Hjúkrunarrýmum fækkað í ár

Hjúkrunarrýmum á öldrunarheimilum var fækkað um 44 á yfirstandandi fjárlagaári. Þetta kom fram í svari Guðbjartar Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar þingmanns Framsóknarflokks á Alþingi í dag. Mest var fækkunin hjá Hrafnistu í Reykjavík, en þar fækkaði hjúkrunarrýmunum um sautján. Í Norðurþingi var hins vegar hjúkrunarrýmum fjölgað um tólf, og hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem mest var aukningin, fjölgaði hjúkrunarrýmum um tuttugu. Á þessum tveimur stöðum var skortur á hjúkrunarrýmum hvað mestur á landsvísu.(ruv.is)

Þetta  gengur í berhögg við margyfirlýst markmið Samfylkingarinnar  um að fjölga hjúkrunarrýmum.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband