Fimmtudagur, 26. mars 2015
Hafa sjálfir 4 milljónir á mánuði!
Samtök atvinnulífsins vilja ekki fallast á kröfu starfsgreinasambandsins um,að laun verkafólks hækki í 300 þúsund kr á mánuði á 3 árum.Þau telja þetta alltof háa kröfu og að svo "há" laun verkafólks muni setja efnahagslífið úr skorðum.Fróðlegt er að athuga hvað ráðamenn samtaka atvinnulífsins hafa sjálfir í laun.Formaður samtakanna ,Björgólfur, hefur 3,8 milljónir á mánuði í laun.Og annar stjórnarmaður Kolbeinn Árnason,talsmaður útgerðarmanna hefur 4 milljónir á mánuði.Framkvæmdastjóri SA,Víglundur Þorsteinsson,hefur ekki nema 2,7 millj.kr á mánuði! Ekki er von,að þessir menn geti skilið,að verkafólk þurfi að lágmarki 300 þúsund kr sér til framfærslu!Lífeyrisþegar eiga að fá þetta sama,300 þúsund á mánuði.Það er krafa eldri borgara.Þetta er sanngjörn krafa verkafólks og þetta er sanngjörn krafa lífeyrisþega.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:28 | Facebook
Athugasemdir
Góð samantekt hjá þér, Björgvin, þú þekkir þetta vel, hálaunamaðurinn (f.v.) og örugglega með ágætis lífeyrissjóð og ríflegan afgang um hver mánaðarmót. - Algerlega úr takti við þjóðfélagið svona launakjör en þetta er hinsvegar ekki opinberi geirinn. - Þetta segir okkur líka hvar er milljóna eða milljarða afgangur til að moka undir toppana í stjórnunarstöðum og nýjustu fréttir frá Samgöngustofu (?) er að búið er að segja upp 13 manns þar á meðan Þórólfur stofu-stjóri (og nú er þetta opinberi geirinn) er með mjög há laun, tölu sem ég þekki ekki, en hef heyrt oftsinnis svakalegar tölur um launakjör þessarra Framsóknarperra sem eru áskrifendur að hálaunastöðum út um allt í skjóli vinavæðingar. - Þetta er endalaust og verður ekki slegið af meðan við lifum, og varla eftir það. - Þetta Ísland er gegnsýrt spillingabæli hvað sem hver segir.
Már Elíson, 26.3.2015 kl. 09:09
Sæll Már! Laun starfsmanna stórnarràðsins eru ekkert í líkingu við þau laun sem stjórnendur fyrirtækja eru með.Þeir stjórnendur sem sitja í stjórn SA eru allir með margar milljónir í laun á mánuði.Þeir taka sér þessi laun hvort sem fyrirtækin ganga vel eða illa.Það eru aðeins ráðuneytisstjórar sem nálgast eina milljón á mánuði.Skrifstofustjòrar og aðrir starfsmenn þar eru miklu lægri í launum.- Ég fór að greiða í lífeyrissjóð 20 ára gamall sem blaðamaður og greiddi í lífeyrissjóð alla mína starfsævi til 68 ára aldurs.Ég hef þokkalegan lífeyrissjóð,m.a vegna þess hve ég fór snemma að greiða í hann.En lífeyrir minn hjá almannatryggingum er nær allur skorinn niður vegna lífeyrissjóðsins.Ca.15 þús.standa eftir.
Bestu kveðjur
Björgvin Guðmundsson
Björgvin Guðmundsson, 26.3.2015 kl. 09:58
Leiðrétting:Stórnarráðsins á að vera stjórnarràðsins
BG
Björgvin Guðmundsson, 26.3.2015 kl. 12:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.