Nefnd um fjármálastöðugleika skipuð

Forsætisráðherra, fjármálaráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins undirrituðu þann 6. júlí s.l. samkomulag um skipun nefndar um fjármálastöðugleika samkvæmt tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

Að grunni til byggir samkomulagið og starf nefndarinnar á fyrra samkomulagi ráðuneytanna og stofnananna frá árinu 2006 um samráð varðandi fjármálastöðugleika og viðbúnað.

Nefnd um fjármálastöðugleika skal vera vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og tillagnagerðar vegna fjármálastöðugleika og samhæfingar viðbúnaðar við hugsanlegu fjármálaáfalli.

Þá er nefndinni ætlað að stuðla að gagnsæi um verkaskiptingu milli aðila sem og samvinnu þeirra á milli. Nefndin er ráðgefandi og tekur ekki ákvarðanir um aðgerðir en skal þó gera tillögur að aðgerðum þegar þurfa þykir. Samkomulagið hefur þannig engin áhrif á ábyrgð aðila á málaflokkum sínum, né kemur í veg fyrir að þeir taki ákvarðanir í samræmi við heimildir sínar, hver á sínu sviði.

Nefndin fjallar m.a. um stöðu og horfur á fjármálamörkuðum, samráð og aðgerðir stjórnvalda vegna hugsanlegra fjármálaáfalla, breytingar á lögum, reglum og starfsháttum er varða verksvið nefndarinnar og þróun og breytingar í alþjóðlegu samstarfi, sérstaklega innan EES.

Nefndin getur staðið að og tekið þátt í viðlagaæfingum vegna hugsanlegra áfalla á fjármálamarkaði. Hún skal einnig sinna samstarfi Norðurlanda og annarra Evrópuríkja vegna hugsanlegs fjármálaáfalls, sem s.n. „Domestic Standing Group" íslenskra stjórnvalda.

Í nefndinni sitja fulltrúar efnahags- og viðskiptaráðuneytis, forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands. Fulltrúi efnahags- og viðskiptaráðuneytis er formaður nefndarinnar og stýrir starfi hennar.

 

Björgvin Guðmundsson



 

  •  
    •  


    « Síðasta færsla | Næsta færsla »

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband