Samkeppniseftirlitið fái víðtækari heimildir

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að vísa frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um breytingar á samkeppnislögum til þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingis. Verði frumvarpið að lögum fær Samkeppniseftirlitið nýjar og víðtækari heimildir til að grípa inn í starfsemi fyrirtækja eða markaði, m.a. með því að skipta upp markaðsráðandi fyrirtæki ef samkeppni er takmörkuð eða hefur verið raskað.

 

Í tilkynningu segir að samkvæmt frumvarpinu, sem fjallar um breytingar á samkeppnislögum nr. 44/2005, verður Samkeppniseftirlitinu heimilt að beita nauðsynlegum úrræðum til að breyta atferli eða skipulagi fyrirtækja sem með háttsemi eða vegna aðstæðna á markaði koma í veg fyrir, takmarka eða raska samkeppni.

 

Þannig er heimilt að beita þessu ákvæði ef skipulag eða uppbygging fyrirtækis hamlar samkeppni, eða ef athafnir eða athafnaleysi fyrirtækisins gera slíkt hið sama. Beita má ákvæðinu þrátt fyrir að ekki sé brotið gegn bannákvæðum samkeppnislaganna.

 

Ljóst er að fyrirtæki geta verið í slíkri yfirburðastöðu á markaði að tilvist þeirra í óbreyttu formi útiloki eða takmarki samkeppni - þrátt fyrir að ekki hafi átt sér stað samruni eða brot fyrirtækisins á bannreglum samkeppnislaganna. Sú röskun sem getur leitt af framangreindu getur verið jafn alvarleg fyrir neytendur og brot á samkeppnislögunum og verður með þessu frumvarpi innleidd ný úrræði fyrir samkeppnisyfirvöld til að bregðast við. (visir.is)

Verði frumvarpip að lögum fær Samkeppniseftirlitið talsvert víðtækari heimildir en það hefur í dag m.a. heimildir til þess að skipta upp fyrirtækjum.

 

Björgvin Guðmundsson

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband