Fimmtudagur, 17. júní 2010
Jóhanna boðar betri tíð í þjóðhátíðarræðu
Hún segir Ólaf Eggertsson bónda á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum táknmynd stöðunnar á Íslandi.
Ólafur sé maðurinn sem tekist hafi á við tímabundna erfiðleika og yfirvinna þá - enda væri sér hugstæð myndin af honum við nýsprottnar gróðurnálarnar í túni sínu.
Við erum á réttri leið, sagði Jóhanna. Hún sagði að Íslendingum hefði tekist á undraskömmum tíma að hefja nýja sókn eftir það áfall sem bankahrunið var.
Mörg jákvæð teikn væru nú á lofti og margt benti til betri tíðar. enda þótt þau viðfangsefni sem stjórnvöld þyrftu að takast á við væru óþrjótandi. Á þessu ári hefði krónan styrkst um 10%, vextir hefðu lækkað mikið og verðbólga sömuleiðis. Margt benti sömuleiðis til að hagvöxtur hæfist síðar á þessu ári. Ráðherrann sagði að þrátt fyrir þetta væri víða þröng fyrir dyrum. Margar fjölskyldur væri í vanda staddar. Mikilvægt væri að bjóða úrræði sem gögnuðust sem flestum en ekkert þó meira en traust efnahagslíf og atvinna - og væri atvinnuleysið nú minna en spáð hefði verið.(mbl.is)
Ræða Jóhönnu var góð. Hún blés landsmönnum bjartsýni í brjóst.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:50 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.