Þórunn greiðir ekki atkvæði með ákærum

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra mun ekki greiða atkvæði með því að fyrrverandir ráðherrum verði stefnt fyrir landsdóm. Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar telur réttast að þegar verði boðað til kosninga.

Umræðum á Alþingi um tvær þingsályktunartillögur um ákærur á hendur þremur til fjórum fyrrverandi ráðherrum lýkur í dag. Sex þingmenn eru nú á mælendaskrá en hver þeirra getur talað í tuttugu og fimm mínútur auk andsvara.

Atkvæðagreiðsla ætti að geta hafist síðdegis í dag komi ekkert óvænt upp á.

Afstaða þingmanna hefur smátt og smátt verið að koma í ljós í umræðunum. Í morgun sagðist Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra, ekki getað stutt tillögur um ákærur. Vegna þess hvernig stjórnsýslan sé byggð upp á Íslandi hafi gripið um sig úrræðaleysi og jafnvel kerfislömun þegar á reyndi.

Það sé þó ekki þar með sagt að ráðherrar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde hafi gerst sekir um refsivert athæfi.

Það er hins vegar ljóst af ræðu flokksbróður Þórunnar, Marðar Árnasonar í gær og andsvörum hans í dag við ræðu Þórunnar, að hann mun styðja málshöfðun á að minnsta kosti einhvern ráðherranna. Hann sagði að þingmenn Samfylkingarinnar hefðu mátt vita við upphaf stjórnarsamstarfsins að bankakerfið var fúið og grípa þyrfti til ráðstafana.

Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar segir á bloggi sínu, að þeir núverandi ráðherrar sem áður sátu í ríkisstjórn og þeir þingmenn sem voru ráðherrar í ríkisstjórn Geirs ættu að segja af sér. Sömuleiðis ættu þingmenn fyrrverandi stjórnarflokka sem þá sátu á þingi einnig að gera það. Hann telur eðlilegast að boða til kosninga sem fyrst.

Atkvæðagreiðsla um ákærurnar fer eins og áður sagði að öllum líkindum fram síðdegis og gæti orðið tvísýn. Ljóst er að allir þingmenn Vinstri grænna og Hreyfingarinnar muni greiða atkvæði með ákærum, Sjálfstæðismenn á móti þeim, en öllu óljósara er hvernig atkvæði samfylkingar- og framsóknarþingmanna munu falla.

(visir.is)
Þórunn gerði mjög glögga grein fyrir máli sínu.Hún hafði mjög sterk rök. Ég var að miklu leyti sammála henni.Hún taldi,að ráðherrarnir ættu að bera pólitíska ábyrgð en ekki refsiábyrgð. Þeir hefðu ekki gert nein slík mistök,sem réttlættu refsiábyrgð.
Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband