Föstudagur, 3. september 2010
Breytingar í stjórnsýslunni: Efnið skiptir meira máli en formið
Það er sjálfsagt mikil vinna að sameina stór ráðuneyti í enn stærri einingar.Þess verður vart við breytingarnar á ríkisstjórninni,að ráðherrar telja þetta mikla vinnu og mikilvæga.Ekki skal dregið úr því.En mestu máli skiptir þó að unnið sé vel að þeim málum,sem ráðuneytin hafa með að gera og eiga að vinna að.Sameiningin er að miklu leyti tæknvinna,form en ekki efni. Það er efnið,sem skiptir mestu máli.
Eins og Ragna Árnadóttir fyrrverandi dómsmálaráðherra sagði fylgja .því bæði kostir og gallar að sameina ráðuneyti.Það er unnt að fækka ráðherrum án þess að sameina ráðuneyti og það er einmitt það sem er verið að gera nú.Sameining ráðuneytanna gerist ekki fyrr en um næstu áramót.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.