Mánudagur, 4. janúar 2016
Ný kjaragliðnun.Sú eldri ekki leiðrétt enn!
Stærstu kosningaloforð stjórnarflokkanna við aldraða og öryrkja 2013 voru þau,að leiðrétta ætti kjaragliðnun tímabilsins 2009-2013.Þetta var samþykkt á flokksþingum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins og margyfirlýst í kosningabaráttunnu að framkvæma ætti þessa leiréttingu.Til þess að efna þetta kosningaloforð þurfti að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja um 20%.Aldraða og öryrkja munar um það.En rikisstjórnin hefur svikið þetta stóra kosningaloforð án þess að depla auga.En ekki nóg með það. Til þess að kóróna ósómann hafa stjórnarflokkarnir ekki aðeins svikið þetta kosningaloforð heldur bætt um betur og gerst sekir um nýja kjaragliðnun. Hún felst í eftirfarandi:Þegar lágmarkslaun hækkuðu um 14,5% 1.mai 2015 hækkaði lífeyrir aldraðra og öryrkja um 0 krónur.Til þess að jafna þá kjaragliðnun þarf að hækka lífeyri um 12-15%.Nú er að sjá hvort ríkisstjórninni gengur betur að leiðrétta þessa nýju kjaragliðnun?
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Athugasemdir
Sæll.
Það er dálítið misræmi í þessu hjá þér og svo þessari góðu samantekt í myndbandki sem ég læt fylgja hér með tengil á.
Gífurlega góð samantekt á lögbrotum núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnum á kjörum eldri borgara og öryrkja sem sýna alveg kristalskýrt hvernig búið er að skera niður lífeyrisgreiðslur almannatrygginga um 41% frá hruni fram til dagsins í dag meðan þingmenn og ráðherrar hafa makað krókinn grimmt og brotið lög um almannatryggingar á hverju einasta ári síðustu kjörtímabil.
Jack Daniel's, 5.1.2016 kl. 09:31
Sæll! Eg fæ út 12% skerðingu 2015 a.m.k.A tímabilinu 2009-2013 tel ég skerðinguna a.m.k. 20%.Það má reikna þetta á mismunandi hátt.
Kær kveðja
Björgvin
Björgvin Guðmundsson, 5.1.2016 kl. 12:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.