Jóhanna átti fund með varaforseta Evrópuþingsins

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, átti fund með Diana Wallis, varaforseta Evrópuþingsins, í Stjórnarráðshúsinu í morgun. Á fundinum ræddu þær ýmis mál sem tengjast Icesave deilunni við Breta og Hollendinga, stöðu efnahagsmála og umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.

Diana Wallis hefur verið varaforseti Evrópuþingsins síðastliðinn þrjú ár en þar hefur hún átt sæti síðan 1999. Hún hefur gert sér sérstakt far um að ræða málefni Norðurslóða og er áhrifamikil í nefnd þingsins gagnvart Íslandi, Noregi, Sviss og EES, að fram kemur á vef forsætisráðuneytisins.
(visir,is)

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband