Hvers eiga eldri borgarar að gjalda?

Nýir almennir kjarasamningar voru gerðir í feb.sl. Þeir lægst launuðu fengu 18000 kr. kauphækkun í upphafi eða 15%.Eldri borgarar fengu 5 þús.kr. hækkun lífeyris eða 4% hækkun.Hvers vegna fengu eldri borgarar ekki 18000 kr. hækkun eins og þeir lægst launuðu?Jú  þeir fengu 3,3% hækkun 1.janúar vegna launahækkana sl. ár.Sú hækkun var dregin frá  þeirri kauphækkun,sem ákveðin var til handa eldri borguruim! Síðan er verið að segja,að eldri borgarar eigi að fá einhverja meiri hækkun einhvern tímann seinna á árinu. Hvaða hundakúnstir eru þetta? Það hefur alltaf verið sagt,að eldri borgarar ættu að fá sömu hækkun og láglaunafólk.Meira  að segja Davið Oddsson sagði það, þegar hann var forsætisráðherra.Hann sagði,að eldri borgarar mundu ekki tapa á því þó

skorið væri á sjálfvirk tengsl milli bóta og lágmarkslauna.En þeir tapa á Því. Þeir eru hlunnfarnir.

 

Björgvin Guðmundsson


Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Ólafs F. felldi tillögu um að hækka aðstoð við þá verst settu

Meirihluti velferðarráðs Rvíkurborgar vill ekki hækka lágmarksaðstoð við fátækt fólk til bráðabirgða upp í lægstu hugsanlegu upphæð lífeyrisbóta. Tillögu um þetta var í dag vísað til nefndar sem ekki á að skila af sér fyrr en eftir marga mánuði, og verður grunnupphæð fjárhagsaðstoðar áfram rúmar 99 þúsund krónur á mánuði. Björk Vilhelmsdóttir og aðrir fulltrúar stjórnarandstöðunnar í ráðinu lýstu í bókun miklum vonbrigðum með þessa afgreiðslu sem þýðir að aðstoð borgarinnar er áfram 36% lægri en ellilífeyrir og atvinnuleysisbætur. 

Ég lýsi furðu minni á þessari afgreiðslu. 99 þúsund á mánuði duga engan veginn í dag til þess að framfleyta sér enda er það  36% lægra en atvinnuleysisbætur.

 

Björgvin Guðmundsson
 


Norðurlönd verði sameiginlegt markaðssvæði

Norrænu forsætisráðherrarnir segjast í yfirlýsingu, sem send var út eftir fund þeirra í Norður-Svíþjóð í dag, stefna að því að efla norrænt samstarf enn frekar til þess að mæta áskorunum hnattvæðingarinnar. Lykilatriði sé að gera Norðurlönd að sameiginlegu markaðssvæði með sterka samkeppnisstöðu.

Í yfirlýsingunni segja ráðherrarnir, að til að ná því markmiði hafi þeir náð samkomulagi um að leggja enn meiri áherslu á að ryðja öllum stjórnsýsluhindrunum úr vegi á norrænum landamærum og veita fólki, fyrirtækjum og stofnunum betra tækifæri til að ná fótfestu á sameiginlegum norrænum markaði. 

Yfirlýsing fosætisráðherranna er mjög athyglisverð. Ekki kemur   nákvæmlega fram í hverju sameiginlegt markaðssvæði er fólgið. Öll Norðurlöndin eru í EFTA svo að ekki er um neina innbyrðis tolla  á iðnaðarvörum eða fiskafurðum að ræða. En hvort Norðurlöndin ætla einnig  að stefna að myndun tollabandalags kemur ekki fram. Það er þó fremur ólíklegt.Sennilega geta ESB löndin,Danmörk.Svíþjóð og Finnland ekki tekið þátt í tollabandalagi með hinum Norðurlöndunum. ESB er tollabandalag,þ.e. ytri tollar eru samræmdir og hinir sömu en innbyrðis tollar felldir niður.

 

Björgvin Guð,undsson

'''''

 


mbl.is Vilja efna norrænt samstarf enn frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útflutningsverðmæti sjávarafurða 51%

Arnbjörg Sveinsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins bar fram fyrirspurn til sjávarútvegsráðherra á alþingi í dag um margfeldisáhrif sjávarútvegsins.Fram kom,að árið 2006 námu  útfluttar  sjávarafurðir 51% heildarútflutnings. Ráðherra sagði,að  margfelsdisáhrif sjávarútvegsins  væru mikil en ekki hefði þau verið könnuð nákvæmlega. Kvaðst hann hafa beðið Hagfræðistofnun Háskólans að kanna og reikna það út  í tilefni af fyrirspurn Arnbjargar.Ráðherra sagði,að  fyrir hvert eitt starf  í sjávarútvegi væru 1,7% störf sem tengdust þeim störfum.

 

Björgvin Guðmundsson


Sömu laun fyrir sömu vinnu

Ein aðalkrafan af hendi Stéttarfélags í almannaþjónustu (SFR) í komandi kjarasamningum við ríkið er að greidd verði sömu laun fyrir sambærileg störf hjá ríki og á almennum markaði. Að sögn Árna Stefáns Jónssonar, formanns SFR, er hér um nýmæli að ræða. Spurður um ástæðu kröfunnar segir Árni Stefán sameiginlega launakönnun SFR og VR sem gerð var fyrir rétt rúmu ári hafa leitt í ljós að 20-39% launamunur væri á sambærilegum störfum hjá ríkinu og á almennum markaði.

Þetta er góð krafa hja SFR. Fleiri stéttarfélög þyrfti að fylgja fordæmi  SFR. Þrátt fyrir falleg orð í ræðum er ástandið í jafnréttismálum að því er laun varðar mjög slæmt. Launamunur er mjög mikill og það er ekkert gert í málinu annað en að tala. Og jafnvel lögum,sem sett eru um málið er ekki framfylgt.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 
mbl.is SFR vill sömu laun fyrir sambærileg störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílstjórar halda áfram aðgerðum

Þeir sögðu að ég væri stórhættulegur morðingi en ég svaraði engu því ég hef ekki gert nokkurn skapaðan hlut af mér," sagði Sturla Jónsson talsmaður atvinnubílstjóra við fréttamenn eftir yfirheyrslur hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins fyrir stundu.

Félagar hans hrópuðu hvatningarorð og að þeir myndu halda áfram aðgerðum.

Sturla mætti með lögmanni sínum til yfirheyrslu í morgun vegna aðgerða og mótmæla atvinnubílstjóra að undanförnu.

Varðandi aðgerðir bílstjóra og spurningar lögreglu um þær sagði Sturla: „Ég er náttúrulega bara vegfarandi hérna sem lendir í umferðaröngþveiti og verð bara að berjast fyrir mínu sjálfur," sagði Sturla.

Sturla sagði að lögreglan hefði farið í gegnum lista af spurningum en að hann hafi ekki svarað neinu enda bæri honum ekki skylda til þess. 

Aðspurður hvort bílstjórar ætluðu að halda áfram aðgerðum svaraði hann: „Þið heyrið í strákunum, þeir eru meira en fílefldir bara. Það lítur út fyrir að menn eflist bara við það að verða teknir í yfirheyrslur og það segir okkur að þetta er bara lögregluríki" 

Samkvælmt þessu er aðgerðum bílstjóra hvergi nærri lokið.Þeir ætla greinilega að halda áfram aðgerðum.Sturla,forsprakki ,bílstjóranna,virðist gæta sín á því að viðurkenna ekki að hann sé að hvetja til aðgerða eða standa fyrir þeim. En heyrst hefur að til standi að ákæra hann.

 

Björgvin Guðmundssob

Fara til baka 


mbl.is Bílstjórar: „Við höldum áfram"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ríkið að bjarga bönkunum?

Miklar umræðuyr eiga sér nú stað í þjóðfélaginu um vanda íslensku bankanna. Sú hugmynd hefur komið fram hjá ráðmönnum þjóðarinnar,að ríkið  taki mjög stórt erlent lán til þess að bæta gjaldeyrisstöðu Seðlabankans og   til þess að kaupa skuldabréf af  bönkunum til þess að bæta stöðu þeirra. Mér finnst það orka mjög tvímælis,að ríkið fari að aðstoða bankana á þennan hátt.Hér er um einkabanka að ræða,sem á undanförnum árum hafa rakað til sín gróða og stjórnendurnir hafa hirt góðan hlut af þessum gróða og stungið í eigin vasa.Þegar á móti blæs í rekstri bankanna er rætt um að ríkið komi þeim til hjálpar.Hér áður var stundum rætt um þjóðnýtingu tapsins. Þetta er svipað. Best er,að bankanir komi sér sjálfir út úr þeim vanda sem þeir hafa komið sér í. Þeir hafa farið óvarlega í gífurlegum erlendum lántökum og fjármögnun útrásar.Ef ríkið á eitthvað að hugleiða aðstoð við þá þarf að byrja á því að stokka bankana upp. Það þarf að skipta rekstri þeirra í tvennt: Fjárfestingarstarfsemi og  venjulega viðskiptamannastarfsemi. Síðan þarf að láta bankastjóra og aðra stjórnendur skera niður allar þær himinháu launagreiðslur og kaupréttargreiðslur,sem eru í gildi.Stjórnendur bankanna þurfa einnig að bera ábyrgð á mistökum sínum við lántökur erlendis.

Ljóst er að það voru mistök að einkavæða alla bankana 3. Það hefði átt að halda 1-2 þeirra ´

i eigu ríkisiins. Ef það hefði verið gert stæðum við ekki frammi fyrir þessum vanda bankanna,sem við er að glíma í dag.

Björgvin Guðmundsson


Jákvæð umsögn Moody´s um ríkissjóð

Ísland er eina ríkið með lánshæfiseinkunnina Aaa hjá matsfyrirtækinu Moody's þar sem bankarnir eru að meðaltali með lánshæfiseinkunn fyrir fjárhagslegan styrk undir C, segir í nýrri greiningarskýrslu Moody's. Fyrirtækið lækkaði einkunn bankanna úr C í C- í febrúar. Staða bankanna er sögð valda áhyggjum en litlar líkur séu á hremmingum í efnahagslífinu vegna hennar.

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir umfjöllun undanfarnar tvær til þrjár vikur hafa þróast í jákvæða átt. Moody's þekki vel til hér á landi og jákvæð skýrsla þeirra ætti að geta ýtt undir frekari umræðu af slíkum toga. Moody's hafi áður metið það svo að ríkið væri fært um að bregðast við mögulegum vanda bankanna.

Umsagnir erlendra matfyrirtækja um ríkissjóð og bankana hafa verið mjög misvísandi að undanförnu.Gott er að Moody´s sé með jákvæða einkunnagjöf um ríkissjóð nú.En ljóst er að bankarnir hafa haft og hafa neikvæð áhrif á umsagnir erlendra matfyrirtækja um ríkið. Það er hin mikla skuldsetning bankanna sem dregur þá niður.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 


mbl.is Ný skýrsla Moody's segir litlar líkur á hremmingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

USA getur lært af Íslandi í orkumálum

Fjallað er um íslensk orkumál í nýjasta hefti bandaríska fréttatímaritsins Newsweek og segir tímaritið, að Bandaríkjamenn geti lært margt af Íslendingum á þessu sviði.

Blaðið segir, að Ísland sé lítil eyja þar sem búi fámenn einsleit þjóð. Þar séu engin kol en víðfeðmir jöklar sem framleiði gríðarlegt magn af vatni sem hægt sé að beisla og framleiða úr raforku. Þar sé einnig mikill jarðhiti.

Al Gore hefur lagt áherslu á það sama og  gert er í Newsweek,að Bandaríkjamenn geti lært af Íslendingum varðandi notkun á endurnýjanlegri orku  og vistvænum orkugjöfum.Al Gore gagnrýnir Bandaríkin fyriir að hafa ekki staðfest Kyotobókunina en segir mikinn fjölda borga og fylkja í BANDARÍKJUNUM  hafa gert það.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Bandaríkin geta lært af Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband