Fimmtudagur, 24. desember 2015
Biskupinn og forsetinn taka afstöðu með öldruðum og öryrkjum
Nýlega lýsti biskupinn yfir Íslandi því yfir,að bæta þyrfti kjör aldraðra og öryrkja.Þessi ummæli biskups vöktu mikla athygli.Fyrir skömmu fóru forseti Íslands og forsetafrú í heimsókn til fjölskylduhjálparinnar í Reykjanesbæ og aðstoðuðu við afhendingu matar pakka.Við það tækifæri gagnrýndi forsetinn,að allir gætu ekki haldið jól vegna fátæktar.Gagnrýndi forsetinn,að mál hefðu ekki verið skipulögð þannig,að allir,þar á meðal allir aldraðir og öryrkjar, gætu haldið jól og haft nóg.Þessi ummæli fóru fyrir brjóstið á fjármálaráðherra og hann gagnrýndi forsetann. Hann hefði getað látið það ógert.
Ríkisstjórn felldi á alþingi allar tillögur um að aldraðir og öryrkjar fengju afturvirkar kjarabætur eins og verkafólk og ráðherrar,alþingismenn og embættismenn!
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:45 | Facebook
Athugasemdir
Biskupinn og forsetinn eru báðir hluti af íslenska aðlinum.Þess íslenska ríkisaðals sem býr við þau forréttindi að ríkið ábyrgist lífeyrissjóð þeirra.Vonandi rennur sá tími upp að forsetinn og biskupinn leggi til að ríkið ábyrgist alla lífeyrissjóði.Ekki bara lífeyrissjóð ´silenska ríkisaðalsins.
Sigurgeir Jónsson, 24.12.2015 kl. 16:36
Þó svo bæði byskup og forseti horfi upp á neyðina þá skilja þau þetta ekki og koma aldrei til með að skilja hvernig það er að geta aldrei veitt sér nokkurn skapaðan hlut og jafnvel neita sér um brýnustu nauðsynjar eins og mat og lyf en það eru fjölmargir sem búa við þann raunveruleika. Raunveruleika sem elítan mun aldrei og getur aldrei skilið.
Jack Daniel's, 27.12.2015 kl. 19:05
Sæll Jack!Gaman að þú skulir vera orðinn bloggvinur.Er sammála þér um forsetann og biskupinn.En stuðningsyfirlýsing er samt mikilvæg frá þeim.Kær kveðja.Björgvinr
Björgvin Guðmundsson, 27.12.2015 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.