Mánudagur, 13. október 2008
Ólafur Ragnar:Bresk stjórnvöld ótrúlega ósanngjörn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld, að hrun íslensku bankanna hefði á síðustu stigum m.a. verið afleiðing af ótrúlegum málflutningi og ósanngirni breskra stjórnvalda. Ólafur sagði einnig að hann hefði vissulega stutt útrás íslenskra banka og fyrirtækja af kappi og hugsanlega hefði ýmislegt verið ofsagt í þeim efnum.
Helgi Seljan, fréttamaður, ræddi við Ólaf Ragnar og sagði m.a að margir teldu þörf á að kanna hvað hefði farið úrskeiðis og hverjum væri um að kenna. Ólafur Ragnar svaraði, að í landinu þyrfti að fara fram opin og heiðarleg og hispurslaus umræða sem allir ættu að taka þátt í og horfa í eigin barm, ekki síst þeir sem hefði verið falin ákveðin ábyrgð, hvort sem það væri á vettvangi stjórnkerfis eða atvinnulífs.(mbl.is)
Forseti Íslands var mjög ákveðinn í gagnrýni sinni á bresk stjórnvöld.Helga Seljan var mikið í mun að fá forsetann til þess að viðurkenna,að honum hefðu orðið á mistök þegar hann hældi útrásinni.Forseti sagði,að vissulega gæti verið að hann hefði á stundum talað of sterkt þegar hann talaði vel um útrásina. Hann væri enn þeirrar skoðunar,að útrás væri nauðsynleg til þess að tryggja Íslendingum nægilega góð lífskjör.
Björgvin Guðmundsson
9
![]() |
Ólafur Ragnar: Ótrúleg ósanngirni breskra stjórnvalda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 13. október 2008
Kaupa lífeyrissjóðir Kaupþing?
Nokkrir stærstu lífeyrissjóðir landsins kanna möguleika á að kaupa starfsemi og eignir Kaupþings. Það skýrist á næstu dögum hvort af þeim kaupum verður. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, segir að fyrst og fremst yrði um að ræða innlendan hluta Kaupþings, en að einhverju leyti einnig erlendan hluta. Með kaupunum vilji lífeyrissjóðirnir bjarga miklum verðmætum, sem í Kaupþingi búi.
Málið á sér stuttan en snarpan aðdraganda, Þorgeir segir að umræður meðal lífeyrissjóðamanna hafi hafist þegar er Kaupþing féll um miðja síðustu viku. Miklum verðmætum yrði bjargað næðu kaupin fram að ganga, segir Þorgeir.
Strax hafi verið farið út í það að finna leiðir til að bjarga verðmætum lífeyrissjóðanna til að tryggja hagsmuni sjóðsfélaga sem best.
Auk Lífeyrissjóðs verslunarmanna koma að málinu Gildi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Stafir. Engar fjárhæðir eru enn á lofti, enda kannski ekki fyllilega ljóst á þessu stigi hve stór hluti bankans verði keyptur, en hryggurinn í því sem verði keypt sé innlend starfsemi bankans.
Ætlunin er að lífeyrissjóðirnir kaupi meirihluta í fyrirtækinu, sem yrði hið nýja Kaupþing. Hafa verður hraðar hendur, segir Þorgeir, því ef af verður þarf að ganga frá kaupunum áður en nýr banki verður stofnaður, líkt og gert hefur verið við Landsbankann og Glitni. Því eru aðeins fáeinir dagar til stefnu og stjórnir lífeyrissjóðanna fimm sem um ræðir verða að gera upp hug sinn í kvöld, um það hvort láta eigi reyna á að þessi leið sé fær. Lífeyrissjóðirnir kanni nú grundvöll fyrir því að skrifa sameiginlega á morgun formlegt erindi til stjórnvalda þar sem óskað sé eftir viðræðum um kaup á eignum og rekstri Kaupþings. Lífeyrissjóðirnir hafi fundað með forsætis-, viðskipta-, iðnaðar-og menntamálaráðherra í gær og fengið jákvæð viðbrögð við þessum þreifingum sínum. Ljóst sé að fleiri fjárfestar þurfi að koma að kaupunum.(ruv.is)
Það er vel til falliö,að lífeyrissjóðir kaupi starfsemi og eignir Kaupþings hér á landi. Lífeyrissjóðir áttu mikið hlutafé í Kaupþingi og ef til vill geta þeir bjargað miklum verðmætum með því að kaupa bankann. Margir launþegar mundu beina viðskiptum sínum til banka í eigu lífeyrissjóðanna.
Björgvin Guðmundsson
Mánudagur, 13. október 2008
Á annað þúsund bankamenn missa vinnuna
Atli Atlason, starfsmannastjóri Landsbankans, segir að um 300 starfsmönnum bankans hafi verið sagt að þeim verði ekki boðið starf í Nýja Landsbankanum en að engum hafi þó enn verið formlega sagt upp störfum. Þá segir hann að öllum starfsmönnum bankans, sem eigi von á því að missa vinnuna hafi verið gerð grein fyrir því.
Atli segir að vegna aðstæðna hafi mikil óvissa skapast meðal starfsmanna en að henni hafi nú að mestu verið eytt. Aldrei hafi t.d. staðið til að fimm hundruð manns misstu vinnuna eins og greint hafi verið frá í fjölmiðlum.(mbl.is)
Reiknað er með að 800-1000 manns missi vinnuna í Glitni og Kaupþingi.Það má því reikna með að á annað þúsund manns missi vinnuna í öllum bönkunum. Nauðsynlegt er að reyna að úvega þeim nýja vinnu.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Um 300 fá ekki störf í Nýja Landsbankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. október 2008
Lýðskrum breska fjármálaráðherrans heldur áfram
Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, sagði á blaðamannafundi með Gordon Brown, forsætisráðherra, í morgun að mikilvægt væri að ná samkomulagi við íslensk stjórnvöld um greiðslur til breskra sparifjáreigenda.
Darling sagði að íslensk stjórnvöld yrði að gera sér grein fyrir að hún stæði frammi fyrir miklum vanda sem einungis yrði leystur með róttækum aðgerðum. Á sama tíma myndu Bretar standa vörð um eigin hagsmuni. Darling sagðist hafa rætt við Árna Mathisen, fjármálaráðherra, í Washington á laugadag og sagðist hafa sagt honum að mikilvægt væri að málið yrði leyst sem fyrst.
Darling sagði að yfirlýsingar væri að vænta fljótlega um málefni Landsbankans. Darling og Brown kynntu í morgun aðgerðir til bjargar þremur breskum bönkum og sagði Darling að allt yrði gert til að koma á stöðugleika á breskum bankamarkaði og gera hann sterkari. Evrópskir seðlabankar sögðu það sama í morgun og tilkynntu að þeir hygðust útvega meirafé til að stemma stigu við bankakreppunni.(mbl.is)
Breskir ráðamenn halda áfram að tala til breskra kjósenda eins og um kosningar væri að ræða.Þannig segir Darling,að íslenska stjórnin verði að gera sér grein fyrir því,að um mikinn vanda sé að ræða. Darling veit,að íslenska stjórnin gerir sér það ljóst en samt segir hann þetta vegna breskra kjósenda.Það náðist strax samkomulag við Hollendinga um innistæður á icesave reikningum þar. Málið er raunar einfalt. Það þarf að ábyrgjast ca. 3 milljónir á mann,þegar um sparifé er að ræða,samkv. reglum EES. Þetta ætti að vera jafn einfalt hjá Bretum en þeir eru ekki eins samningsfúsir.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. október 2008
Ísland verður nú að nýta allar sínar auðlindir
Vegna fjármálakreppunnar á Islandi og mikils atvinnuleysis af völdum hennar eru nú gerbreyttar aðstæður á Íslandi. Við verðum því að nýta allar okkar náttúruauðlyndir. Við þurfum að virkja meira,bæði vatnsafl og gufuafl.Við þurfum að reisa fleiri verksmiðjur,sem nýta raforku.Við þurfum að skapa ný atvinnutækifæri, setja aukinn kraft í orkuútrásina og nýta allt það undirbúningsstarf sem hefur verið unnið til þess að undirbúa orkuútrás. Við þurfum að setja stóraukið fjármagn í háskólana og gera þeim kleift að ráða fjölda manns með góða menntun til þess að vinna að nýjum atvinnutækifærum.Og síðast en ekki síst eigum við að taka veiðiheimildirnar í hendur þjóðarinnar og leigja þær út. Þjóðin þarf á því að halda.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. október 2008
Hlutabréf í Evrópu hækka
Evrópsk hlutabréf hafa hækkað mikið í morgun frá því viðskipti hófust í fyrstu kauphöllunum klukkan 7 í morgun. Þannig hefur FTSE hlutabréfavísitalan í Lundúnum hækkað um 5,27%, DAX vísitalan í Frankfurt um 5,36% og CAC vísitalan í París um 5,48%.
Sömu sögu er að segja af Norðurlöndunum. Vísitalan í kauphöllinni í Stokkhólmi hefur hækkað um 6,5%, í Kaupmannahöfn um 7%, Helsinki 4,9% og í Ósló um 7%.(mbl.is)
Hækkun hlutabréfa stafar sjálfsagt af samkomulagi helstu iðnríkja heims um að leggja bönkum og fjármálastofnunum til mikið fé.
Björgvin Guðmundsson
T
![]() |
Evrópsk hlutabréf snarhækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 13. október 2008
Er Jón Ásgeir syndaselurinn?
Viðtal Egils Helgasonar við Jón Ásgeir í gær var mjög undarlegt. Egill virtist staðráðinn í því að negla Jón Ásgeir sem einhvern allsherjar blóraböggul vegna misjafnra bankastjórnenda og útrásarliðs.Egill lét skammirnar dynja á Jóni Ásgeiri og hleypti honum ekki að til þess að svara..
Er er Jón Ásgeir aðal syndaselurinn.Er unnt að kenna honum um ófarir bankanna. Lítum á feril Jóns. Jón Ásgeir byrjaði að vinna hjá föður sínum í Bónus sem ungur drengur og unglingur.Þeir fegðar byggðu upp Bónus verslanirnar á Íslandi.Þeir fengu ekkert upp í hendurnar.Þegar Bónus keðjan var farin að skila góðum hagnaði hóf Jón Ásgeir fjárfestingu erlendis og Baugur var stofnaður. Það fyrirtæki óx mjög hratt.Útrásin var búin að standa lengi,þegar Jón Ásgeir kom að Glitni sem hluthafi og stjórnarmaður.Honum verður ekki kennt um ofvöxt bankanna. Agli hefði verið nær að ræða við ráðamenn Landsbanka og Kaupþings og fyrrum ráðamenn Glitnis.Þeir bera ábyrgðina og svo þær eftirlitsstofnanir sem brugðust,Seðlabanki og Fjármálaeftirlit.Það var út í hött þegar Egill Helgason var að kenna Jóni Ásgeiri um tap sparifjáreigenda.Það var einnig út í hött þegar hann spurði Jón Ásgeir hvort hann væri tilbúinn að fara að vinna aftur í Bónus og deila kjörum með öðrum Íslendingum í uppbyggingunni.Hann hefði aldrei varpað slíkri spurningu til Björgólfs og Sigurðar Einarassonar.Silfur Egils,sem er á vegum ríkisins, var greinilega notað hér til þess að framlengja 6 ára lögreglurannsókn og málaferli yfir Baugi.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 13. október 2008
"Hann var fullur heiftar og haturs út í Jón"
Ég bloggaði nokkur orð um viðtal Egils Helgasonar við Jón Ásgeir í Silfri Egils í dag. Ég sagði ekkert um efnisatriði,heldur gagnrýndi framkomu Egils við Jón Ásgeir.
Baldvin Baldvinsson svaraði bloggi mínu á þessa leið:
Ég er nokkuð sammála þér varðandi þetta viðtal. Við skulum láta liggja
milli hluta hvað þessir menn kannski hafa á samviskunni, en þegar þeir koma
eins og Jón Ásgeir í viðtal, þá finnst mér það þakkarvert og jafnframt
sýnir það mér að maðurinn er hugrakkur. Hitt er svo annað mál að ég get með
engu móti séð hvernig er hægt að fá einhvern í viðtal og spyrill þáttarins
er með eintal. Hann var fullur heiftar og haturs út í Jón og Jón fékk ekki
að svara nema að mjög takmörkuðu leyti því sem hann var spurður um. Reyndar
finnst mér þetta loða ansi mikið við fjölmiðlafólk yfir höfuð að þykjast
vita meira um hlutina en viðmælendur þeirra og það er mikil afturför ef
fólk fær ekki að tjá sínar skoðanir fyrir spurningaflóði sem engu skilar.
Menn standa eftir sem áður með fleiri spurningar en svör við því sem á stað
var lagt með. Semsagt að fá eitthvað af viti útúr viðmælandanum.
Ég geri framangreind orð að mínum. Egill var fullur heiftar út í Jón.Hann hefði aldrei komið svoina fram við Björgólf Guðmundsson.
Björgvin Guðmundsson