Laugardagur, 5. apríl 2008
Hvers vegna er utanríkisþjónustan óvinsæl?
Ingibjörg Sólrún,utanríkisráðherra ,var í þætti Hjálmars Sveinssonar, Krossgötum, á RUV í dag.Var komið víða við: Rætt um Nato fundinn í Búkarest, hernaðaraðgerðir og friðargæslu í Afganistan,framboð Íslands til Öryggisráðsins og utanríkisþjónustuna yfirleitt.Ingibjörg Sólrún varpaði góðu ljósi á þessi mál öll. Hjálmar Sveinsson sagði,að svo virtist sem utanríkisþjónustan væri óvinsæl hjá almenningi. Algengt væri að heyra hjá sumum að réttast væri að leggja utanríkisjónustuna niður. Hún væri óþörf með öllu.Síðan spurði Hjálmar: Hvers vegna heldurðu,að utanríkisþjónustan sé svona óvinsæl:Ingibjörg sagði,að það væri sjálfsagt vegna þess að utanríkisþjónustan hefði lokað sig nokkuð af og ekki hefði verið haldið uppi nægilegri kynningu á þjónustunni.Þetta stæði nú til bóta. Meiningin væri að kynna utanríkisþjónustuna og hefðu háskólarnir verið fengnir til liðs við ráðuneytið í því skyni. Utanríkisþjónustan hefði mjög mikilvægu hlutverki að gegn og m.a. gætti hún hagsmuna íslenskra ríkisborgara hvar sem væri í heiminum.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 5. apríl 2008
Tekin upp neytendavæn matvælalöggjöf
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði á fundi hjá sjálfstæðismönnum í Reykjavík í morgun, að verði fyrirhugað lagafrumvarp hans að veruleika verði grundvallarbreyting á matvælamarkaðinum. M.a. verði heimilt að flytja inn hrátt kjöt.
Einar sagði að samkvæmt væntanlegri löggjöf, sem væri stærsta málið sem koma myndi frá sínu ráðuneyti á þessu þingi, yrði í raun tekin upp matvælareglugerð Evrópusambandsins. Þetta væri neytendavæn löggjöf.
Það er ánægjulegt að heyra þessar fréttir.Matvælareglugerð ESB er mjög neytendavæn. Og það að byggja á henni eða að taka hana upp tryggir hagsmuni neytenda.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Landbúnaðarráðherra boðar tímamótabreytingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 5. apríl 2008
Ríðum við of hratt?
Ég fór eitt sinn fyrir mörgum áratugum til bankastjóra og bað um víxil vegna húsbyggingar. Hann sagði: Þú ríður of hratt. Hann meinti,að ég eyddi of miklu og framkvæmdi of mikið.Mér komu þessi orð í hug þegar gengi krónunnar féll og mikil umræða hófst um efnhagsóáran.
Spurningin er þessi: Höfum við riðið of hratt,einstaklingar og þjóðin. Hefur almenningur og þjóðin eytt of miklu. Svarið er Já. Framkvæmdir þjóðarinnar hafa verið of miklar á skömmum tíma.Kárahnjúkavirkjun og bygging álverksmiðjunnar var alltof stór biti fyrir okkar litla hagkerfi á stuttum tima. Allur almenningur hefur eytt alltof miklu. Það hefur verið eyðsluæði. Öll bilakaupin,allir jepparnir,þetta hefur verið langt úr hófi fram. Við höfum ekkert að gera við alla þessa jeppa. Margir þeirra eru keyptir á erlendum lánum og nú hafa þau stórhækkað vegna gengishruns krónunnar. Margir einstaklingar eiga nú í vandræðum með afborganir af húsnæðislánum vegna hækkunar af völdum verðtryggingar eða erlendra lána.Margir hafa verið of fljótir á sér i fjárfestingum og eyðslu.
Viðskiptahallinn er gífurlegur. Það bendir til þess að eyðslan hafi að verulegu leyti verið fjármögnuð með lánum.Viðskiptahallinn er ein ástæða gengishrunsins. Við getum ekki reiknað með því að gengið hækki á ný. Lífskjörin munu því versna.
Björgvin Guðmundsson
B
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. apríl 2008
Skattleysismörk fylgi launavísitölu
Það er bein atlaga að kjörum eldri borgara,þegar skattleysismörk fylgja ekki launavísitölu. Þá njóta þeir ekki þeirrar kaupmáttaraukningar,sem verður í samfélaginu.Þetta er orðrétt úr stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka skattleysismörkin um 20 þúsund krónur á mánuði á næstu 3 árum,fyrir utan verðlagshækkanir.Þau eru í dag 95 þúsund á mánuði.Þau fara því í 115-120 þúsund á mánuði við ákvörðun ríkisstjórnarinnar. En ef þau hefðu fylgt launavísitölu frá 1988 ættu þau í dag að vera 150 þúsund á mánuði. Það vantar því enn mikið upp á að kosningaloforð Samfylkingarinnar sé efnt í þessu efni.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 5. apríl 2008
Er vorið að koma?
Sumum þykir hann hafa blásið nokkuð stíft að norðan að undanförnu og sums staðar heyrist tal um kaldan vetur en allt er þetta orðum ofaukið og jarðræktarsérfræðingar, ráðunautar og aðrir túnsérfræðingar víðs vegar um land hafa ekki heyrt af skemmdum á túnum og telja almennt litla hættu á kali í vor.
Líðandi vetur er sá kaldasti síðan 2002 en hitinn hefur samt verið í meðallagi, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings. Hann bendir reyndar á að miklu oftar hafi verið kaldara á vetrum en hlýrra og í því samhengi hafi hann verið hlýr að þessu sinni.
Hvað sem bollaleggingum veðurfræðinga líður og staðreyndum,sem, þeir tilgreina er maður orðinn hundleiður á vetrinum og vill fara að fá vor og hlýindi.Vorið verður sérstaklega kærkomið að þessu sinni.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Beðið eftir gróanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 5. apríl 2008
Það er of mikið að reisa tvö álver samtímis
Það er nú ljóst,að bygging álvers í Helguvík verður ekki stöðuð. Umhverfisráðherra taldi sig ekki hafa lagaheimild til þess að stöðva byggingu álvers þar.En svo virðist sem bygging álvers í Helguvík hafi hleypt kappi í baráttu norðanmanna fyrir alveri við Bakka við Húsavík.Ekki líst mér á,að þar verði einnig reist samtímis álver. Ég tel,að vegna efnahagsástands og útblásturs sé ekki ráðlegt að hleypa af stað nema einu álveri í einu. Það er því skynsamlegt að bíða með álver við Bakka.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 5. apríl 2008
Verða börn greindari af því að borða fisk?
Ef konur vildu hámarka vitsmunaþroska barna sinna ættu þær að borða fisk oftar en tvisvar í viku meðan á meðgöngu stendur, segir dr. Emily Oken, prófessor í læknisfræði við Harvardháskóla, en hún ásamt öðrum hefur nýlokið rannsókn á áhrifum fiskáts kvenna á meðgöngu á vitsmunaþroska barna við þriggja ára aldur. Sýndu börn þeirra kvenna sem borðuðu fisk oftar en tvisvar í viku á meðgöngu meiri vitsmunaþroska en önnur börn.
Þetta er athyglisverð rannsókn. Áður hefur verið vitað,að fiskur er mikið hollari en kjöt og ýmiss annar matur. En hér er komin ný ástæða fyrir því að fiskneysla verði aukin. Það er tvímælalaust rétt stefna að auka fiskneyslu sem mest.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Fiskur gerir börnin greindari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 5. apríl 2008
Er ég of harður við Samfylkinguna?
Sumum finnst ég of harður við Samfylkinguna að gera kröfu til þess að hún efni mörg af kosningaloforðum sínum strax á fyrsta ári í ríkisstjórn.Það kann vel að vera að ég sé full strangur.En ég geri meiri kröfur til Samfylkingarinnar en ég gerði til Framsóknar eða Sjálfstæðisflokksins. Ég sé heldur ekki rökin fyrir því að það þurfi að draga efndir á kosningaloforðum. Þau má og á að efna strax.Ég hefi einkum látið málefni aldraðra til mín taka.Ég vil,að Samfylkingin efni kosningaloforð sín við eldri borgara. Mér er að vísu ljóst,að Samfylkingin er ekki ein í stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn er þarna líka. En ef hann er andvígur kjarabótum til aldraðra er best að það komi fram.Ég er óánægður með að ríkisstjórnin skyldi ekki byrja á því að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja frá almannatryggingum þannig að hann dygði fyrir framfærslukostnaði en mikið vantar á að svo sé.Það mál hefði átt að leggja strax fyrir sumarþingið. Það þurfti enga nefnd eða verkefnisstjórn til þess að ákveða breytingar á lífeyri. Allar upplýsingar lágu fyrir. Það mátti láta fyrsta áfanga hækkunar koma til framkvæmda strax og næsta áfanga síðar.Hér er ég að tala um leiðréttingar á lífeyri. Ekki má rugla leiðréttingu saman við hækkun vegna kauphækkunar verkafólks. Lífeyrisþegar eiga að fá sömu hækkun og þeir lægst launuðu á almennum vinnumarkaði.Og vegna þess að lífeyrir hefur ekkert hækkað frá kosningum á lífeyrir frá TR að hækka eins og lágmarkslaun hækka mest eða a.m.k. um 15% en þeir fengu aðeinss 7,4%. Gliðnunin heldur því áfram. Það átti að leiðrétta eldri gliðnun en ekki að láta hana aukast.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki samþykkja kröfur Samfylkingarinnar um eðlilegar kjarabætur aldraðra og öryrkja hefur Samfylkingin ekkert í ríkisstjórninni að gera.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. apríl 2008
Björgvin G. berst gegn verðlagshækkunum
Í morgun átti viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, fund með fulltrúum Samtaka verslunar og þjónustu og Félags íslenskra stórkaupmanna. Tilefnið var einkum boðaðar verðhækkanir vegna hækkunar hrávöruverðs og lækkunar gengis krónunnar. Rætt var um stöðu mála og mögulegar leiðir til að vinna gegn aukinni verðbólgu, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.
Á fundinum kom fram fullur vilji af hálfu fulltrúa verslunarinnar að tryggja eftir bestu getu að verðlag á neysluvörum hækki ekki umfram það sem getur talist bráðnauðsynlegt vegna hækkana á erlendu kostnaðarverði.
Það er virðingarvert að viðskiptaráðherra skuli berjast gegn verðhækkunum.Hann á þakkir skilið fyrir það.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Rætt um leiðir til að vinna á verðbólgu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |