Aldraðir og öryrkjar fá hungurlús

Bæði fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra komu í sjónvarpið í kvöld til þess að dásama þá hungurlús,sem ríkið ætlar af miskunn sinni að láta eldri borgara og öryrkja fá á næsta ári!Ríkisstjórnin ætlar að láta lífeyrisþega fá þriðjung þeirrar hækkunar sem Láglaunafólk fær. Launþegar fengu 30 þúsund króna hækkun á mánuði 1.mai.En lífeyrisþegar eiga aðeins að fá 8,9% hækkun og þeir mega ekki fá hana fyrr en næsta ár eða 8 mánuðum seinna en launþegar! Ríkisstjórninn telur ekkert liggja á að bæta kjör aldraðra og öryrkja ! Launþegar sömdu um 27 % hækkun launa á 3 árum og hækkun launa í 300 þúsund á mánuði.Þeir fá 15 þús króna hækkun strax á næsta ári.Aldraðir og öryrkjar fá  engin fyrirheit um viðbótar hækkun lífeyris strax næsta ár eins og launþegar.Með því að þeir fá ekki hungurlúsina fyrr en næsta ár er ljóst að þeir fá enga viðbótarhækkun næsta ár eins og launþegar.

Þeir fá ekkert vilyrði fyrir hækkun í 300 þúsund krónur á mánuði á 3 árum eins og launþegar.

Samt eiga lífeyrisþegar rétt á því að fá sömu hækkun á lífeyri eins og Láglaunafólk fær á launum. Og réttur aldraðra og öryrkja til lífeyris og aðstoðar frá ríkinu er stjórnarskrárvarinn.Ég tel,að með því að halda lífeyri aldraðra og öryrkja niðri sé verið að brjóta stjórnarskrána og lög um almannatryggingar og málefni aldraðra.Stjórnvöld hafa ekkert leyfi til þess að hlunnfara lífeyrisþega eins og gert er.Það á að meðhöndla aldraða og öryrkja eins og láglaunafólk.Það eru sömu rök  fyrir nauðsyn hækkunar lífeyris eins og fyrir þörf á launahækkun. 

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Björgvin- er ekki löngu tímabært að ellilífeyrisþegar sem mer finnst að ættu að fá óskert laun frá Lífeyrissjóðum súnum áður en þeir hverfa í hendur fjárglæframanna- fari í hópmálsókn til Mannrettindadómstóls  í málsókn gegn Rikinu  OG TIL VARA lifeyrisjóðum  ÞVÍ ÞETTA FÓLK ER FYRIR NEÐAN FRAMFÆRSLUMÖRK  við eigum lifeyrir - ættum ekki að vera á framfæri ræningja !!!

Erla Magna Alexandersdóttir, 7.7.2015 kl. 20:24

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæl Erla Magna! Ég er að kanna möguleika à málsôkn,ífyrstu innanlands

kær kveðja

Björgvin

Björgvin Guðmundsson, 8.7.2015 kl. 11:05

3 identicon

Sæll Björgvin !

Árið 2006-07 var mér gert að vera launalaus að hluta. - Ég sótti því um félagsbætur til Reykjavíkurborgar á ársbyrjun 2007. 

Mér voru úthlutaðar skertar félagsbætur kr. 76. þúsund krónur á mánuði.

Í 76. gr. stjórnarskrárinnar segir að allir íslenskir ríkisborgarar eigi rétt á fæði, klæði, húsnæði og menntun við hæfi. 

Eins og gefur að skilja hefur talan 76 verið mér ógleymanleg síðan, með öllu.

Hvað skyldi Umboðsmaður borgara og Umboðsmaður alþingis hafa um málið að segja ?

Virðingarfyllst,

Helga Björk Magnúsdóttir og  Grétudóttir.

tónlistarkennari,  aktívisti,

harðsvíraður guðspekissinni og

lögformlegur eigandi Dómkirkjunnar.

ÖRYRKI Í BOÐI STJÓRNVALDA.

Sólvallagötu 50,

101, Reykjavík.

songholl@internet.is

Gsm. 821-9871

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir (IP-tala skráð) 12.7.2015 kl. 20:02

4 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Kannaðu málsókn gegn ríkinu Björgvin sem gerir allt sem þeir geta til að halda niðri gegni krónunnar.

Borga niður langtímalán fyrir tímann.

Kaupa upp gjaldeyri.

Og núna á að lækka tolla á allt nema matvæli. Allt gagngert til að halda niðri genginu og við halda 50% gengisfellingunni í hruninnu.

Dæmi fyrir hjón á ellilífeyri sem vilja búa erlendis. Fyrir hrun € 3000 Eftir hrun € 2000

Ef þeir væru ekki með puttana í genginu værum við sennilega búin að ná að hækka gengið um 20 til 30 % svo við værumkomin í um € 2600. Munar um € 600 ???

Ólafur Örn Jónsson, 14.7.2015 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband