Stjórnendur fá 33% en verkafólkið 3%!

Aðalfundur Granda samþykkti að hækka stjórnarlaun um 33% eða úr 150 þúsund kr í 200 þús kr. Á sama tíma bjóða stjórnendur Granda og aðrir atvinnurekendur verkafólki 3% kauphækkun!Þetta lýsir vel afstöðu atvinnurekenda til verkafólks.Grandi ákvað að greiða hluthöfum 2,7 milljarða í arð  enda græðir félagið á tá og fingri eins og önnur stór útgerðarfyritæki enda þótt þau hafi vælt og sagt,að þau hefðu ekki efni á að greiða veiðigjöldin (afgjald  af auðlindinni).Það er til skammar,að útgerðin skuli neita að greiða verkafólkinu,sem skapar arðinn,sanngjörn laun.En sanngjörn laun eru 300 þúsund krónur á mánuði.Það er lágmárk.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvenær hækkuðu laun stjórnarmanna síðast? Er 33% hækkun of mikið ef ekki hafa verið neinar hækkanir síðan fyrir hrun? Hvað hefur verkafólk hækkað mikið frá síðustu hækkun stjórnarlauna? Væru verkamenn tilbúnir til að samþykkja 33% hækkun launa fyrir 10 ára launafrystingu? Þó arðgreiðslur séu há upphæð hver er arðurinn af eigninni? Geta lífeyrissjóðirnir réttlægt eignarhluta í fyrirtækjum sem sýna lægri arðsemi? Hafa arðgreiðslur útgerðarinnar verið hærri en ef eigendurnir hefðu frekar lagt peningana inn á bankareikning? Munu einhverjir fjárfesta í útgerð og vinnslu ef eignin skilar ekki viðunandi arði? Það er auðvelt að gagnrýna þegar aðeins hálf sagan er sögð og samhengi hlutanna ekki skoðað.

Ufsi (IP-tala skráð) 16.4.2015 kl. 09:03

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæll! Þetta mál snýst um meira en prósentuhækkanir.Það snýst ekki síður um hvað eru sanngjörn stjórnarlaun og hvað réttlát og sanngjörn laun verkafólks,fiskvinnslufólks.Stjórnarlaun voru hækkuð í 200 þúsund krónur.Það er nálægt lágmarkslaunum verkafólks á mánuði.Þetta fá stjórnendur Granda fyrir einn fund í mànuði!Dágott tímakaup það.En fiskverkafólk og annað verkafólk hjá Granda og öðrum útgerðarfyrirtækjum þarf að strita í heilan mánuð til þess að fá sama kaup.Með aukavinnu og miklum afköstum getur fiskverkafólk aukið tekjur sínar talsvert. Ég veit,að Óla ufsa finnst þetta ekki sanngjarnt.Víst þurfa hluthafar að fá arð af sínu fjármagni. En það er ekki langt síðan útgerðin hélt grátfund á Austurvelli til þess að mótmæla veiðigjöldum.Útgerðin taldi sig ekki hafa efni á því að greiða eðlileg afgjöld  af auðlindinni sem þjóðin á. Miðað við mikinn gróða útgerðarinnar í dag eru veiðigjöldin alltof lág. Þjóðin þarf að fá mikið hærra gjald fyrir að veita útgerðinni afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.Ef útgerðin greiddi eðlilegt afgjald fyrir afnot auðlindarinnar  yrði meiri sátt um arðgreiðslur til hluthafa.Og eins ef stjórnendur Granda samþykktu að greiða verkafólkinu mannsæmandi laun,t.d. 300 þúsund á mànuði,þá yrði einnig meiri sátt um arðgreiðslur og stjórnarlaun.

Með bestu kveðju

Björgvin Guðmundsson

Björgvin Guðmundsson, 16.4.2015 kl. 10:20

3 identicon

En þá er spurningin hvort um nokkrar arðgreiðslur yrði að ræða og þá hvort útgerð geti þrifist. Það sem þú kallar mikinn gróða útgerðarinnar er samt lítil arðsemi fjárfestinga. Og þar sem lítil arðsemi er, þar er ekki eftirsóknarvert að fjárfesta, stofna og reka fyrirtæki. Fólk, fyrirtæki og lífeyrissjóðir eru ekki að fjárfesta í útgerðarfyrirtækjum af góðmennsku og fórnfýsi.

Ufsi (IP-tala skráð) 16.4.2015 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband