Íslandsbanki spáir 1/2-1% stigs lækkun stýrivaxta

Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans lækki vexti bankans um 0,5-1,0 prósentustig á næsta fundi sínum. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabanka Íslands er 17. mars næstkomandi.

 

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í síðustu fundargerð Peningastefnunefndarinnar og yfirlýsingu nefndarinnar eftir fundinn segir að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðni eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Gengi krónunnar hefur haldist nokkuð stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun bankans 27. janúar síðastliðinn. Reiknar greiningin með því að krónan haldi sjó eða styrkist fram að vaxtaákvörðun.

 

„Verðbólgan mun einnig að okkar mati vera í takti við væntingar Seðlabankamanna á vaxtaákvörðunardegi. Reiknum við með því að verðbólgan á fyrsta ársfjórðungi verði 7,2% sem er mjög viðlíka nýjustu spá Seðlabankans. Innan þeirrar spár eru væntingar okkar um að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,8% í næstu mælingu sem birt verður 24. febrúar. Einnig teljum við að verðbólguhorfur séu góðar," segir í Morgunkorninu.

 

Stærsti óvissuþáttur spárinnar er Icesave deilan milli Breta, Hollendinga og Íslendinga. Byggir spáin á því að samkomulag verði komið á vaxtaákvörðunardegi en á síðasta fundi peningastefnunefndarinnar kom fram að á meðan óvissa um aðgang Íslands að erlendum lánamörkuðum ríkir er svigrúm nefndarinnar til frekari lækkunar vaxta takmarkað. Verði samkomulag ekki komið eru því talsverðar líkur á því að peningastefnunefndin haldi stýrivöxtum óbreyttum.

 

Greiningin spáir því að Seðlabankinn muni halda áfram í vaxtalækkunum þegar líður á árið. „Spáum við því að bankinn verði kominn með stýrivexti sína í 6,0-6,5% í lok þessa árs. Reiknum við með því að bankinn haldi núverandi bili óbreyttu á milli vaxta á viðskiptareikningum innlánsstofnana og vaxta á veðlánum bankans en þetta bil er 1,5 prósentustig," segir í Morgunkorninu.

 

„Meðal forsenda í spá okkar er hröð hjöðnun verðbólgunnar á árinu og væntingar um að verðbólgan, án skattaáhrifa, verði komin í 2,5% markmið bankans í lok þessa árs. Er verðbólguspá bankans viðlíka spá okkar sem hljóðar upp á 3,0% verðbólgu í árslok með skattaáhrifum. Vaxandi slaki í hagkerfinu, litlar launahækkanir, stöðugt eða sterkara gengi krónu og frekari lækkun húsnæðisverðs eru meðal þeirra þátta sem munu tryggja lága verðbólgu á árinu.

 

Gengi krónunnar ætti að okkar mati að geta haldist stöðugt eða styrkist á árinu. Líklegt er að eftir aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda sem ætti að eiga sér stað þegar Icesave samkomulagið er í höfn muni vera hugað að næsta skrefi við afnám gjaldeyrishafta. Byggjum við á þeirri forsendu að samkomulag náist fyrir næsta vaxtaákvörðunarfund en um það er líkt og áður sagði umtalsverð óvissa. Tefjist þetta samkomulag mun það tefja vaxtalækkunarferlið.

 

Í næsta skrefi við afnám gjaldeyrishafta er ætlunin að afnema höft á þolinmóðasta erlenda fjármagnið sem hér er, t.d. það sem bundið er í lengstu ríkisbréfunum og íbúðabréfunum. Varla verður farið út í þetta nema tryggt sé að gengi krónunnar lækki ekki í kjölfarið. Hins vegar má búast við að áhersla Seðlabankans á að halda áhættuleiðréttum vaxtamun við útlönd háum aukist. Þetta mun draga úr vilja bankans til að lækka stýrivexti sína á árinu.

 

M.v. spá okkar um 6,0-6,5% stýrivexti í lok árs ætti munur innlendra og erlendra skammtímavaxta að vera kominn í 4,5-5,0 prósentustig í lok árs. Vaxtamunurinn er nú u.þ.b. 7,5% miðað við innlenda og erlenda millibankavexti ."(visiris)

Vonandi gengur spá greiningardeildar Íslandsbanka eftir,þar eð mikil nauðsyn er á frekari lækkun stýrivaxta. Hún er forsenda þess að unnt verði að  rétta atvinnulífið við.

 

Björgvin Guðmundsson.




Fleiri fréttir

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 10:35

Hollendingar setja skilyrði fyrir framhaldi Icesaveviðræðna

Hollensk stjórnvöld vilja að Íslendingar samþykki grundvallaratriði síðasta tilboðs Þeirra...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 11:59

Neytendastofa bannar auglýsingar American Express

Neytendastofa hefur bannað birtingu auglýsinga American Express þar sem borin er saman vil...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 11:53

Ekki eins svart yfir landsmönnum og undanfarið

Ekki var jafn svart yfir landanum nú í febrúar og hefur að jafnaði verið síðustu misseri e...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 10:22

Greining: Stýrivextir lækka um 0,5-1,0 prósentustig

Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans lækki vexti banka...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 09:50

Íbúðalánasjóður lækkar vexti

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaála...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 09:07

Útgjöld hins opinbera hafa aukist gífurlega á síðustu 30 árum

Frá árinu 1980 hafa útgjöld hins opinbera vaxið um nálægt 11 prósentustig af landsframleið...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 09:02

Eik Banki gefur út afkomuviðvörun

Eik Banki hefur gefið út afkomuviðvörun og reiknar nú með að tapið á rekstri bankans á síð...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 08:48

Nýr stór hluthafi í Færeyjabanka

Bandaríski eignastýringarsjóðurinn Wellington Management Company hefur eignast 6,39% hlut ...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 08:19

Alþjóðahvalveiðiráðið íhugar að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni

Alþjóða hvalveiðiráðið (IWC) íhugar nú að aflétta banni á hvalveiðar í atvinnuskyni. Samkv...  

Meira

Viðskipti innlent 23. feb. 2010 06:00

Ekki viðeigandi að skulda í skilanefnd

„Ef þetta er staðan er hún áhyggjuefni og ekki viðeigandi,“ segir Gunnar Andersen, forstjó...  

Meira

Viðskipti innlent 22. feb. 2010 18:45

Formaður Landsvaka kærður til saksóknara

Fjármálaeftirlitið hefur kært Stefán H. Stefánsson, fyrrverandi stjórnarformann Landsvaka ...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 22. feb. 2010 18:34

Niðurfelling starfsmanna Kaupþings skattlögð

Starfsmenn Kaupþings sem fengu skuldir sínar við bankann felldar niður gætu þurft að greið...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 22. feb. 2010 15:55

Allar vísitölur skuldabréfa lækkuðu í dag

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 8,7 milljarða viðskiptum. GAMMAi: ...  

Meira

Viðskipti innlent 22. feb. 2010 15:41

Athugasemdir FME við viðskipti tveggja tryggingarfélaga

Fjármálaeftirlitið (FME) sá ástæðu til að gera athugasemdir við viðskipti tveggja trygging...  

Meira

Viðskipti innlent 22. feb. 2010 15:17

Heimilt verði að kyrrsetja eignir í skattrannsóknum

Stjórnarfrumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verð...  

Meira

Skoða fréttir: Veldu dagsetningu Allir dagar 32Í dag22. febrúar 201021. febrúar 201020. febrúar 201019. febrúar 201018. febrúar 201017. febrúar 201016. febrúar 201015. febrúar 201014. febrúar 201013. febrúar 201012. febrúar 201011. febrúar 201010. febrúar 20109. febrúar 20108. febrúar 20107. febrúar 20106. febrúar 20105. febrúar 20104. febrúar 20103. febrúar 20102. febrúar 20101. febrúar 201031. janúar 201030. janúar 201029. janúar 201028. janúar 201027. janúar 201026. janúar 201025. janúar 201024. janúar 201023. janúar 2010


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband