"Íslenska krónan einungis brúkleg í matador"

Peningamálastefna stjórnvalda hefur beðið afhroð og kjaraskerðing er orðin staðreynd hjá almenningi að mati framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins. Þá segir hann íslensku krónuna einungis brúklega í Matador.

 

Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, gerir hræringar í efnahagslífinu að umtalsefni í pistil á heimasíðu sambandsins. Þar segir hann að það sé gömul saga og ný að beita gengisfellingum til að hirða aftur umsamdar kauphækkanir. Það kunni að vera meginástæða þess að stjórnvöld haldi í krónuna, að velta efnahagsvandanum yfir á launafólk með kjaraskerðingum í formi gengisfelling. Sú sé raunin nú því gengið sé látið falla.

Þetta eru þung orð  hjá framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins. Hann telur,að nýsamþykkt kjarabót  hverfi vegna kjaraskerðingar af völdum gengisfellingqar.

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband