Stöðvar ríkisstjórnin söluna á HS orku?

Fulltrúar kanadíska fyrirtækisins Magma Energy munu ganga á fund ráðherra í dag þar sem möguleg aðkoma ríkisins að málum HS Orku verður rædd. Ekki var tekin ákvörðun um sölu á hlut Geysis Green í HS Orku til Magma í gær. Boðað verður til blaðamannafundar um málið í dag.

Ýmsar atlögur hafa verið gerðar að málinu og hefur ætíð slitnað upp úr viðræðum. Að þeim hafa, auk fulltrúa ríkisins og fyrirtækisins, komið fulltrúar lífeyrissjóðanna, Grindavíkur og Framtakssjóðs. Ekki hefur gengið saman og því var yfirlýst stefna fyrirtækisins að selja Magma Energy hlutinn.
Sú hugmynd hefur mætt mikilli andstöðu, ekki síst frá Vinstri grænum. Ögmundur Jónasson, þingmaður flokksins, lýsti eftir því í gær að salan yrði stöðvuð. Þá hefur Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýst yfir andstöðu sinni á fyrirhugaðri sölu.

Einnig má nefna að Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi A-lista í Reykjanesbæ, sameiginlegs lista Samfylkingar og Framsóknarflokksins, hefur lýst því yfir að fyrirhuguð sala þýði að hagnaður af orkusölu flytjist úr landi.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði, hyggst leggja fram tillögu í bæjarstjórn þess efnis að samfélagsleg yfirráð í landi sveitarfélagsins verði tryggð. Þau mál eru á hendi opinbera hlutafélagsins Suðurlinda, sem heldur utan um náttúruauðlindir Hafnarfjarðar, Grindavíkur og Voga. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að sambærileg tillaga sé væntanleg í hinum sveitarfélögunum.

Guðrún bendir á að þau svæði sem HS Orka skilgreini sem sín framtíðarvirkjunarsvæði séu innan marka bæjarfélaganna þriggja. Hún segir fráleitt að ætla sér að selja hlutinn nú til kanadíska fyrirtækisins.

„Það sýnir örvæntingu Reyknesinga að ganga frá sölunni nú til að fegra bókhaldið. Þeir eru bara að selja auðlindirnar til að bjarga sjálfum sér."
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er allsendis óvíst hvort af samningum verður við ríkisvaldið. Þykir sumum stjórnarliðum að ríkið eigi nóg með hluti sína í Landsvirkjun, Rarik og Orkubúi Vestfjarða, enda sé skuldsetning mikil í orkugeiranum. Aðrir líta á það sem prinsippmál að missa ekki auðlindir í erlenda eigu.(visir.is)

Æskilegt væri að ríkisstjórnin fyndi leið til þess að stöðva söluna á HS orku úr landi. Ef til vill næst samkomulag við Magma Energy um málið.

 

Björgvin Guðmundsson



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband