Sunnudagur, 27. júní 2010
Verið að undirbúa stofnun nýs stjórnmálaflokks
Eitthvað er um að fólk hafi sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir að landsfundur samþykkti einarða ályktun í gær, um að flokkurinn krefðist þess að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði tafarlaust dregin til baka. Þannig segist Guðbjörn Guðbjörnsson hafa sagt sig úr flokknum að lokinn afgreiðslu tillögunnar.
Þar með hætti hann í flokksráði Sjálfstæðisflokksins, stjórn fulltrúaráðs Reykjanesbæjar, stjórn Sjálfstæðisfélagsins Njarðvíking og kjördæmisráði flokksins í Suðurkjördæmi.
Hann segist þó alls ekki hafa breyst í sósíaldemókrata vegna þessa. Hann sé áfram sami frjálslyndi miðju-hægri maðurinn og hann hafi alltaf verið. "Nú er ég "pólitískur munaðarleysingi," segir Guðbjörn Guðbjörnsson á bloggi sínu.
Þá sagði Sveinn Andri Sveinsson fyrrverandi borgarfulltrúi flokksins á Fésbóksíðu sinni í gærkvöldi að nú þegar væru hafnar þreifingar umn stofnun ný stjórnmálaflokks á hægri væng stjórnmálanna.(visir.is)
Forusta Sjálfstæðisflokksins hefur haldið klaufalega á málum.Með því að krefjast þess að umsókn um aðild að ESB sé afturkölluð hefur hún skapað klofning í flokknum. Þegar er hafinn undirbúningur að stofnun nýs hægri flokks,sem mundi styðja aðild að ESB.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.