Hvað þurfa aldraðir og öryrkjar mikið sér til framfærslu?



Engin könnun hefur verið gerð á því hvað eldri borgarar þurfi mikið sér til framfærslu, þegar þeir eru hættir störfum.Raunar hefur Hagstofan ekki kannað framfærslukostnað almennt. En hún hefur reglulega kannað neyslukostnað, gert neyslukannanir.Samkvæmt síðustu neyslukönnun Hagstofunnar er meðaltalsneysla einhleypinga 321 þúsund krónur á mánuði.Húsnæði er inni i þeirri tölu og nær allir neysluliðir.Þegar velferðarráðuneytið  kannaði árið 2011 hvert ætti að vera dæmigert neysluviðmið var útkoman svipuð og í neyslukönnun  Hagstofunnar. Ljóst er þvi að miða má við hana.

Neyslukönnun Hagstofu er viðmiðið

Ég tel,að neyslukönnun Hagstofunnar eigi við eldri borgara eins og aðra. Sumir liðir könnunarinnar,eins og lækniskostnaður og lyfjakostnaður eru þó lægri en meðaltals -raunkostnaður þessara kostnaðarliða hjá eldri borgurum.Eldri borgarar eyða  m.ö.o. hærri upphæðum í læknis-og lyfjakostnað en nemur meðaltali slíks kostnaðar hjá almenningi.
.Lífeyrir aldraðra hjá Tryggingastofnun er aðeins  192 þúsund krónur  á mánuði eftir skatta (einhleypingar, sem ekki hafa aðrar tekjur en frá TR) Það vantar því 129 þúsund krónur á mánuði upp á, að lífeyrir TR nái  meðaltali neyslukönnunar  Hagstofunnar.Tölurnar eru sambærilegar, þar eð í báðum tilvikum eru þær án skatta.

FEB vill miða við neyslukönnunina

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur ítrekað ályktað á aðalfundum sínum að hækka ætti lífeyrinn frá almannatryggingum um 129 þúsund krónur á mánuði svo hann næði upphæð neyslukönnunar Hagstofunnar.En stjórnvöld hafa hundsað þá ályktun eins og þau hafa hundsað aðrar ályktanir eldri borgara! Félag eldri borgara hefur boðið, að þessi munur,129 þúsund krónur, yrði jafnaður i 3 áföngum.En rïkisstjórnin hefur virt þá ósk að vettugi.Það eina sem stjórnin býður eru rúmar 20 þúsund krónur af þessum 129 þúsundum! Rausnarlegt það,þegar nógir peningar eru til.Stjórnin hefur  meira að segja afsalað sér sköttum!

Jafna má mikið á 3 árum
.
Ef lífeyrir eldri borgara hjá TR hækkar um 14,5% eins og lágmarkslaun hækkuðu hækkar lífeyririnn um 32625 krònur á mánuði .Lífeyrir aldraðra, sem einungis hafa tekjur hjá TR, er í dag 225 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. 14,5% hækkun gerir 32.625  kr.
Ef lífeyrir aldraðra hjá TR hækkar alls upp í 300 þúsund á mánuði á 3 árum eins og lágmarkslaun hefur lífeyrir aldraðra hjá TR hækkað verulega.Ríkisstjórnin ætti að taka rögg á sig og stíga þessi skref.

Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni

(Fréttablaðið,9.desember 2015)

www.gudmundssson.net

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Björgvin.

Ég leyfi mér reyndar að efast um að þessi neyslukönnun Hagstofunnar standist, þ.e. ef húsnæðiskostnaður er í þeirri könnun. Eins og allir landsmenn vita þá hefur sá kostnaður hækkað verulega undanfarin misseri, mest þó á leiguhúsnæði.

Það er merkilegt að ríkisstjórn sem er í þeirri stöðu að geta loks leiðrétt hlut aldraðra og öryrkja, án þess að setja fjárlög í uppnám, skuli ekki grípa slíkt tækifæri. Hvað getur ríkisstjórn gert frekar til að auka fylgi sitt en einmitt að fara þá leið. Þó aldraðir og öryrkjar séu kannski ekki stór hluti kjósenda þá eru flestir kjósendur tengdir fólki úr þessum hópum og þekkir því vanda þess.

Mér er þetta með öllu óskiljanlegt!

Gunnar Heiðarsson, 9.12.2015 kl. 08:38

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæll Gunnar!Ég er sammála þér um að húsnæðisliður neyslukönnunar Hagstofunnar sé úreltur. Könnin er a.m.k 2 ja ára gömul.Og aðeins á þeim tíma hefur húsnæðiskostnaður rokið upp,einkum leiga.Það er þvi nauðsynlegt að uppfæra könnunina. En neysluviðmið velferðarráðuneytisins er enn fjær raunveruleikanum.Það er einnig úrelt.

Bestu kveðjur

Björgvin Guðmundsson

Björgvin Guðmundsson, 9.12.2015 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband