VG á móti aðild að ESB

Flokksráð Vinstri grænna ítrekar andstöðu flokksins við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þrátt fyrir að nú hafi verið sótt um aðild að sambandinu, er það eindreginn vilji flokksráðs að Ísland haldi áfram að vera sjálfstætt ríki utan Evrópusambandsins.

Drög að ályktun sem lág fyrir fundinum gekk lengur en var lagt til að aðildarumsóknin yrði dregin til baka.

„Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hvetur ráðherra, þingmenn og félagsmenn Vinstri grænna um allt land til að halda stefnu flokksins um andstöðu við aðild Íslands að ESB á lofti og berjast einarðlega fyrir henni," segir í ályktun sem samþykkt var fyrr í dag á fundi flokksráðins á Akureyri.

Þar segir jafnframt að í ljósi afstöðu flokksins telji flokksráðið brýnt að til verði fastur farvegur skoðanaskipta um Evrópumál á vettvangi flokksins og hvetur til ítarlegrar umfjöllunar um þau.

„Flokksráðið leggur sérstaka áherslu á gegnsæi í umsóknarferlinu og hvetur til opinna umræðu- og fræðslufunda um ESB þar sem öll sjónarmið, kostir og gallar, eru dregin fram."
(visir.is)

Það er undarleg þversögn í því hjá VG að  samþykkja að sækja um aðild að ESB  en  gera á sama tíma ályktun um andstöðu viö aðild Íslands að ESB oig skora á ráðherra flokksins að berjast gegn aðild.Þetta  þýðir t.d. að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra á að semja um sem best kjör hjá ESB fyrir íslenskan sjávarútveg en um leið  að óska þess að fá ekki aðild að ESB. Það  er ekki heil brú í þessu.

BJörgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband