða mun samkvæmt Reuters fréttastofunni ekki fást fyrr en eftir nokkrar klukkustundir. Talsmaður Mofaz sagði að hann hygðist ekki tjá sig um kosningarnar fyrr en á morgun.(mbl.is)
Nokkuð öruggt er að Livni verði næsti forsætisráðherra
Israels. Hún verður þá önnur konan til þess að gegna því embætti í Ísrael. Sú fyrri var Golda Meir,leiðtogi jafnaðarmanna í landinu.Ég hitti Goldu Meir,þegar ég fór til Ísraels 1975 í boði jafnaðarmannaflokks Ísraels. Hún var mikill persónuleiki.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Livni hefur lýst yfir sigri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 17. september 2008
Gjaldþrot braskstefnunnar
Hér áður reyndu stórnendur fyrirtækja að reka þau sem best og stunda þá starfsemi sem þau voru stofnuð til þess að reka. En svo kom. að það þótti ekki nóg. Fyrirtækin tóku að braska, kaupa önnur fyrirtæki,eða hlut í öðrum fyrirtækjum . Þetta kalla ég braskstefnuna en líka mætti nefna þetta græðgisvæðingu.Í byrjun græddu mörg fyrirtæki mikið á braskinu,bæði hér og erlendis. En svo kom að braskið mistókst. Dæmi um þetta eru Fl Group og Eimskip. Þetta voru hvort tveggja mjög góð fyrirtæki. En segja má að þau hafi orðið braskstefnunni að bráð og hrunið. Það er stundum betra að fara varlega og ætla ekki að græða of mikið.
Björgvin Guðmundsson