Fær Jón Gnarr allt þetta fylgi?

Fátt er um meira talað í dag en það mikla fylgi sem Jón Gnarr og Besti flokkurinn  fær í skoðanakönnunum. Fylgið er í síðustu skoðanakönnun komið í 6 borgarfulltrúa.Það er orðið meira en hjá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu.

Aðalástæðan fyrir þessu fylgi Jóns Gnarr er óánægja með gömlu flokkana.Fólk lætur óánægju sína í ljós með því að styðja Besta flokkinn.Ég hefi ekki trú á því að þetta mikla fylgi skili sér inn í kjörklefana. En Jón getur hæglega fengið drjúgt fylgi.Hann er góður skemmtikraftur  og skemmtilegt myndband hans hefur áreiðanlega  aukið fylgi hans í könnunum. Einhver spurði:Mundi spaugstofan fá enn meira?

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Þetta er ekki nóg þyrfti að vera meirihluti því það fólk sem telur sig vera stjórnmálamenn stinga kjósendur sína í bakið eftir kosningar verst að þetta er ekki alþingiskosningar. Spaugstofan kannski bjóða þeir sig fram til alþingis hver veit

Jón Sveinsson, 19.5.2010 kl. 12:09

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Það yrði ekki í fyrsta sinn sem grínari fengi mikið fylgi, styst er að minnast fylis Davíðs Oddssonar.  Spaugstofan er ekki eins fyndin og Jón Gnarr - og ég tel að vísu að Jón sé ekkert fífl og gríni hans fylgi alvara.  það er annað álit en ég hef á Davíð Oddssyni.

Jóhanna Magnúsdóttir, 19.5.2010 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband