Mánudagur, 9. nóvember 2015
Ritskoðun á Facebook!
Í morgun skrifaði ég klausu hér um að stöðva þyrfti skerðingu lífeyris aldraðra hjá TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Ég ætlaði að deila þessu yfir á Facebook. En þá brá svo við,að Facebook neitaði að birta þetta.Klausan var m.a byggð á ályktun Félags eldri borgara um sama efni. Ég reyndi þá að senda inn nýja klausu sem byggðist alfarið á ályktun FEB en allt kom fyrir ekki.Facebook neitaði að birta.Þá greip ég til þess ráðs að birta grein frá 5.júní úr Fréttablaðinu um sama efni sem hafði komið á Facebook. Það gekk. Fróðlegt væri að vita hver stendur fyrir ritakoðun á Facebook.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Athugasemdir
Fróðlegt væri að vita hvort meirihluti þjóðarinnar á enga foreldra- eða gefur skít í eldri borgara almennt !
Erla Magna Alexandersdóttir, 9.11.2015 kl. 21:01
Sæl Erla Magna! Já ég tek undir það með þér. Mig undrar oft hvað stjórnvöld eru neikvæð gagnvart eldri borgurum og hvað mikið tóm læti ríkir í málefnum aldraðra.-Og skörim færist upp í bekkinn,þegar farið er að ritskoða Facebook,þegar skrifað er um kjör eldri borgara.
Kær kveðja
Björgvin
Björgvin Guðmundsson, 9.11.2015 kl. 22:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.