Seðlabankinn 8.mai 2008: Fjármálakerfið í meginatriðum traust

Í skýrslu rannsóknarnefndar alþingis um bankahrunið er fjallað um eftirlitsstofnanirnar,einkum Fjármálaeftirlitið og Seðlabankann.Báðar þessar stofnanir brugðust eftirlitsskyldu sinni.Seðlabankiunn  á að fylgjast með fjármálastöðugleika og birtir reglulega skýrslur um hann.Hinn 8.mai 2008, 5 mánuðum fyrir hrun birti bankinn skýrslu um fjármálastöðugleika.Þar sagði,að fjármálakerfið væri í meginatriðum traust.Og ennfremur sagði:Ársreikningar 3 ja stærstu bankanna 2007 sýna þróttmikla stöðu og að eiginfjárstaða og lausafjárstaða bankanna er viðunandi.

Það er ótrúlegt,að Seðlabankinn skuli hafa gefið bönkunum svona góða umsögn aðeins  5 mánuðum fyrir hrun.Svo virðist sem FME og Seðlabankinn hafi trúað gögnum bankanna í blindni og ríkisstjórnin trúði eftirlitsstofnunum.En hvorki FME  né Seðlabankinn gerðu nægilega  mikið af sjálfstæðum athugunum á bönkunum.Álagspróf FME voru stórgölluð.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband