Mánudagur, 20. september 2010
Jóhanna hefur efasemdir um að rétt sé að ákæra ráðherrana
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur efasemdir um það að rétt sé að ákæra ráðherrana fjóra sem meirihluti Atlanefndarinnar svokölluðu leggur til að ákærðir verði fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð. Samkvæmt tillögunum verða ráðherrarnir ákærðir fyrir vanrækslu í starfi í aðdraganda að bankahruninu.
Jóhanna sagði í umræðum á Alþingi í dag að á þeim tíma sem ráðherrarnir störfuðu í embættum sínum hafi ráðherrarnir ekki getað komið í veg fyrir hrun fjármálakerfisins. Ítarlegri rannsókn hefði átt að fara fram á meintri vanrækslu þeirra heldur en að raun ber vitni.
Eftir að þeirri umræðu sem nú er í gangi um þingsályktunartillögu Atlanefndar um ákærur gegn ráðherrunum fjórum er lokið mun málið fara í nefnd áður en hún verður tekin til seinni umræðu á Alþingi. Í ræðu sinni hvatti Jóhanna til þess að við vinnu nefndarinnar verði ráðherrunum fjórum gefinn kostur á því að koma andmælum betur á framfæri.
Þeir fyrrverandi ráðherrar sem meirihluti Atlanefndarinnar leggur til að verði ákærðir eru Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Árni Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson. Minnihluti nefndarinnar telur að ákæra eigi Geir, Ingibjörgu og Árna en ekki Björgvin.
(visir.is)
Efasemdir Jóhönnu eru skiljanlegar.Það var orðið of seint á valdatíma umræddra ráðherra að afstýra bankahruni.Og í skýrslu rannsóknarnefndar alþingis sagði,að Ingibjörg Sólrún hefði enga ábyrgð borið á hruninu.Þess vegna er út í hött að þingmannanefndin vilji ákæra hana.Þingmannanefndin hefur enga rannsókn framkvæmt og hefur því engan grundvöll til þess að byggja ákæru gegn Ingibjörgu Sólrúnu á.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.