Laugardagur, 4. september 2010
Mun Guðbjartur fylgja stefnu Árna Páls í félagsmálum?
Mörg viðtöl hafa birst við Guðbjart Hannessonm nýjan ráðherra velferðarmála.Það sem stendur upp úr í því,sem hann hefur að segja er niðurskurður,niðurskurður og aftur niðurskurður.Og síðan vinna við sameiningu tveggja stórra ráðuneyta í eitt stærra.Samkvæmt þessu verður stefna nýja ráðherrans sú sama og stefna Árna Páls,sem nú hefur látið af embætti sem félags-og tryggingamálaráðherra.En Árni Páll gekk mjög vasklega fram í niðurskurði og gekk á undan öðrum ráðherrum í því efni enda þótt hlífa hafi átt velferðarkerfinu.Árni Páll skar niður í almannatryggingum og þar á meðal hjá öldruðum og öryrkjum.Síðasta verk Árna Páls á þessu sviði var að frysts lífeyri aldraðra og öryrkja.Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson mótmælti því og sagði að leiðrétta þyrfti lífeyrinn.
Vonandi sýnir Guðbjartur málefnum almannatrygginga meiri skilning en Árni Páll gerði enda þótt fyrstu yfirlýsingar lofi ekki góðu í því efni.Gerð nýrra kjarasamninga stendur fyrir dyrum.Það verður áreiðanlega samið um einhverjar kauphækkanir í þeim.Á síðustu 14 mánuðum hafa launþegar með laun undir 220 þús. á mán. fengið 16% kauphækkun. Aldraðir og öryrkjar hafa á sama tíma engar hækkanir fengið,aðeins skerðingu.Það þarf að leiðrétta lífeyri aldraðra strax og áður en nýir kjarasamningar eru gerðir.Síðan á lífeyrir lífeyrisþega að fylgja breytingum á kaupgjaldi.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.