Lög og mannréttindi brotin á öldruðum og öryrkjum

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í  DV í dag um málefni aldraðra og öryrkja.Þar segir svo:
 
Aldraðir og öryrkjar hafa mikið knúið á stjórnvöld að leiðrétta kjaraskerðinguna ( og kjaragliðnunina),sem þessir hópar urðu fyrir á krepputímanum.Meðaltekjur  öryrkja ( allar tekjur þeirra, þar á meðal fjármagnstekjur) hækkuðu aðeins um 4,7% á tímabilinu janúar 2009 til janúar 2013.Á sama tímabili hækkaði launavísitalan um 23,5% .Og vísitala neysluverðs hækkaði um 20,5% á sama tímabili. Af þessum tölum er ljóst, að kjaragliðnun sú, sem öryrkjar urðu fyrir á tímabilinu 2009-2013 er mikil.Aðalástæðan er sú, að í janúar 2009 var 69.grein almannatryggingalaganna tekin úr sambandi og lífeyrir öryrkja og aldraðra var
frystur.Samkvæmt þessari grein á lífeyrir aldraðra og öryrkja að hækka í samræmi við hækkanir launa og aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs hækkar. 
Það var Talnakönnun,sem kannaði kaupmáttarskerðinguna fyrir Öryrkjabandalagið.Talnakönnun athugaði einnig breytingu bóta,verðlags og launa á tímabilinu 2008-2013. Þá kom eftirfarandi í ljós: Lágmarkslaun hækkuðu á þessu tímabili um 54,3% en lífeyrir einhleypra öryrkja hækkaði á sama tímabili aðeins um 29%. Lífeyrir sambúðarfólks  hækkaði um 29,7%.
 
Kjaraskerðingin 2009 var óheimil
 
Kjör öryrkja og aldraðra voru einnig skert með ráðstöfnunum í ríkisfjármálum 1.júlí 2009.En þá voru kjörin ekki aðeins fryst heldur voru kjörin færð niður, færð til  baka.En samkvæmt alþjóðasamningum, sem Ísland er aðili að, þá er óheimilt að færa kjör aldraðra og öryrkja til baka. Ef ætlunin er að gera slíkt   vegna efnahagsáfalla, verða stjórnvöld fyrst að leita annarra leiða. Það var ekki gert 2009.Þess vegna var kjaraskerðingin þá óheimil.
  Ef litið er á kjaraskerðingu aldraðra á krepputímanum, kemur hið sama í ljós og hjá öryrkjum. Lífeyrir einhleypra eldri borgara hækkaði miklu minna en kaup láglaunafólks.Umræddur lífeyrir hækkaði aðeins um 17% á tímabilinu 2009-2013 ( miðað við þá,sem eingöngu hafa tekjur frá TR) en á sama tímabili hækkaði kaup láglaunafólks um 40%. Kjaragliðnunin er því eins mikil hjá  öldruðum  eins og hjá öryrkjum, jafnvel aðeins meiri.Þrátt fyrir skýr og ákveðin kosningaloforð bendir enn ekkert til þess, að ríkisstjórnin ætli að leiðrétta kjaragliðnun aldraðra og öryrkja
 
Brotin mannréttindi á öldruðum og öryrkjum
 
Það eru margir mannréttindasáttmálar,sem Ísland hefur undirritað.Þessir sáttmálar kveða á um það að veita skuli öldruðum og öryrkjum félagslegt öryggi og þeir kveða á um ýmis önnur réttindi,sem tryggja á öryrkjum og öldruðum.Einna mikilvægastur þessara sáttmála er mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna.Þá skiptir samningur Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðra miklu máli fyrir öryrkja.Ísland hefur undirritað þann sáttmála en hann hefur enn ekki tekið gildi hér á landi.Er nú unnið að gildistöku sáttmálans.En það er ekki nóg að undirrita samninga og setja þá í gildi.Það þarf að fara eftir þeim.Ég hefi áður skýrt frá því, að það er óheimilt samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasamningum, sem Ísland hefur samþykkt, að færa réttindi aldraðra og öyrkja til baka, þ.e. skerða þau eins og gert var 1.júlí 2009 .Ég kvartaði yfir því við þáverandi mannréttindaráðherra, Rögnu Árnadóttur, en hún gerði ekkert með erindið.Hún stakk því undir stól.
 
Allir eiga rétt á lífskjörum, sem nauðsynleg eru til verndar vellíðan
 
Mannréttindayfirlýsing Sþ.kveður á um það,að allir eigi rétt á lífskjörum,sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan; þar á meðal rétt til fæðis,klæða og félagslegrar þjónustu.Ennfremur segir þar,að allir eigi rétt á öryggi vegna atvinnuleysis, veikinda,fötlunar,fyrirvinnumissis,elli og annars, sem skorti veldur.-Það er engin spurning, að mannréttindi hafa verið brotin á öldruðum og öryrkjum hér á landi.Lög hafa einnig verið brotin á öldruðum, þar eð í lögum um málefni aldraðra segir,að  aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við aðra þegna þjóðfélagsins.Svo hefur ekki verið.
 
 
Björgvin Guðmundsson
formaður kjaranefndar Félags eldri borgara
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ja ok og hvað a að gera i þessu spir eg bara

Ragnar Stefansson (IP-tala skráð) 27.3.2014 kl. 12:03

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæll Ragnar! Það verður að benda  stjórnvöldum á, að samkvæmt Mannréttindayfirlýsingu Sþ. eiga eldri borgarar rétt á félagslegu öryggi og sómasamlegum lífskjörum.Ef stjórnvöld láta ekki segjast þarf að vísa málinu til umboðsmanns alþingis

      Með kveðju

     Björgvin Guðmundsson 

Björgvin Guðmundsson, 27.3.2014 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband