Föstudagur, 28. nóvember 2008
Þeir,sem töpuðu í peningamarkaðssjóðum Landsbankans krefjast bóta
Hópur fólks sem tapaði fjármunum í peningabréfasjóði Landsbankans hefur ítrekað kröfur sínar um bætur. Hópurinn þingaði í gær með Elínu Sigfúsdóttur, bankastjóra nýja Landsbankans og Ásmundi Stefánssyni, formanni bankaráðs.
Á fundinn mættu tæplega 200 mans sem tapað hafa rúmum þriðjungi sparnaðar í peningabréfum Landsbankans. Mikil reiði ríkir meðal eigenda peningamarkaðsbréfanna. Sú reiði beinist ekki síst að starfsfólki Landsbankans sem hvatti fólk á sínum tíma til að flytja fé sitt af innlánsreikningum yfir í peningabréf. Bréfin hafi verið kynnt sem Sparireikningur og því áhættulaus og án bindingar. Peningabréfin hafi ekki verið kynnt þannig að fólk ætti á hættu að tapa verulegum hluta höfuðstóls sparnaðar síns.
Fjárfestingarstefna sjóðsins var og harkalega gagnrýnd og ítrekaðar kröfur um að rannsakað verði hvort innherjar hafi verið í þeim hópi sem innleysti bréfin sín fáum dögum fyrir hrun bankans. Að minnsta kosti 70 milljarðar króna streymdu úr peningamarkaðssjóðum Landsbankans fáum dögum fyrir hrunið.
Á fundinum var upplýst að fyrrverandi stjórnarformaður sjóðsins hafi sagt upp störfum en ein krafa fjármagnseigendanna var að framkvæmdastjórinn yrði látinn víkja, m.a. vegna óskynsamlegra fjárfestinga og þess að sjóðurinn skilaði mestu tapi peningamarkaðssjóða gömlu bankanna þriggja.
Fólk sem átti fé í peningabréfasjóði Landsbankans vill að það sem sagt er tapað verði lagt á verðtryggða reikninga sem yrðu lausir eftir einhver ár. Skuldajöfnun kemur einnig til greina eða að eigendur peningabréfanna fái hlutabréf í nýju bönkunum. Þá hefur verið nefnt að þar sem um ríkisbanka er að ræða, geti skattaafsláttur komið til.
Eigendur peningabréfanna segjast ekki ætla að borga fyrir óábyrg vinnubrögð banka- og ráðamanna.(mbl.is)
Eðlilegt er,að mikil reiði ríki meðal þeirra,sem töpuðu fjármunum á því að leggja peninga í peningamarkaðssjóði.Mönnum var ráðlagt að leggja peninga sína frekar í þessa sjóði en á venjulegar sparisjóðsbækur. Ávöxtun væri mikið betri. Ekki mun hafa verið tekið fram,að þessu fylgdi áhætta. Finna þarf leið til þess að bæta fólki þessi töp og virðast mér þær leiðir sem fólkið hefur bent á vera skynsamlegar.
Björgvin Guðmundsson
Til baka
![]() |
Ítreka kröfur um bætur vegna peningabréfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 28. nóvember 2008
Skorið niður um 600 millj, hjá RUV
Skorið verður niður í rekstri Ríkisútvarpsins og starfsmönnum fækkað til að koma til móts við erfiða rekstrarstöðu. Menntamálaráðherra segir jafnframt líklegt að staða RÚV á auglýsingamarkaði breytist.
Fréttablaðið segir frá því í dag að til standi að ná fram hagræðingu í rekstri Ríkisútvarpsins sem nemur allt að 600 milljónum króna. Meðal annars verði allt að 30 starfsmönnum sagt upp störfum. Þetta hafa stjórnendur Ríkisútvarpsins ekki staðfest en þó nokkrir starfsmenn hafa fengið uppsagnarbréf í morgun.
Páll Magnússon útvarpsstjóri hefur boðað til starfsmannafundar eftir hádegi þar sem farið verður yfir rekstrarstöðu Ríkisútvarpsins og nauðsynlegar aðgerðir vegna hennar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, segir stöðuna almennt erfiða á fjölmiðlamarkaði.
Þorgerður segir jafnframt líklegt að staða ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði muni breytast. Fjölmiðlanefndin, sem starfað hefur á vegum ráðherra í um tvær vikur, hefur fjallað um fjölmiðla og auglýsingamarkaðinn og skilar niðurstöðum sínum á allra næstu dögum. Nefndin hefur ekki komist að niðurstöðu en skoðar að takmarka stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði, álit samkeppniseftirlitsins um RÚV á auglýsingamarkaði, niðurskurðartillögur stjórnar RÚV og nefskattinn til RÚV sem tekinn verður upp um áramót. Gert er ráð fyrir að niðurstaða nefndarinnar verði meðal annars í formi frumvarps sem taki gildi um áramót.(ruv.is)
Það er eðlilegt,að RUV skeri niður eins og nú árar í þjóðfélaginu. Mér hefur einnig oft fundist ansi mikið bruðl hjá stofnuninni.Það er t.d. eins og þáttagerðarmenn hafi frjálsar hendur með eyðslu,t.d. í fargjöldum og ferðakostnaði.Þá þyrfti að skera niður laun þeirra,sem hæst hafa launin og einnig mætti minnka hlunnindi þeirra. Hvort veggja er langt úr hófi fram.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 28. nóvember 2008
ASÍ vill ,að menn axli ábyrgð af bankahruninu
Alþýðusamband Ísland krefst þess,að stjórnir Fjármálaeftirlits og Seðlabanka víki og axli þannig ábyrgð af bankahruninu.Einnig vill forseti ASÍ að fjármálaráðherra og bankamálaráðherra víki af sömu ástæðu.
Nokkuð eru skiptar skoðanir um það hvort geri eigi einstaka ráðherra ábyrga fyrir hruni bankanna.Eðlilegra er,að öll ríkisstjórnin og alþingi axli ábyrgð með því að flýta kosningum. Ég tel eðlilegt að kosið verði næsta vor.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 28. nóvember 2008
Gott hjá Jóhönnu
Jóhanna Sigurðardóttir félags-og tryggingamálaráðherra neitar að framkvæmda 10% flatan niðurskurð í velferðarkerfinu.Það er gott hjá Jóhönnu. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina að skera niður um 10% í velferðarkerfinu. Það þarf fremur að efla velferðarkerfið nú,þegar atvinnuleysi dynur á landsmönnum og kjaraskerðing er gífurleg vegna gengishruns krónunnar og mikillar verðbólgu.Bankahrunið hefur komið illa við eldra fólk.Margt af því hefur tapað öllum ævisparnaði sínum.Margir eldri borgarar verða nú að treysta eingöngu á lífeyri almannatrygginga en hann er aðeins 150 þús. á mánuði fyrir skatta hjá einhleypingum,130 þús. eftir skatta. Það lifir enginn af því í dag eftir að erlendur gjaldeyrir hefur hækkað um 100% í verði og margar matvörur hafa hækkað um 50%.Eina vörnin fyrir eldri borgara,öryrkja og láglaunafólk í dag er velferðarkerfið.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 28. nóvember 2008
Breytist afstaðan til Evrópusambandsins?
Morgunblaðið birtir í dag grein eftir Björgvin Guðmundsson undir fyrirsögninni: Breytt landslag í íslenskum stjórnmálum.Þar segir svo m.a.:
Föstudagur, 28. nóvember 2008
Ítarleg rannsókn á orsökum bankahrunsins að hefjast
Rannsóknin á orsökum bankahrunsins á að ná aftur til þess tíma er bankarnir voru einkavæddir og horfa þarf til þeirra ásakana sem uppi voru á þeim tíma innan og utan þings. Um þetta voru Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar, sammála á Alþingi í gær þegar rætt var um frumvarp sem felur í sér stofnun nefndar er rannsaka á bankahrunið og aðdraganda þess.
Þingmenn voru almennt jákvæðir í garð málsins og lögðu ríka áherslu á að allar staðreyndir yrðu dregnar fram í dagsljósið.
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, mælti fyrir frumvarpinu en meðflutningsmenn eru formenn allra stjórnmálaflokkanna. Benti Sturla á að með skipan nefndarinnar væri Alþingi að fikra sig inn á nýjar brautir. Samkvæmt stjórnarskránni má skipa rannsóknarnefndir þingmanna til að skoða ákveðin mál en ljóst þótti að víðtækari sátt gæti náðst væri rannsóknin í höndum óháðra sérfræðinga.
Ögmundur Jónasson sagði rannsóknina hljóta að snúa að stjórnmálum og þá jafnt stjórn sem stjórnarandstöðu. Nauðsynlegt er að spyrja um hvað var gert og hvað var ekki gert, hvaða lög og reglur voru settar og hvaða tillögur voru hunsaðar, sagði Ögmundur og lagði líka áherslu á að horft yrði til þess hvernig framkvæmdavaldið hefði farið með vald sitt.
Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, sagði augljóst að væri Ísland ekki aðili að EES hefði bankahrunið ekki átt sér stað. Frjálst flæði fjármagns hefði gert bönkunum mögulegt að stækka svo mikið. Lagaumhverfið hér væri það sama og í öðrum Evrópulöndum. Síðan er það spurningin hvers vegna í ósköpunum lagaramminn og lögin og reglurnar voru og eru þannig að svona hlutir geti gerst, sagði Valgerður og Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, sagði augljóst að regluverk ESB væri meingallað.
Þá lagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, áherslu á að ekki yrði gengið til kosninga fyrr en niðurstöður nefndarinnar lægju fyrir til þess að kosningar gætu orðið það uppgjör sem til þyrfti.(mbl.is)
Miklar umræður urðu um þetta mál á alþingi. Má segja,að þverpólitísk samstaða hafi náðst um það. Rannsakað verður ítarlega hvað geti hafa farið úrskeiðis og störf ríkisstjórna,núverandi og fyrrverandi verða rannsökuð í því sambandi.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 28. nóvember 2008
Vilhjálmur Egilsson ósáttur við gjaldeyrishöftin
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur að lög um gjaldeyrismál muni stórskaða íslenskt viðskiptalíf. Hann fór fram á að frumvarpið yrði dregið til baka hið snarasta, en samkvæmt því er Seðlabankanum gert kleift með tímabundnum takmörkunum á gjaldeyrisviðskipti að hindra fjármagnsflótta úr landi.Hann sagði:
Ég legg eindregið til að þetta frumvarp verði dregið til baka hið snarasta, segir Vilhjálmur. Þetta er þvílíkt skref aftur á bak og gengur þvert á það sem talað er um í bréfi ríkisstjórnarinnar til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þar sem hún skuldbatt sig til þess að leggja ekki frekari höft á gjaldeyrisviðskipti, né koma á fjölgengisfyrirkomulagi. Með þessu frumvarpi sem verið er að leggja fram er verið að framlengja í þessum gjaldeyrishöftum og gera þau víðtækari. Þetta þýðir að það verður mun torveldara að hækka gengi krónunnar en annars, því menn munu hafa ennþá minna traust á íslensku viðskiptaumhverfi, segir Vilhjálmur og heldur áfram.
Innflytjendur munu mjög fljótt fara í það far sem var hér áður, þegar menn voru með umboðslaun og alls kyns viðskipti með vörur og þjónustu fram og til baka erlendis áður en varan og þjónustan var tekin inn í landið. Í þeim viðskiptum urðu til eignir erlendis. Útflytjendur sem það vilja munu í gegnum greiðslufresti og umboðsfyrirtæki hafa algjöra stjórn á því hvað þau koma með inn í landið og allt þetta mun stórkostlega skaða íslenskt viðskiptalíf.(mbl.is)
Ég er ekki sammála Vilhjálmi.Ég held,að það sé nauðsynleg öryggisráðstöfun að hafa heimild fyrir gjaldeyrishöftum tímabundið,þar er mikil hætta er á miklum fjármagnshreyfingum úr landi og það þarf að vera heimilt að stöðva þær.Vinandi þarf ekki að beita h0ftum nema stuttan tíma.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Mun stórskaða viðskiptalífið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)