Ríkið skuldar hverjum lífeyrisþega 75 þúsund krónur.Áttu að fá 30 þúsund króna hækkun á mánuði eins og Láglaunafólk

Láglaunafólk fékk 30 þúsund króna kauphækkun á mánuði 1.mai.Lífeyrisþegar àttu þá að fá sömu hækkun en hafa ekki fengið eina krónu.Fjármálaràðherra ætlar ekki að làta aldraða og öryrkja fá neina hækkun fyrr en á næsta ári. Skuld ríkisins við hvern lífeyrisþega verður þá orðin 240 þúsund krónur.Hún er nú 75 þúsund kr.En ekki nóg með það. Fjármálaráðherra ætlar ekki að láta lífeyrisþega fá meira en 8,9% hækkun eða 60% af þeirri hækkun sem láglaunafólk fékk 1.mai.Launþegar fá 28% kauphækkun á 3 árum og kaupið fer þá í 300 þúsund. Lífeyrisþegar fà aðeins þriðjung af kauphækkun launafólkis á samningstímanum.Þannig meðhöndlar þessi ríkisstjòrn aldraða og öryrkja.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Láglaunafólk fékk kauphækkun 1.mai. Lífeyrisþegar àttu ekki að fá sömu hækkun. Bætur lífeyrisþega miðast ekki við lágmarkslaun og breytingar á þeim. Lögum samkvæmt taka bætur lífeyrisþega breytingum samkvæmt launaþróun í landinu en ekki einstökum hækkunum.  Fjármálaràðherra ætlar ekki að làta aldraða og öryrkja fá neina hækkun fyrr en á næsta ári eins og lög kveða á um.  Skuld ríkisins við hvern lífeyrisþega er því engin og það sem þú ert að gera er að fara með rangfærslur og hvetja til lögbrota.

Ufsi (IP-tala skráð) 17.7.2015 kl. 11:40

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæll Óli ufsi!

 Það er óljóst í lögunum við hvað á að miða.Ef miða á við launaþróun þá er það þróun launa allra stétta,þar á meðal lækna,framhaldsskólakennara,iðnaðarmanna og verkafólks.Það er hærri viðmiðun en að miða við lágmarkslaun eins og ég geri.Davíð Oddsson,sem setti núverandi lög um málið,sagði,að þessi lög væru hagstæðari en gömlu lögin,sem miðuðu við làgmarkslaun.Þess vegna er ég í fullum rétti að miða við lægstu laun.Stjórnvöld hafa skert lífeyri aldraðra og öryrkja á miÐju ári.Á sama hátt má hækka hann á miðju ári.Ríkið skuldar  lífeyrisþegum miklu Meira en þessar 75 þúsund kr.Ríkið skuldar öldruðum og öryrkjum 17 milljarða vegna kjaragliðnunar krepputímans.Ríkið getur byrjað að borga það.Það er af nógu að taka. Ríkið brýtur einnig stjórnarskrána með því að skammta hópi lífeyrisþega 192 þúsund. Kr á mánuði,sem dugar rétt rúmlega fyrir húsaleigu en engan veginn fyrir fullri framfærslu.

Bestu kveðjur

Björgvin

Björgvin Guðmundsson, 17.7.2015 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband