Föstudagur, 29. október 2010
Vill fjármagna 450 milljarða streng til Evrópu
Heiðar Már Guðjónsson segist hafa setið fund með Landsvirkjun þar sem hann tjáði forsvarsmönnum fyrirtækisins að hann væri í sambandi við tvo aðila sem væru áhugasamir um lagningu sæstrengs fyrir Landsvirkjun.
Samkvæmt frétt Fréttatímans þá er virði verkefnisins um 450 milljarðar króna.
Tilgangur strengsins yrði þá væntanlega að flytja orku frá landinu en Heiðar Már segir í viðtali við Fréttatímann að Landsvirkjun framleiði umframorku sem nemur um 20 til 30 prósent af allri orkunni. Hann segir þessa orku svo puðrast út í loftið í stað þess að vera seld á alþjóðlegum mörkuðum. Því séu gríðarleg sóknarfæri í að flytja orkuna erlendis með sæstreng.
Heiðar Már hefur legið undir ákúrum vegna meintrar skortsölu krónunnar og þar með grafið undan henni. Heiðar segir í Fréttatímanum að hann ætli í meiðyrðamál við DV sem hefur flutt fréttir af málinu.
Þá bætti Heiðar við að lögsóknin yrði hugsanlega alþjóðleg, það er að segja, hann myndi stefna Villþeim í fleiri löndum en Íslandi í ljósi þess að Bloomberg fréttaveitan flutti fréttir af málinu.
Í Fréttatímanum segir hann að til greina komi að lögsækja blaðið í Bretlandi, Bandaríkjunum og Sviss.(visir.is)
Hér er um mjög athyglisvert mál að ræða og ljóst,að Ísland gæti aukið tekjur sínar af orkusölu mikið með því að leggja sæstreng til Evrópu.Ísland framleiðir meira rafmagn en er notað.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.