Dagur leggur mesta áherslu á atvinnumálin

Dagur B.Eggertsson oddviti Samfylkingar í Reykjavík var viðmælandi Péturs Gunnlaussona á útvarpi Sögu í morgun.Rætt var um stefnu Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum.Dagur B.Eggertsson sagði,að hann legði höfuðáherslu á atvinnumálin.Hann sagði,að það yrði að beita öllum tiltækum ráðum til þess að  skapa fleiri störf.Það kom fram í máli Dags,að hann vill að borgin taki lán,t.d. hjá lífeyrissjóðunum til þess að fjármagna nýjar framkvæmdir og ný störf.Dagur sagði,að leggja ætti mikla áherslu á viðhaldsframkvæmdir,þar eð þær væru mannaflsfrekar.Dagur segir að langar raðir hjá hjálparstofnunum eftir matargjöfum séu ein afleiðing atvinnuleysisins.Það verði að útrýma  atvinnuleysinu  en jafnfram verði að hækka viðmiðunarmörkin,sem miðað væri við þegar fjárhagsaðstoð borgarinnar væri ákveðin.Þessi mörk eru nú  126 þús. á mánuði en Samfylkingin þrýsti á,að þau yrði hækkuð úr tæplega 100 þús.sem þau voru í.Nú þarf að hækka mörkin í 160 þús. eins og gildir hjá Evrópusambandinu.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband