Fimmtudagur, 8. apríl 2010
Það versta afstaðið í heimskreppunni
Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að samkvæmt yfirlitinu bendir nú flest til þess að stærsti brimskaflinn sé að baki. Fyrir því er fjöldi vísbendinga. Fjármálamarkaðir virðast nú hafa náð viðsnúningi eins og sjá má á þróun á verði hlutabréfa, og aðgangur að láns- og lausafé hefur batnað til muna frá því sem verst var.
Einkaneysla hefur aukist í Bandaríkjunum og húsnæðisverð virðist hafa náð viðsnúningi í mörgum ríkjum. Væntingar hafa haldið áfram að vænkast víðast hvar. Atvinnuleysi hefur að öllum líkindum náð hápunkti í flestum aðildarríkjum OECD og í raun hefur atvinnuleysi víða aukist minna en búist var við í fyrstu. OECD lönd hafa notið góðs af viðskiptum við nýmarkaðsríki sem hafa verið í örum vexti á borð við Kína, Indland og Brasilíu. Þetta hefur gert áhrif kreppunnar mýkri en ella.
Hagkerfi flestra OECD ríkjanna virðast hafa hrokkið í gang á síðasta ársfjórðungi 2009 að evrusvæðinu undanskildu. OECD spáir því að batinn muni svo hægja á sér á fyrri helmingi þessa árs. Býst stofnunin við að hagvöxtur í Bandaríkjunum verði 2,4% á fyrsta ársfjórðungi þessar árs og 2,3% á öðrum ársfjórðungi. Hagkerfi Japan mun vaxa um 1,1% á fyrsta ársfjórðungi og um 2,3 á öðrum fjórðungi. Í þremur stærstu hagkerfum evrusvæðisins verður 0,9% hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi og 1,9% vöxtur á öðrum fjórðungi.
Enn er þó of snemmt að fagna endalokum kreppunnar. Batinn er enn tvísýnn og afar viðkvæmur fyrir öllum breytingum á ytri aðstæðum. Senn líður að úrslitastund en óvíst er hvernig sjúklingnum mun reiða af þegar áhrifin af rándýrum aðgerðapökkum stjórnvalda munu þynnast út.
OECD tekur þar með í sama streng og AGS og varar eindregið við því að of harkalega verði farið í að vinda ofan af aðgerðaráætlunum stjórnvalda og seðlabanka. Aðgerðapakkarnir hafa kostað sitt og kreppan skilur ríkisfjármál margra ríkja eftir í djúpum sárum. Þannig hafa opinberar skuldir aukist gríðarlega sem er mikið áhyggjuefni. Til að mynda hafa ríkisfjármál Spánar, Írlands, Kanada, Hollands, Ástralíu, Noregs Danmerkur, Finnlands og Svíþjóðar farið úr afgangi í halla á síðustu tveimur árum.(visir,is)
Það er ánægjulegt,að hagvöxtur verði í Bandaríkjunum og Japan í ár.Batinn hefur gengið hægt á evrusvæðinu en er að koma. Ástandið í viðskiptalöndum okkar hefur áhrif hér.Því betra sem ástandið er ytra því betur gengur okkur.
Björgvin Guðmundsson
Síður á vísir.is
Síður undir "Business"
Síður undir "Business"
Flýtival
Nýtt á Vísi
Markaðurinn
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.