Fimmtudagur, 12. júní 2008
Hlutabréf í Eimskip falla um 28%
Sindri Sindrason stjórnarformaður Eimskipa segir fv. stjórnendur, þá Magnús Þorsteinsson fv. stjórnarformann og Baldur Guðnason fv forstjóra fyrirtækisins hafa brugðist. Bréf Eimskips hafa á 2 dögum lækkað um 28%.
Lækkun hlutabréfa skýrist að mestu vegna þess að fyrirtækið hafi þurft að afskrifa 9 ma. kr. Ástæðan er kaup á fyrirtækinu Innovate Holdings. Fyrst keypti Eimskip helming fyrirtækisins fyrir 2 árum og eignaðist síðan allt fyrirtækið í fyrra. Sindri segir fv. stjórnendur greinilega hafa gert mistök þegar fyrirtækið var keypt.
Stjórnendur hefðu átt að vera búnir að sjá í hvað stefndi og bæði hafi skort ítarlega forskoðun á fyrirtækinu og eftirlit með því. Bréf í Eimskipi hafa fallið um ríflega fjórðung í dag og í gær. Sindri segir það ekki koma á óvart, viðbúið sé að markaðurinn bregðist við slíkum fréttum. Stjórnendur Eimskips bregðist hins vegar við vandanum með því að auka eigið fé félagsins sem komið er niður í 16%. Sindri segir Eimskipafélagið eiga miklar eignir, rekstur þess sé góður en það sé mikið skuldsett. Þessi áföll þýði þó að breytt verður um stefnu og fyrirtækið muni sinna æ meira flutningastarfsemi.
Það er hörmulegt hvernig Eimskip hefur farið. Alvarleg mistök virðast hafa átt sér stað þegar félagið keypti breska fyrirtækið Innovate Holdings.Breska fyrirtækið reyndist ekki eins góð fjárfesting og talið var. Íslendingar hafa á undanförnum árum fjárfest í mörgum erlendum fyrirtækjum og oftast hefur þessi fjarfesting "lukkast". En stundum hefur hún mistekist og mikið tap orðið. Þetta er eins og að spila í happdrætti,ef ekki er nægur undirbúningur að fjárfestingunni.Og stundum dugar góður undirbúningur ekki til .
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Vill láta rannsaka upphaf Baugsmálsins og meðferð
Hæstiréttur virðist draga í efa að rannsókn Baugsmálsins sé fagleg, segir Lúðvík Bergvinsson Að mínu mati þjónar það best almannahagsmunum að rannsaka vandlega hvernig farið var með lögreglu- og ákæruvald í þessu máli, heldur formaður þingflokks Samfylkingarinnar áfram, og telur eðlilegt að nýskipaður ríkikssaksóknari stjórni þeirri rannsókn. Það getur enginn búið við þá ásökun sem hangir í loftinu, að valdi hafi verið misbeitt. .
Ég tek undir þessi orð Lúðvíks. Það er full þörf á því að rannsaka upphaf Baugsmálsins og kanna hvort það fór af stað af einhverjum óeðlilegum ástæðum.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Fasteignaveð hækkar
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Vísitalan lækkaði í apríl um 1,7% og um 0,4% í mars miðað við mánuðinn á undan.
Þetta eru athyglisverðar fréttir. Seðlabankinn hafði spáð 30% lækkun á fasteignaverði.En eftir smá
lækkun á fasteignaverði hækkar það nú á ný.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Fasteignaverð hækkar á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 12. júní 2008
300 milljónum verður varið til orkuleitar
Brátt verður hafist handa við jarðhitaleit á tuttugu og níu stöðum á landsbyggðinni þar sem nú nýtur ekki hitaveitu, og verður varið til þess um 300 milljónum króna í heild, þar af 172 frá ríkissjóði. Þetta er hin íslenska leið til þess að vinna sig út úr vanda vegna þorskaflabrests og hækkandi orkuverðs, sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra eftir fund Orkuráðs á Kirkjubæjarklaustri um þessa styrkúthlutun. Fjárfesting í innviðum og nýjum orkugjöfum býr í haginn fyrir framtíðina.
Úthlutun Orkuráðs er að mestu liður í mótvægisaðgerðum stjórnvalda vegna þorskaflaskerðingar og koma 150 milljónir af fjárlögum í því skyni. Átakinu er einnig ætlað að stuðla að lækkun húshitunarkostnaðar, sem nýtist bæði íbúum staðanna og skattgreiðendum vegna minni niðurgreiðslna, og ennfremur verður jarðhitaleitin væntanlega til þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og nýta betur raforku.
Styrkjunum er úthlutað gegn fyrirheitum styrkþegans um mótframlag og hefur hver styrkur ákveðna hámarksupphæð. Mótvægisstyrkirnir nema flestir 75% áætlaðs heildarkostnaðar en eru hæstir 8 milljónir til hvers verkefnis. Úthlutun ráðsins var alls 172 milljónir en miðað við kostnaðaráætlanir umsækjenda verður á næstunni starfað við jarðhitaleit fyrir nær 300 milljónir króna.
Styrkþegarnir eru flestir sveitarfélög en einnig einstaklingar sem þá hyggja yfirleitt á leit fyrir þorp eða bæjarhverfi. Samkvæmt eðli máls renna flestir styrkirnir til byggða á Vestfjörðum og Austfjörðum (sjá lista yfir staðina í fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu
Þetta eru ánægjuleg tíðindi.Enda þótt orkuleit komi ekki í stað þorkskveiða er hér samt sem áður um atvinnu að ræða og þjóðhagslega hagkvæma starfsemi,þar eða nýta má orku úr iðrum jarðar með margvíslegum hætti. Össur Skarphéðinsson,iðnðarráðherra á þakkir skilið fyrir þetta mál allt.
Björgvin Guðmundsson
ee
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Verð lækkar í Nóatúni,Netto og Kasko
Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest um 2,3% í Samkaupum-Úrval á milli verðmælinga í þriðju viku maímánaðar og fyrstu vikunnar í júní. Í 10-11 hækkaði verð körfunnar um 1,6%, í Hagkaupum um tæplega 1% og í Bónus um 0,6% á sama tímabili.
Mest lækkaði verð vörukörfunnar í Nóatúni, um 3,1% og í verslunum Nettó og Kaskó um 2%. Verð breyttist innan við 0,5% í öðrum verslunarkeðjum á tímabilinu.
Frá því verðmælingar ASÍ hófust í apríl hefur vörukarfan hækkað mest í stóru
lágvöruverðskeðjunum, Bónus og Krónunni um 6-7% en hækkunin er 3-4% í flestum hinum matvöruverslunarkeðjunum.
Það er ánægjulegtað verð skuli hafa lækkað í Nóatúni,Netto og Kasko.Ljóst er að þessir aðilar tekið sig á í verðlagningu. Lágvöruverðsverslanir eins og Bónus og Krónan hafa greinilega átt erfitt með að halda hinu lága verði eftir að krónan fór að falla í frjalsu falli.Enn eru þessar verslanir þó með lægsta verðið.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Verð lækkar í Nóatúni, Kaskó og Nettó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Eldri borgarar eiga að geta lifað með reisn
Við hvað á að miða þegar lífeyrir aldraðra er ákveðinn? Hvað er eðlilegt viðmið í því efni?Landssamband eldri borgara segir að miða eigi við neyslukönnun Hagstofu Íslands um meðaltalsútgjöld til neyslu. Það er eðlilegt viðmið. Samkvæmt síðustu könnun Hagstofunnar eru neðaltalsútgjöld einhleypinga á mánuði kr. 226 þús án skatta.( Með sköttum yfir 300 þús.)
ASÍ lagði til í skýrslu um velferðarmál haustið 2007 að lágmarksframfærsluviðmið yrði 150 þúsund krónur á mánuði þega lægstu laun voru 125 þúsund, þ.e. um 20% fyrir ofan lægstu laun. Það er of lágt. Það eru sem betur fer sárafáir á lægstu launum í dag. Enda lifir enginn af 150 þús. kr. fyrir skatta. Það fer bróðurparturinn af því í skatta og húsnæðiskostnað. Eldri borgarar eiga að geta lifað með reisn á efri árum. Þeir eiga að hafa það háan lífeyri,að þeir geti lifað sómasamlegu lífi og þurfi ekki að skera allt við nögl. Þjóðfelagið skuldar eldri borgurum góð kjör.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Ál orðið aðalútflutningsvara landsins.Hefur tekið sæti fiskafurða
Á þessu ári nemur útflutningur áls að verðmæti alls165 milljörðum króna.En á sama tíma nemur útflutningur sjávarafurða 130 milljörðum króna..Þar með er ál orðin aðalútflutnngsvara landsins og hefur tekið 1.sætið af sjávarafurðum .Þetta eru mikil tíðindi ,þar eð sjávarafurðir hafa um langt skeið verið okkar aðalútflutnigsvara.Hlutfall áls af útflutningstekjum þjóðarinnar nemur 45% en hlutur sjávarafurðurða nemur 35%.Á stuttum tíma hefur álframleiðslan tvöfaldast. Þar munar mest um framleiðslu Reiðaráls en einnig munar um álverksmiðjuna á Grundartanga.
Það er gott að tekist hefur að skjóta fleiri stoðum undir efnahagslíf okkar,þannig,að við séum ekki eingöngu háðir sjávarútvegi. En sjávarútvegur verður áfram um langt skeið einn aðalatvinnuvegur okkar.
Björgvin Guðmundson
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Pétur Blöndal: Íbúðalánasjóður mikill skaðvaldur!
Pétur Blöndal alþingismaður Sjálfstæðisflokksins sagði í umræðuþætti á Bylgjunni í morgun,að Ibúðalánasjóður væri mikill skaðvaldur í íslensku efnahagslífi.Var á honum að heyra að við þyrftum að losna við þennan skaðvald. Pétur var óvenju hreinskilinn og má segja,að hann hafi þarna talað fyrir munn frjálshyggjumanna í Sjálfstæðisflokknum en sumir þeirra fara leynt með skoðun sína í þessu efni.
Guðni Ágústsson var einnig í þættinum og tók upp hanskann fyrir Íbúðalánasjóð. Ég ítreka þá skoðun mína,að mikil nauðsyn er á því að halda Íbúðalánasjóði í óbreyttri mynd. Ef hann væri ekki til staðar mundu bankarnir hækka íbúðavexti upp úr öllu valdi og okra á landsmönnum,þegar þeir tækju íbúðalán.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 12. júní 2008
Rafmagnið hækkar
Landsvirkjun hefur ákveðið að hækka samningsbundið verð heildsölu- og grunnorkusamninga um 6% um næstu mánaðamót. Kveðið er á um endurskoðun þessara samninga í júní ár hvert, til samræmis við vísitölu neysluverðs. Hefði slík hækkun átt að vera tæp 12% að þessu sinni en Landsvirkjunarmenn segja að vegna aðstæðna í efnahagslífinu hafi verið ákveðið að fresta fullri hækkun á heildsöluverðinu.
Við vildum ekki hleypa þessu sjálfkrafa í gegn, segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, en fyrirtækið bendir á að miklar verðhækkanir hafi verið að undanförnu. Verðbólga hafi ekki mælst jafnhá í 18 ár og gengi íslensku krónunnar veikst verulega. Því sé eðlilegt að fresta hluta af samningsbundnum verðhækkunum á raforku. Hins vegar hækkar verð á ótryggri orku til samræmis við breytingu á neysluvísitölunni.
Af þeim raforkusölum sem Morgunblaðið náði tali af virðist sem eingöngu Hitaveita Suðurnesja hafi ákveðið að hækka sitt söluverð. Að sögn Júlíusar Jónssonar forstjóra stefnir í að rafmagnsreikningurinn verði hækkaður um 6%. Hjá Orkusölunni fengust þau svör að líklegast yrði verðið hækkað þó að ákvörðun lægi ekki fyrir. Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur, Orkuveitu Húsavíkur og Fallorku, dótturfélags Norðurorku, sögðu gjaldskrármálin vera til skoðunar.
Hækkun Landsvirkjunar fer beint út í smásöluverðið og munu neytendur finna það á rafmagnsreikningnum.Það er sama hvar drepið er niður. Alls staðar dynja hækkanir yfir almenning.Það verður þjarmað illþymilega að lífskjörum fólks á næstunni og er þegar byrjað.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Rafmagnsreikningurinn hækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |