Þriðjudagur, 9. mars 2010
Vill,að Svíar láni Íslendingum óháð lausn á Icesave
Leiðarahöfundurinn segir að það sé sérlega ámælisvert að Norðurlöndin styðji Breta og Hollendinga í samningunum við Íslendinga um Icesave-reikninginn. Því hljóti að vera sérstaklega erfitt fyrir Íslendinga að kyngja eins og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafi gefið til kynna eftir að Íslendingar nær allir sem einn höfnuðu Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það geti ekki verið rétt að 300 þúsund manna þjóð sé látin bera ábyrgð á svo stórum bönkum. Viðræður séu að sögn hafnar á ný en Bretar og Hollendingar setji enn fram harðar kröfur sem studdar séu af öðrum Evrópusambandslöndum.
Um gagnrýni Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á Norðurlönd fyrir að tengja lánafyrirgreiðslu við Icesave-samninginn segir Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, að hann standi við skilyrðin fyrir sænsku láni til Íslands. Leiðarahöfundur Upsala Nya Tidning segir það kunni ekki góðri lukku að stýra ef að Ísland, framtíðar aðildarríki Evrópusambandsins, eigi að finnast það vera óvelkomið í hóp Evrópusambandsríkja. Gjaldþrot Íslands sé engum til góðs og Svíþjóð eigi að taka forystu í málinu og veita Íslendingum lánafyrirgreiðslu á góðum kjörum.(ruv.is)
Þetta er athyglisvert innlegg hjá hinum sænska leiðarahöfundi. Vissulega væri eðlilegt að Svíar og hin Norðulöndin lánuðu Íslandi án tillits til þess hvort lausn væri komin í Icesave málið.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.