Vextir Seðlabankans verða sennilega óbreyttir

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í fréttum Útvarps, að miklir óvissutímar væru framundan og afar þýðingarmikið sé við þessar aðstæður að menn fari varlega. 

Seðlabankinn hafði spáð lækkandi gengi krónunnar á árinu, en þó mun minna og hægar en raunin hefur orðið. Davíð sagði ekki gott að segja fyrir um hvort gengið lækki enn meira.

Þá er talið líklegt, að gengisfallið nú hafi áhrif á næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans vegna þess að verðbólgumarkmið bankans er enn fjær en áður og verð innfluttra vara hækkar með lækkandi gengi krónunnar.  

Trúlegt er,að eitthvað af lækkun krónunnar gangi til baka en þó er það ekki víst.Sú gengislækkun sem orðið hefur er ekki meiri en spáð  hafði verið að yrði á  árinu en hún hefur gerst hraðar en búist var við.Nauðsynlegt er,að fólkl fari að taka tillit til breyttra aðstæðna en haldi ekki áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Miklir óvissutímar framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Íslenska krónan einungis brúkleg í matador"

Peningamálastefna stjórnvalda hefur beðið afhroð og kjaraskerðing er orðin staðreynd hjá almenningi að mati framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins. Þá segir hann íslensku krónuna einungis brúklega í Matador.

 

Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, gerir hræringar í efnahagslífinu að umtalsefni í pistil á heimasíðu sambandsins. Þar segir hann að það sé gömul saga og ný að beita gengisfellingum til að hirða aftur umsamdar kauphækkanir. Það kunni að vera meginástæða þess að stjórnvöld haldi í krónuna, að velta efnahagsvandanum yfir á launafólk með kjaraskerðingum í formi gengisfelling. Sú sé raunin nú því gengið sé látið falla.

Þetta eru þung orð  hjá framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins. Hann telur,að nýsamþykkt kjarabót  hverfi vegna kjaraskerðingar af völdum gengisfellingqar.

Björgvin Guðmundsson

 


Kína kúgar Tíbet

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur óskað eftir því að utanríkismálanefnd Alþingis komi saman hið fyrsta til að ræða þá alvarlegu stöðu sem nú er uppi í Tíbet, að því er segir í tilkynningu.

Áríðandi er,að sem flestar þjóðir fordæmi athæfi Kínverja í Tíbet.Kínverjar eru að reyna að uppræta Tíbeta sem þjóð. Þeir hafa flutt til Tíbet mikinn fjölda Kínverja.Þeir hafa beitt miklum yfirgangi gegn Tíbet og  miskunnarlaust kúgað þá. Alþjóðasamfélagið hefur lokað augunum fyrir þessu. Nú þegar 50 ár eru  liðin frá því að Kínverjar hernámu Tíbet og sviptu landsmenn sjálfstæði hafa orðið mikil mótmæli í landinu gegn Kínverjum.Það hefur komið til blóðugra átaka og hafa Kínverjar drepið allmarga Tíbeta.

Sameinuðu þjóðirnar þurfa að taka þetta mál fyrir og stuðla að því að  Tíbet fái sjálfstæði á ný.

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Óska eftir fundi í utanríkismálanefnd vegna Tíbet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyf dýrust hér á landi

Smásöluverð á 33 veltuhæstu pakkningar á lyfjum sem Tryggingastofnun niðurgreiddi árið 2006 reyndist í 15 tilvikum hæst á Íslandi í mars samanborið við hin Norðurlöndin í nýrri verðkönnun Lyfjagreiðslunefndar. Heildsöluverðið reyndist hins vegar einungis í tveimur tilvikum hæst á Íslandi.

Samanburðarlöndin eru Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Verð í Svíþjóð eru uppreiknuð með 24,5% virðisaukaskatti til að auðvelda samanburð á milli landa, þar sem virðisaukaskattur á lyfseðilskyld lyf í Svíþjóð er 0%.

Smásöluverð á lyfjum reyndist í 23 tilvikum lægst í Noregi og aldrei hæst þar í landi. Í Danmörku var smásöluverð í 13 tilvikum hæst en í eitt skipti lægst þar í landi. Í tveimur tilvikum reyndist smásöluverðið vera lægst á Íslandi. Í Svíþjóð var smásöluverð í sjö tilvikum lægst en í 5 tilvikum hæst.

Heildsöluverð á lyfjapakkningunum var í fimm tilvikum lægst á Íslandi en í 21 tilviki lægst í Noregi. Þar var heildsöluverðið í eitt skipti hæst. Í Danmörku var heildsöluverðið hæst í 18 tilvikum en lægst í einu tilviki. Í Svíþjóð var heildsöluverðið lægst í 6 tilvikum en hæst í 11 tilvikum.

Það er óþolandi,að verð á lyfjum skuli vera svo mikið hærra hér en á hinum Norðurlöndunum. Það er alltaf verið að tala um að gera eigi eitthvað í málinu en það gerist ekki neitt,Það kemur sérstaklega illa við eldri borgara hvað lyf eru dýr hér,þeir nota mest af lyfjum og hafa úr litlu að spila.

Bj0rgvin Guðmundsson


mbl.is Smásöluverð á lyfjum oftast hæst á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nógir peningar til hjá hinu opinbera

Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 67 milljarða króna í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Þetta svarar til rúmlega fimm prósenta af landsframleiðslu og tæplega ellefu prósenta af tekjum hins opinbera. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 6,3 prósent af landsframleiðslu árið 2006 og tæp fimm prósent árið 2005.

Þessi hagstæða tekjuafkoma stafar fyrst og fremst af miklum tekjuafgangi ríkissjóðs, sem nam 4,2 prósentum af landsframleiðslu árið 2007. Fjárhagur sveitarfélaganna hefur þó einnig snúist til betri vegar síðustu þrjú árin enda þótt hann sé afar misjafn að sögn Hagstofunnar. Hann nam sex milljörðum króna í fyrra eða sem nemur hálfu prósenti af landsframleiðslu. Til samanburðar var afgangurinn fjórir milljarðar árið 2006, eða 0,3 prósent af landsframleiðslu.

Tekjur hins opinbera reyndust 617,5 milljarðar króna í fyrra . Sem hlutfall af landsframleiðslu námu þær 48,3 prósentum og hafa ekki verið hærri áður. 

Afkoma hins opinbera er það góð,að það ætti að vera unnt að hækka lífeyri aldraðra strax en  hann hefur ekkert verið  hækkaður frá því ríkisstjórnin kom til valda.

Björgvin Guðmundsson

 

 


Gengið hríðfellur-kauphækkunin tekin til baka

Gengi krónunnar hefur lækkað um 5,12% í viðskiptum á millibankamarkaði með gjaldeyri frá því opnað var fyrir viðskiptin klukkan 9 í morgun. Gengisvísitalan er nú 150,66 stig, samkvæmt vef Kaupþings. Gengi dals er nú skráð tæpar 74 krónur, evrunnar 116,8 krónur og punds rúmar 149 krónur.

Gengi krónunnar hefur nú lækkað um 20 % frá ámótum og  hún heldur áfram að lækka. Verkafólk er varla búið að fá nýsamþykkta kauphækkun í   launaumslög sín,þegar búið er að rífa hana af því  aftur.Allar innfluttar vörur eru

nú að hækka í verði,þar á meðal matvörur. Bensín stórhækkar,lánin vegna íbúðakaupa hækka og nú boða bændur hækkun á öllum búvörum vegna verðhækkunar á aðföngum.Það er þjarmað að almenningi dag frá degi.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Gengi krónunnar lækkar um 5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn: Sjálfstæðisflokkurinn gæti klofnað um ESB

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn myndi klofna ef kæmi til umræðu um aðild að Evrópusambandinu. Málið gangi þvert á alla flokka og þjóðin myndi skiptast í fylkingar. Þetta sagði ráðherra í viðtali við Sigmund Erni Rúnarsson í Mannamáli í kvöld. Björn segir gallann á umræðunni um ESB vera þann að vegvísi vanti eins og notast sé við þegar leysa eigi alþjóðadeilur.

Ég tel Björn kveða of sterkt að orði. Vissulega er ESB málið hættulegt Sjálfstæðisflokknum. En flokkurinn verður að takast á við það. Það getur kvarnast   úr flokknum en hann klofnar ekki. Menn eru það hollir forustunni í þeim flokki. Björn Bjarnason er að hræða menn með þessari yfirlýsingu.

 

Björgvin Guðmundsson

 

´

 


Góð grein Björns Inga Hrafnssonar

Björn Ingi Hrafnsson birtir góða grein ( blogg) á eyjan.is í gær. Fjallar greinin um Reykjavíkurbréf Mbl. á sunnudag,sem  sennilega er skrifað af Styrmi Gunnarssyni.Björn Ingi fjallar m.a. um þá kenningu Styrmis,að Samfylkingin muni einangra sig í íslenskum stjórnmálum með því að ætla að setja ESB á dagskrá næstu þingkosninga.Björn Ingi kveðst ekki sammmála því. Hann telur,að Samfylkingin geti átt mikil sóknarfæri,ef hún ein berst fyrir aðild að ESB í næstu þingkosningum,þar eð þá eigi stuðningsmenn aðildar að ESB í öllum flokkum ekki annan valkost en að kjósa Samfylkinguna.Ég tel,að Björn Ingi hafi hér  mikið til síns máls.

Björn Bjarnaon gengur svo langt í viðtali við Sigmund Erni í  Mannamáli að  segja,að ESB málið gæti klofið Sjálfstæðisflokkinn.

 

Björgvin Guðmundsson


Framlög til heilbrigðismála sambærileg hér og erlendis

Þetta virkar eins og þingflokkurinn sé ekki í miklu jafnvægi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra um ályktun þingflokks Vinstri-grænna um stöðu heilbrigðiskerfisins.

Hann segir virtar erlendar stofnanir á borð við OECD hafa tekið út fjárframlög til heilbrigðismála hérlendis og segja þær fjárframlög til málaflokksins með því allra hæsta sem gerist og lögðu til að fundnar yrðu leiðir til þess að nýta enn betur þá fjármuni sem lagðir eru í þetta á næstu árum og áratugum.

Inni í tölum til heilbrigðismála hér eru tölur um framlög til hjúkrunarheimila aldraðra.Slíkar tölur eru ekki inni  tölum yfir framlög til heilbrigðismála erlendis.Þegar framlög til hjúkrunarheimila hafa verið dregnar frá eru framlög til heilbirgðismála mjög sambærilegar hér og erlendis.Auk þess er það ekki málefni OECD hvað Ísland vill eyða miklu til heilbrigðismála.

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Eins og þingflokkur VG sé ekki í jafnvægi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband