62% óánægð með Jón Gnarr

Rétt tæplega 62 prósent eru óánægð með störf Jóns Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, samkvæmt könnun MMR. Þar kemur fram að 38,3 prósent aðspurðra eru ánægð með störf borgarstjórans.

Þetta er talsverð breyting frá viðhorfi almennings til borgarstjórans fyrir ári síðan. Þá sögðust 22,4 prósent óánægð með störf borgarstjórans en 77,6 prósent voru ánægð.

Veðrið í sumar hefur þó ekki vakið sömu lukku og veðrið í fyrra því 62, prósent þeirra sem tóku afstöðu núna sögðust vera ánægðir með það borið saman við 94,7 prósent fyrir ári síðan.

Annars voru Íslendingar almennt sáttir með nágranna sína, sumarfríið og vinnuna og svörin svipuð niðurstöðum frá síðasta ári.(visir.is)

Þessi úrslit koma ekki á óvart.Jón Gnarr hefur ekki staðið sig nógu vel sem borgarstjóri.Margir hafa orðið fyrir vonbrigðum með hann.En ef til vill getur hann tekið sig á það sem eftir ert kjörtímabilsins.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband