Fimmtudagur, 18. febrúar 2010
Örlítið dregur úr launamun karla og kvenna
Ef horft er til heildartímakaups voru konur með 24,9% lægri laun en karlar árið 2000 en árið 2007 var munurinn kominn niður í 18,5%.
Út er komið hagtíðindaheftið Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 2000-2007. Í því er greint frá helstu niðurstöðum úr rannsókn á launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði. Rannsóknin er byggð á gagnasöfnum Hagstofunnar og var framkvæmd í kjölfar samkomulags á milli Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Hagstofu Íslands í tengslum við kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins í febrúar 2008.
Niðurstöður byggjast á tæplega 185 þúsund athugunum á launum einstaklinga sem störfuðu á almennum vinnumarkaði á árunum 2000-2007. Skýrsluna í heild sinni má nálgast á vef Hagstofu Íslands.
Þegar valdir skýringarþættir hafa verið leiðréttir með aðferðum tölfræðinnar mælist launamunur á bilinu 9,2-10,3% fyrir tímabilið 2000-2007. Þegar sundurliðun á launamun er beitt á þær niðurstöður stendur eftir 7,3% óútskýrður launamunur fyrir sömu ár, en þá hefur verið tekið tillit til þeirra þátta sem notaðir eru til skýringa á launamun kynjanna.
Þótt niðurstöðum úr greiningum sem fjalla um leiðréttan launamun beri að taka með fyrirvara benda þær allar til þess að það halli á laun kvenna í samanburði við laun karla.
Einnig eru skoðuð áhrif ólíkra skýringarþátta fyrir konur og karla hvert í sínu lagi. Þá kemur í ljós að öflun háskólaprófs hefur meiri áhrif til hækkunar á laun karla en laun kvenna. Þá hefur fjöldi barna á heimili jákvæð áhrif á laun karla en neikvæð áhrif á laun kvenna, og því yngri sem börnin eru þeim mun neikvæðari áhrif hafa þau á reglulegt tímakaup kvenna.(visir.is)
Þetta er fagnaðarefni þó breytingin sé ekki mikil.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.