Laugardagur, 19. janúar 2008
Félagshyggjumenn eiga að standa saman
Ég er ekkert hissa á því,að Björn Ingi sé orðin þreyttur á innanflokksátökum í Framsóknarflokknum.Þessi síðasta árás Guðjóns Ólafs er mjög lúaleg.Mér skilst,að samstarfið í meirihlutanum í borgarstjórn gangi vel ekki síst samstarfið milli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og Björns Inga,borgarfulltrúa,milli Samfylkingarinnar og Björns Inga.Félagshyggjumenn eiga að standa saman. Ef til vill geta félagshyggjumenn í borgarstjórn Rvíkur treyst samstarfið sín á milli
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
![]() |
Björn Ingi úr Framsóknarflokki? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.1.2008 kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 19. janúar 2008
Hallinn á vöruskiptunum 84 milljarðar
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 nam verðmæti vöruútflutnings 50 milljörðum eða 22,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,9% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 41% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 35,2% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings.
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 nam verðmæti vöruinnflutnings einum milljarði eða 0,3% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru.
Framangreindar tölur leiða í ljós,að vöruskiptajöfnuðurinn hefur þróast í rétta átt árið 2007, útflutningur hefur aukist en innflutningur minnkað. En þó er vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 84 milljarði fyrstu 11 mánuði ársins.Það er 84 milljörðum of mikið.Þessi halli á þátt í óstöðugleika í efnahagslífinu og verðbólgu. Það þarf að binda endi á hallann, fyrst og fremst með auknum útflutningi en hátt gengi krónunnar hefur hamlað útflutningi lengi undanfarið.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)